Morgunblaðið - 17.10.2014, Síða 15

Morgunblaðið - 17.10.2014, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2014 Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Á fundi stjórnar Landssambands hestamannafélaga í gær var ákveð- ið samhljóða að ganga til viðræðna við hestamannafélagið Sprett varð- andi landsmót 2016 og við hesta- mannafélagið Fák um landsmót 2018. Þetta kemur fram í frétta- tilkynningu sem stjórnin sendi frá sér í gær. „Stjórn Landssambands hestamannafélaga vonast til þess að um þetta muni ríkja sátt á meðal áhugamanna um íslenska hestinn,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Formaður Landssambands hestamannafélaga, Haraldur Þór- arinsson, tilkynnti Skagfirðingum að mótið yrði ekki haldið á Vind- heimamelum, þrátt fyrir að undir- rituð hefði verið viljayfirlýsing þess efnis fyrr á árinu, eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær. LH fylgir ekki reglum Samkvæmt reglugerð Landssam- bands hestamannafélaga (LH) skal velja landsmótsstað að minnsta kosti fimm árum áður en landsmót- ið er haldið. Ganga skal frá samn- ingum við mótshaldara að minnsta kosti þremur árum áður. Slíkt var ekki gert heldur ritað undir um- rædda viljayfirlýsingu. Landsmót hestamanna ehf. (LM ) er rekstraraðili landsmótanna. Félagið er í eigu LH, sem á 2/3 hluta, og Bændasamtaka Íslands (BÍ), sem eiga 1/3 hluta. „Landsmót ehf. var í greiðslu- erfiðleikum áramótin 2013-2014 og því treystum við okkur ekki til að ganga frá samningum við mótshald- ara í Skagafirði. Þess vegna var viljayfirlýsing undirrituð. Við vild- um bíða með að skrifa undir samn- inga þar til landsmótinu á Gadd- staðaflötum yrði lokið. Það kom ekki eins vel út og við ætluðum og því var þessi ákvörðun tekin,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamannafélaga. Hann segir að eftir síðasta lands- mót hafi verið komin ákveðin þreyta í hreyfinguna, bæði hesteig- endur og gesti mótsins. „Við lásum í aðstæðurnar, að við þyrftum að gera breytingu á mótshaldinu til að halda áfram að stækka viðburðinn svo hann nái að þjóna tilgangi sín- um. Það má ekki gleymast að mótin voru stofnuð í upphafi til að efla umgjörð um íslenska hestinn og fjölga fólki í hestamennskunni. Þess vegna megum við ekki lenda í einhverri pólitík sem snýst alfarið um staðarval. Þetta snýst um að hafa umgjörðina sem besta, bæði fyrir hesta og menn.“ Haraldur segir stjórnin hafi reynt að fara eftir reglugerð LH en vegna fyrrgreindra atriði hafi ekki verið forsendur fyrir því. Spurður hvort ekki þurfi jafnvel að breyta reglugerð LH er varðar val á stað fyrir landsmót, svarar hann því til að hann telji reglurnar nógu skýrar. „Hins vegar verður allt landsmótið til umræðu á næsta landsþingi hestamannafélaga. Þar er vettvangur til að velta því upp.“ „Algjör skandall“ „Það er algjör skandall ef menn ætla virkilega að færa þessi mót al- farið til höfuðborgarinnar með fullri virðingu fyrir borginni. Hestamennskan er stunduð um allt land,“ segir Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri í Rangárþingi ytra. Hann blæs á þá fullyrðingu að að- búnaðurinn á Gaddstaðaflötum sé ekki nógu góður og bendir á mikla uppbyggingu á staðnum m.a. reið- höll, stórt hótel inni á svæðinu og úrvalsvelli sem sönnuðu gildi sitt á síðasta móti. Hann bendir á að öll þau landsmót sem haldin hafa verið á Gaddstaðaflötum hafa skilað hagnaði, auk þess að eiga met í fjölda gesta. „Ef stjórnin ætlar virkilega að svíkja Skagfirðinga með mótið 2016 þá verða menn að skoða sinn gang.“ Morgunblaðið/Eva Björk Landsmót Stjórn LH telur breytingar á landsmótahaldi þarfa. LH fylgir ekki eigin reglum  Næstu landsmót hestamanna í bænum? Tíu af þeim 54 tillögum sem lagð- ar verða fyrir þingið snúast um landsmótið með einum eða öðrum hætti. Hestamannafélögin Geysir, Há- feti, Logi, Smári, Sindri og Trausti leggja til að Landsmót ehf. verði lagt niður. „Eins og staðan er í dag fer ágóði landsmótanna, ef ein- hver er, til að halda þessu fyrirtæki gangandi í stað þess að renna til hestamannafélaganna í landinu,“ stendur í greinargerð. Í annarri til- lögu frá þessum félögum er farið fram á að ekki skuli innheimt keppnisgjöld af keppendum á landsmóti. Þá er skorað á LH og Bænda- samtökin að halda ráðstefnu um framtíð landsmóts fyrir áramót. Landsmótið í brennidepli 59. LANDSÞING HESTAMANNAFÉLAGA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.