Morgunblaðið - 17.10.2014, Qupperneq 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2014
✝ Einar Jónssonfæddist í
Reykjavík 14. októ-
ber 1935. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnuninni á
Hvammstanga 11.
október 2014. For-
eldrar hans voru
Jón Þorkell Ein-
arsson, fæddur á
Eystra-Geld-
ingalæk Rang-
árþingi 16. ágúst 1911, d. 12.
júní 1973, og Herdís Þorsteins-
dóttir, fædd í Klömbrum í Vest-
urhópi Húnaþingi vestra 8.
september 1913, d. 11. sept-
ember 1997. Systkini Einars
voru Hanna Elsa, f. 21. október
1939, d. 15. júlí 1989, og Gunn-
ar Þorsteinn, f. 10. júlí 1947.
Einar kvæntist Kolbrúnu
Kristjánsdóttur. Börn Einars
og Kolbrúnar eru: 1) Jón Rún-
ar, f. 3. nóvember 1955, maki
Kristín Valborg Sævarsdóttir,
synir þeirra eru Sævar Frí-
mann, f. 31. mars 1999, og Úlf-
ur Einar, f. 5. mars 2003. Fyrir
átti Jón Hannes Ingvar, f. 29.
júní 1974, og Önnu Birnu, f. 26.
Barnabörn Aðalheiðar eru
þrjú.
Einar og Kolbrún slitu sam-
vistum.
Einar kvæntist Kristrúnu
Guðmundsdóttur, þau eign-
uðust einn son, Hlyn, f. 29.
ágúst 1967, hann er búsettur í
Svíþjóð. Einar og Kristrún slitu
samvistum. Einar kvæntist
Klöru E. Helgadóttur, börn
hennar og stjúpbörn Einars eru
fjögur. Þau slitu samvistum.
Einar lærði húsasmíði í Iðn-
skólanum í Reykjavík og var á
samningi hjá föður sínum og
hlaut meistararéttindi 26. jan-
úar 1957. Hann vann alla sína
starfsævi við húsasmíði. Fyrri
hluta ævinnar starfaði hann í
Reykjavík en flutti til Hvamms-
tanga árið 1977.
Eftir að Einar flutti norður
gerðist hann sjálfstæður verk-
taki og vann við húsasmíðar á
Hvammstanga og í sveitunum í
kring, yfirleitt með marga
menn í vinnu.
Síðustu æviárin dvaldi hann í
íbúðum aldraðra í Nestúni á
Hvammstanga.
Útför Einars fer fram frá
Hvammstangakirkju í dag, 17.
október 2014, og hefst athöfnin
kl. 15.
apríl 1979, maki
Kolbeinn Jónsson.
Barnabörn Jóns
Rúnars eru þrjú. 2)
Anna, f. 11. ágúst
1957, býr á sam-
býli í Reykjavík 3)
Herdís Ein-
arsdóttir, f. 29.
maí 1959, maki
Indriði Karlsson,
dætur þeirra eru
Kolbrún Stella, f.
18. mars 1979, maki Ragnar
Smári Helgason, Eydís Ósk, f.
7. nóvember 1982, maki Ágúst
Þorbjörnsson, og Fanney Dögg,
f. 19. nóvember 1986, maki Elv-
ar Logi Friðriksson. Barnabörn
Herdísar eru fjögur. 4) Að-
alheiður Sveina, f. 5. ágúst
1960, maki Jón Ingi Björg-
vinsson, dóttir þeirra er Fríða
Björg, f. 19.maí 1998. Fyrir átti
Aðalheiður Ingunni Elsu, f. 26.
mars 1981, maki Valdimar
Halldór Gunnlaugsson, Einar
Örn, f. 20. september 1985,
maki Unnur Aðalheiður Unn-
steinsdóttir, og Hlynur Rafn, f.
15. janúar 1989, kærasta hans
er Elísabet Sif Gísladóttir.
