Morgunblaðið - 17.10.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2014
Kringlan - Sími: 577 7040 | www.loccitane.com
T
il
bo
ði
n
gi
ld
a
16
.-
20
.o
kt
ób
er
20
14
eð
a
m
eð
an
bi
rg
ði
r
en
d
as
t.
5.640,-
Divine budda
Divine Oil 4 ml og Divine Cream 8 ml.il
bo
ði
n
gi
ld
a
16
.-
20
.o
kt
ób
er
20
14
eð
a
m
eð
an
bi
Hvað er nýtt í haust?
Fyrir rúmri viku tapaði Sam-keppniseftirlitið, SKE, í
Hæstarétti máli sem það hefur rek-
ið í sjö ár gegn Vífil-
felli vegna ásakana um
misnotkun á markaðs-
ráðandi stöðu. Fréttir
af óförunum komu sér
afar illa fyrir SKE,
enda ljóst að ríkið hef-
ur haft gríðarlegan
kostnað af málarekstr-
inum, auk þess sem
fyrirtækið sem í hlut á hefur aug-
ljóslega orðið fyrir miklum bú-
sifjum.
Í beinu framhaldi af þessu áfallier lekið í Kastljós Ríkisútvarps-
ins frétt þess efnis að SKE hafi
kært stóru skipafélögin fyrir meint
brot á samkeppnislögum. Forsvars-
menn skipafélaganna eru sagðir
hafa verið kærðir og heyra fyrst af
þeirri kæru í fjölmiðlum eftir
lekann.
Þessi leki er heppilega tímasett-ur fyrir SKE, sem heyr nú
harða baráttu við fjárveitinga-
valdið vegna áforma um sparnað og
hagræðingu í rekstri ríkisins, með-
al annars með sameiningu
stofnana.
SKE telur sig þurfa að sanna til-verurétt sinn og mikilvægi og
hefur meðal annars fengið fyrrver-
andi formann sinn, Gylfa Magnús-
son, til að skrifa minnisblað um að
eftirlitið hafi skilað gríðarlegum
ávinningi fyrir samfélagið. Rök-
stuðningurinn er veikur og án
hjálpar lekans hefði SKE átt erfitt
með að ná eyrum almennings um
meintan árangur sinn.
Verður hjá því komist að rann-saka þennan leka? Mun SKE
ekki fara fram á að hann verði
rannsakaður? Snýst þetta ekki um
trúverðugleika þess? Og trúverðug-
leika annarrar lekarannsóknar?
Vel tímasettur leki
um samkeppnismál
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 16.10., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 5 alskýjað
Akureyri 3 alskýjað
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Ósló 1 snjókoma
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 6 léttskýjað
Helsinki 2 léttskýjað
Lúxemborg 16 léttskýjað
Brussel 16 léttskýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 12 alskýjað
London 17 léttskýjað
París 17 alskýjað
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 13 skýjað
Berlín 12 skýjað
Vín 19 skýjað
Moskva 2 súld
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 21 skýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 25 léttskýjað
Róm 22 skýjað
Aþena 26 skýjað
Winnipeg 12 skýjað
Montreal 16 skúrir
New York 18 alskýjað
Chicago 12 alskýjað
Orlando 24 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:25 18:03
ÍSAFJÖRÐUR 8:37 18:00
SIGLUFJÖRÐUR 8:20 17:43
DJÚPIVOGUR 7:56 17:30
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Áhrif átaka sem nú eiga sér stað í
nágrenni aðildarríkja Atlantshafs-
bandalagsins (NATO), aukin hætta
og nýjar ógnir ættu að leiða til þess
að hernaðarbandalagið verði öfl-
ugra. Þetta kom fram í máli Birgis
Ármannssonar, formanns utanríkis-
málanefndar Alþingis og þingmanns
Sjálfstæðisflokksins, á fundi Varð-
bergs, samtaka um vestræna sam-
vinnu og alþjóðamál í gær.
Áminning um mikilvægi NATO
Vísaði Birgir til átakanna í austur-
hluta Úkraínu, Sýrlandi og Írak og í
Líbíu. Þeir atburðir hefðu opnað
augu margra fyrir mikilvægi NATO.
„Staðreyndin er sú að þegar al-
varlegt hættuástand skapast í næsta
nágrenni og ógn steðjar jafnvel að
einstökum aðildarríkjum, þá er
NATO sá aðili sem litið er til, sá
vettvangur þar sem menn samræma
viðbrögð og aðgerðir og sá aðili sem
menn treysta á, ef illa færi. Atburða-
rásin hefur því verið áminning um
mikilvægi NATO sem grundvall-
arstoðar í vörnum í okkar heims-
hluta,“ sagði Birgir.
Staðsetningin enn mikilvæg
Hvað varðar Ísland sagði Birgir
engan vafa fyrir sitt leyti um að að-
ildin að NATO ásamt varnarsamn-
ingi við Bandaríkin væri grundvall-
arstoð í varnar- og öryggismála-
stefnu landsins. Það mikilvægi hafi
frekar aukist en hitt í ljósi atburð-
anna sem hann hafði áður rakið.
Þá kom hann inn á þær breytingar
sem eru að verða á norðurheim-
skautssvæðinu sem leiði til aukins
mikilvægis Íslands í alþjóðapólitísku
tafli. Í því samhengi væri samstarf
við NATO-ríki lykilatriði.
„Ljóst er að staðsetning Íslands á
miðju Norður-Atlantshafinu er auð-
vitað enn mikilvæg út frá strateg-
ísku sjónarmiði og sú þróun sem
orðið hefur á norðurheimskauts-
svæðinu hefur kannski opnað augu
manna aftur, bæði austan hafs og
vestan, fyrir því,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Golli
Varðberg Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis.
Augu opnast fyrir
mikilvægi Íslands
Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur telur að stuðn-
ingur stjórnar Skógræktarfélags Íslands við lagningu
vegar um Teigsskóg í Þorskafirði sé ekki í samræmi við
vilja kjörinna fulltrúa skógræktarfélaga í landinu eins
og hann birtist á aðalfundi í ágúst sl. Tekur stjórn Skóg-
ræktarfélags Íslands fram að hún styður ekki ályktun
stjórnar SÍ.
Nýlega sendi Skógræktarfélag Íslands frá sér ályktun
ásamt skógræktarfélögum á Vestfjörðum þar sem fram
kemur sú skoðun að ekki sé ástæða til að leggjast gegn
umræddri vegagerð þar sem aðeins lítill hluti af skóg-
lendinu við vestanverðan Þorskafjörð fari undir veg.
Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur bendir á að aðrir kostir á veg-
tengingum séu fyrir hendi. Með uppbyggðum vegi þar í gegn yrði eyðilagð-
ur skógur á um sex hektara svæði auk þess sem gamalgróið vistkerfi skóg-
arins yrði rofið. „Þeir eru ófáir sem líta svo á að þessi skógur sé gersemi
sem beri að vernda.“
„Gersemi sem ber að vernda“
Birki Deilt er um
mikilvægi skógar.