Elsku pabbi minn. Mig langar
að kveðja þig með þessum orðum:
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Takk, elsku pabbi minn, fyrir
samfylgdina og allar góðu stund-
irnar okkar saman. Ótal margar
minningar á ég um þig og þær
ylja mínu hjarta.
Hvíl í friði. Þín dóttir,
Aðalheiður (Alla).
Hér sit ég og hugsa um elsku
Einar afa sem hefur kvatt okkur.
Afi hafði alltaf mikinn áhuga á
búskapnum. Eftir að hann var
hættur að geta verið með okkur í
rollustússinu voru ófá símtölin
sem maður fékk í tengslum við
það. Á vorin var hringt nokkrum
sinnum í viku til að athuga hvern-
ig sauðburður gengi, hvernig frjó-
semin væri o.s.frv. Á haustin var
stöðugt símasamband við afa þar
sem hann bara varð að vita fall-
þunga, stigun og líflömb. Hrossin
voru líka mikið áhugamál og
spurði hann mikið um mót,
hversu mörg folöld væru fædd og
svo mætti lengi telja. Ef ég vissi
ekki svörin þá var hnussað og
sagt: „Núhh, fylgistu ekkert með
eða?“
Afi var hreinskilinn maður.
Hann sagði bara nákvæmlega það
sem honum fannst. Síðastliðinn
vetur hringdi hann í mig og eftir
smáspjall sagði hann: „Mamma
þín sagði mér að þú værir búin að
missa 8 kíló.“ Ég sagði montin:
„Já, það er víst, maður er alltaf að
arka.“ Þá sagði hann:
„Þú ert samt ennþá yfir kjör-
þyngd er það ekki?“ Ég gat ekki
annað en hlegið að þessari dásam-
legu hreinskilni.
Það var ekki mikið um væmni
og væl hjá afa og þoldi hann það
illa. Maður harkaði bara af sér,
hann bara nennti ekki öðru. Nú á
seinni árum mátti alls ekki gefa
honum gjafir en ég píndi hann til
að taka við einni núna síðustu jól,
myndabók með afkomendum
hans, og sagði ég honum að ég
vissi að honum myndi líka þetta.
Hann fussaði en tók nú við þessu.
Ég gat ekki annað en glott þegar
ég fékk símtal á jóladag þar sem
hann þakkaði fyrir þessa gjöf,
hún væri frábær.
Það var gaman að horfa á bolt-
ann með afa og mátti hann ekki
missa úr leik. Mér er minnisstætt
þegar ég kíkti til hans í vetur og
voru þar líka Binni, Einar og
Valdi. Það var gaman að hlusta á
gleðina og hlógum við mikið að
æsingnum í Einari Erni.
Afi var barngóður og var alltaf
gaman að kíkja til hans, sérstak-
lega þar sem hann klikkaði aldrei
á því að eiga nammi handa okkur
krökkunum og eins var það með
börnin okkar eftir að þau fædd-
ust, alltaf voru þau til í að kíkja til
langafa.
Afi, eins og Valli, Binni og
Bangsi félagar hans, vissi alltaf
allt nýjasta slúðrið. Ég man þegar
ég byrjaði að hitta Gústa, að þá
voru nú ekki liðnir margir dagar
þar til ég fékk símtal, á símanum
stóð „Einar afi“ og eitt af því
fyrsta sem sagt var: „Ert þú kom-
in með mann?“
Mér fannst óskaplega gaman
að hitta félagana og sérstaklega
þegar verið var að undirbúa
ferðalögin þeirra. Það var alltaf
eins og þeir væru gömul hjón og
tuðuðu hver í öðrum um hvernig
allt ætti að vera, en alltaf var
gaman hjá þeim og hefði ég
gjarnan viljað vera fluga á vegg í
þessum ferðum.
Elsku afi, með þessum fátæk-
legu orðum kveð ég þig í hinsta
sinn. Ég er viss um að þið Valli og
Tryggvi eruð búnir að hittast,
spjallið saman og hafið það gott.
Sakna þín,
Eydís Ósk.
Í bænum okkar, besti afi
biðjum fyrir þér
að Guð sem yfir öllu ræður,
allt sem veit og sér
leiði þig að ljóssins vegi
lát’ þig finna að,
engin sorg og enginn kvilli
á þar samastað.
Við biðjum þess í bænum okkar
bakvið lítil tár,
að Guð sem lífið gaf og slökkti
græði sorgarsár.
Við þökkum Guði gjafir allar
gleði og vinarfund
og hve mörg var ávallt með þér
ánægjunnar stund.
(Sigurður Hansen)
Elsku afi. Mikið er erfitt að
sleppa takinu og kveðja en þakk-
læti fyllir hjarta mitt að barátta
þín varð ekki lengri. Ég er þakk-
lát fyrir að hafa getað strokið þér
um enni, kysst á kinn og kvatt, í
síðasta sinn. Takk fyrir allt og
allt.
Þín
Ingunn.
Elsku afi. Nú hefur þú fengið
hvíldina sem þú varst farinn að
bíða eftir. Ég trúi því varla að þú
sért farinn, mér finnst svo stutt
síðan ég var á fæðingardeildinni
að eiga dóttur mína og það var al-
veg að koma að fæðingunni þegar
þú hringdir í lækninn og spurðir
„hvernig þetta væri eiginlega, fer
barnið ekki að koma?“ Þú sagðist
vera að fara að sofa og þyrftir al-
veg endilega að vita kyn, stærð
og allar helstu upplýsingar áður
en þú færir að sofa. Læknirinn
gat nú ekki svarað þessu þar sem
barnið var enn ófætt en gaf sím-
ann yfir á pabbann sem gaf þér
lágmarks upplýsingar um gang
mála að þér fannst. Þessa sögu
hef ég oft sagt af þér og hún fær
mig alltaf til að brosa.
Afi vildi alltaf vera með hlutina
á hreinu og hringdi reglulega til
að athuga hvernig gengi hjá okk-
ur og hvað við værum að gera þá
dagana. Hann hafði mikinn
áhuga á fjölskyldunni og sam-
félaginu og var duglegur að afla
sér upplýsinga og koma þeim
áfram. Hann kom stundum í kaffi
til okkar og oft með vini sína með
sér. Afi kom alltaf færandi hendi
með vöffludeig, rjóma og sultu
með sér og ég bakaði vöfflur og
við áttum góðan kaffitíma saman.
Afi átti góða vini og þeir fóru í
margar ferðir saman. Mér er
mjög minnisstæð Akureyrarferð-
in þegar ég var bílstjóri í reglu-
legu læknisskoðuninni hans afa.
Allir sem hafa verið bílstjórar í
þessari ferð ættu að kannast við
rútínuna. Bangsi og Brynjólfur
komu með og það var tekið nesti
með í rauða Subaru-inn hans afa
og fyrsta stopp var í Jónasarlundi
og þar var borðað nesti. Síðan var
haldið af stað aftur og þegar við
vorum komin til Akureyrar fór
afi til læknisins. Skoðunin tók
stuttan tíma og þá gat ferðin
haldið áfram. Við borðuðum á
Bautanum því það var jú alltaf
borðað þar, engu mátti breyta.
Síðan var farið niður að höfn og
bátarnir skoðaðir. Á leiðinni heim
var alltaf stoppað í bakaríinu á
Sauðárkróki og keypt bakkelsi
sem var svo borðað niður við
höfn. Svo var haldið áfram með
örstuttu stoppi við höfnina á
Blönduósi. Á leiðinni var mikið
spjallað og Brynjólfur sagði okk-
ur frá bæjunum og hin ýmsu mál-
efni rædd. Þetta var skemmtileg
ferð og afi var heppinn að eiga
góða félaga.
Afi var mjög örlátur og hrein-
skilinn maður, hann fór ekki í
kringum hlutina heldur kom sér
iðulega beint að efninu. Hann
hafði gaman af börnum og ég
man vel eftir því að fara í heim-
sókn til afa eða fá hann í heim-
sókn til okkar og þá fengum við
systur oft smá nammi, hann spil-
aði við okkur og sagði stundum
sögur af hestum og hestaferðum.
Við afi áttum margar góðar
stundir saman líkt og í lok sumars
þegar ég kíkti til hans í heimsókn
með Herdísi Erlu dóttur minni og
hann fór í skúffurnar, reif upp
myndaalbúmin og sýndi okkur
gamlar myndir og sagði mér sög-
ur og gaf Herdísi Erlu bangsa.
Það var mjög gaman og ég er
mjög þakklát fyrir allan þann
tíma sem við náðum að eyða sam-
an.
Ég trúi því að þér líði betur þar
sem þú ert núna, elsku afi minn.
Þín
Fanney.
Sit og hugsa um samveru-
stundirnar okkar afa á sjálfan af-
mælisdaginn hans, en afi hefði
orðið 79 ára þegar þessi minning-
arorð eru skrifuð, 14. október
2014. Minningarnar eru enda-
lausar, það var gaman að fá afa í
heimsókn þegar ég var lítil stelpa
í Grafarkoti, hann kom alltaf með
nammi handa okkur systrum og
spilaði oft við okkur. Hann var
mjög stríðinn, vanur bridgespilari
og vissi því of oft hvaða spil við
vorum með á hendi og hafði gam-
an af því að segja okkur það þann-
ig að við héldum að hann væri að
svindla.
Afi mátti eiga það að hann var
mjög hreinskilinn maður og sagði
hlutina beint út, við spjölluðum
saman oft í viku eftir að ég flutti
aftur norður og það var ekki af því
að ég var svo dugleg að hringja,
afi hafði tíma og gleymdi ekki að
hringja eins og ég sem er oft í
kapphlaupi við tímann. Afi spjall-
aði ekki lengi í hvert skipti, fékk
fréttir úr sveitinni, hvaða verk
voru í gangi hverju sinni og
hvernig krökkunum liði. Það var
svo notalegt að vita hvað það
skipti afa miklu máli að vita
hvernig mér, barnabarninu hans
og fjölskyldunni minni gengi í líf-
inu. Hann lét sig hlutina varða og
ég á eftir að sakna þess svo að
eiga þessi góðu samtöl. En við
hittumst líka nokkuð oft, auðvitað
mátti það vera oftar en afi kom
alltaf til mín í vinnuna einu sinni í
viku og sat hjá mér þangað til
kaffið hjá Tveimur smiðum byrj-
aði en þá fór hann þangað að hitta
smiðina. Ef ég var ein heima
fannst mér gott að kíkja í heim-
sókn til afa í rólegheitin, hann
bauð mér þá oft í mat, man að síð-
ast var það fiskbúðingur, sem ég
auðvitað steikti á meðan hann
spjallaði við mig sitjandi í stólnum
sínum og horfði með öðru auganu
á fótboltaleik. Krakkarnir hlupu
stundum til hans eftir skóla í
heimsókn, fengu nammi og sögðu
honum fréttir og Raggi horfði svo
á boltann hjá honum og eldaði
handa þeim eitthvað um leið. Það
var mjög skemmtilegt hvað Indr-
iði Rökkvi og afi náðu vel saman,
afi gat hlegið að honum þegar ég
kom með þennan orkubolta inn í
litlu íbúðina í Nestúninu, göngu-
grindin var notuð sem leiktæki og
hafði líklega aldrei fengið aðra
eins meðferð og ég reyndi að
passa að ekkert brotnaði en mér
fannst á afa eins og honum væri
alveg sama, bara leyfa drengnum
að hreyfa sig. Rétt áður en afi
veiktist núna í vor gaf hann
Rökkva hjól og það var gaman að
fylgjast með þeim þegar afi
stríddi Rökkva og sagði honum að
hann hefði keypt bleikt hjól, með
semingi opnaði Rökkvi þó skottið
á Subaru afa síns og þá var gaman
að sjá ánægjusvipinn á barninu
og glottið á gamla manninum en
hjólið var alveg eins og Rökkvi
hafði óskað sér. Afi var mjög ör-
látur maður og það sást á því hvað
hann hafði gaman af því að gleðja
aðra. Hann fór t.d. í nokkur ár á
haustin ásamt ömmu með barna-
börn og barnabarnabörnin sín í
leikhús sem var mikil upplifun
fyrir alla, stund sem enginn
gleymir.
Hvíl í friði, elsku afi. Minning
þín lifir með okkur.
Kolbrún (Kolla) og
fjölskylda Lindarbergi.
Einar Jónsson ✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, bróðir og afi,
REYNIR HAUKSSON,
Öldugötu 12,
Reykjavík,
lést laugardaginn 4. október.
Jarðarförin hefur farið fram.
Jóna Lára Sigursteinsdóttir,
Sverrir Reynisson, Valeria Coelho,
Bogi Reynisson, Hlín Erlendsdóttir,
Þuríður Reynisdóttir, Shkelzen Hilaj,
Helga Hauksdóttir,
Gerður Hauksdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær kona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
INGIBJÖRG ÓSK ÓSKARSDÓTTIR,
Skipasundi 46,
Reykjavík,
lést laugardaginn 11. október á
gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut.
Útförin verður auglýst síðar.
Hörður Smári Hákonarson,
Anna María Gestsdóttir, Ellert Hlíðberg,
Óskar G. Gunnarsson, Sjöfn Magnúsdóttir,
Haraldur R. Gunnarsson, Ragna Ársælsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, dóttir og systir,
ELÍN BIRNA HARÐARDÓTTIR,
lést á Landspítalanum
miðvikudaginn 15. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Adolf Ársæll Gunnsteinsson,
Björn Kristinn Adolfsson, Guðrún Númadóttir,
Jóhann Karl Adolfsson, Bjarney Lára Sævarsdóttir,
Júlía Lind Jóhannsdóttir,
Halldóra K. Guðjónsdóttir,
Katrín Ú. Harðardóttir, Guðni B. Guðnason,
G. Svafa Harðardóttir,
Þórhallur G. Harðarson, Brynja B. Rögnvaldsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐLAUGUR HELGI KARLSSON
loftskeytamaður
og fyrrv. símafulltrúi,
Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar
laugardaginn 11. október.
Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 18. október
kl. 14.00.
Magðalena Sigríður Hallsdóttir,
Guðný Sigríður Guðlaugsdóttir, Ómar Einarsson,
Guðrún Herdís Guðlaugsdóttir, Kristján S. Sigmundsson,
Karl Guðlaugsson, Kristjana Sæberg,
Guðbjörg Jóna Guðlaugsdóttir, Nils Gústavsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓNBJÖRN BJÖRNSSON
frá Súðavík,
sem lést á fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði
fimmtudaginn 9. október, verður jarðsunginn
frá Súðavíkurkirkju laugardaginn 18. október
kl. 11.00.
Ásthildur Jónasdóttir,
Jónas H. Jónbjörnsson, Sigurdís Samúelsdóttir,
Elín S. Jónbjörnsdóttir, Jóhann Á. Tafjord,
Halldór Rúnar Jónbjörnsson,
Sigríður F. Jónbjörnsdóttir, Steingrímur Steingrímsson,
Jón Hilmar Jónbjörnsson, Agnieszka Tyka,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Minningargreinar