Morgunblaðið - 17.10.2014, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2014
„Hugmyndina að sýningunni fékk
ég í sunnudagsbíltúr þegar ég sá
einn flottasta regnboga sem ég hef
á ævinni séð. Ég varð nauðsynlega
að mynda hann og eigna mér hann,
en reyndist þá bara vera með
svart/hvíta filmu í vélinni sem var
hálfkaldhæðnislegt því þá glataði
ég allri litapallettunni,“ segir Lilja
Birgisdóttir um fyrstu einkasýn-
ingu sína, 40-42 gráður, sem opnuð
verður í Gallerí Listamönnum á
Skúlagötu 32-34 í dag kl. 17.
„Í verkum mínum á sýningunni
er ég að reyna að raða saman litum
og endurgera eitthvað sem náttúr-
an er þegar búin að fullkomna.
Þannig að auðvitað mistekst manni
hrapallega,“ segir Lilja kímin. Sýn-
ingin samanstendur, að sögn Lilju,
af ljósmyndaverkum, landslags-
skúlptur og regnbogavél sem þjóna
þeim tilgangi að velta upp mörkum
náttúru, ljóss, lita og manns.
Lilja lærði myndlist og ljós-
myndun í Listaháskóla Íslands og
Royal Academy of Arts í Den
Haag. „Lilja hefur vakið verð-
skuldaða athygli á síðustu árum
fyrir verk sín, jafnt á sviði mynd-
listar og hljóðlistar. Hljóðgjörn-
ingur Lilju, The Vessel Orchestra,
var opnunaratriði Listahátíðar í
Reykjavík árið 2013. Á þessu ári
hefur Lilja m.a. sýnt í Rawson
Projects Gallery í New York,“ seg-
ir í tilkynningu frá sýningarhald-
ara.
Regnbogi Lilja Birgisdóttir opnar fyrstu einkasýningu sína í dag.
Hvað kemur í ljós
við 40-42 gráður?
Morgunblaðið/Ómar
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Kvikmyndin Borgríki 2 - Blóð
hraustra manna, sjálfstætt framhald
kvikmyndarinnar Borgríki eftir leik-
stjórann Ólaf de Fleur Jóhannesson,
verður frumsýnd í dag. Auk þess að
vera leikstjóri framhaldsmynd-
arinnar skrifaði Ólafur handritið
ásamt Hrafnkeli Stefánssyni og með
aðalhlutverk fara Darri Ingólfsson,
Ágústa Eva Er-
lendsdóttir, Ingv-
ar E. Sigurðsson,
Zlatko Krickic,
Sigurður Sig-
urjónsson og
Hilmir Snær
Guðnason.
Nokkrar per-
sónur úr fyrri
myndinni koma
við sögu í Borg-
ríki 2, leiknar af
Ágústu Evu, Ingvari, Zlatko og Sig-
urði en Ólafur segir þó ekki nauð-
synlegt að hafa séð Borgríki til að
njóta framhaldsins. „Það er margbú-
ið að prófa það, myndin stendur á
eigin fótum en það er náttúrlega
bónus að hafa séð fyrri myndina,“
segir hann.
Af VHS-kynslóðinni
Myndin fjallar um Hannes, metn-
aðarfullan lögreglumann sem lifir í
skugganum af föður sínum sem er
goðsögn innan lögreglunnar. Hann-
es er ráðinn til starfa við innra eft-
irlit lögreglunnar og lendir í kröpp-
um dansi þegar hann hefur rann-
sókn á yfirmanni fíkniefnadeildar
lögreglunnar eftir að hafa fengið
ábendingu frá fyrrverandi glæpafor-
ingja sem situr í fangelsi. Hannes
ætlar sér að slá tvær flugur í einu
höggi, ná yfirmanninum og uppræta
erlenda glæpaklíku sem er valda-
mikil í borginni og fær lögreglukon-
una Andreu til liðs við sig sem glímir
Dýpri, breiðari og stærri
Lögreglumaðurinn Hannes ræðst gegn glæpasamtökum og spilltum yfirmanni fíkniefnadeildar
í Borgríki 2 Mikilvægast að einbeita sér að vinnunni hjá leikurunum, segir leikstjórinn
Átök Sérsveitarmenn, gráir fyrir járnum, búa sig undir átök í Borgríki 2, sjálfstæðu framhaldi Borgríkis. Leikstjór-
inn segir ofbeldis- og átakasenur raunsæjar upp að vissu marki, á endanum sé myndin afþreying og bíó.
við fortíðardrauga. Hannes kemst í
bráða lífshættu, enda svífast glæpa-
mennirnir einskis.
Spurður að því hvort myndin sé í
anda bandarískra glæpa- og lög-
reglumynda segir Ólafur að hún sé
það að einhverju leyti, e.k. banda-
rísk-skandinavísk-íslensk blanda.
„Svo spilar líka inn í að maður er af
VHS-kynslóðinni, ólst nánast upp
inni í VHS-tæki og þaðan koma alls
konar straumar og stefnur.“
Vill ekki að framhaldsmyndin
verði síðri en sú fyrri
-Ef þú berð myndirnar tvær sam-
an, Borgríki 1 og 2, er mikill munur
á þeim? Mér skilst að þessi hafi verið
mun dýrari í framleiðslu og meira í
hana lagt.
„Já, fyrri myndin var gerð af hópi
sem langaði að gera verk í kjölfar
hrunsins. Við fórum og skutum
ódýra mynd, fólk gaf vinnuna sína
og fékk hlutdeild á móti og það var
lítið Öskubusku-ævintýri sem gekk
upp. Núna fengum við stuðning frá
Kvikmyndasjóði, endurgreiðslan
hjálpar líka til og svo erum við með
tvö erlend dreifingarfyrirtæki sem
standa þétt við bakið á okkur. Þann-
ig að Borgríki 2 er dýpri, breiðari og
stærri, eins og gengur. Er þetta ekki
það sama gamla, maður vill ekki að
framhaldsmyndin verði síðri en sú
fyrri?“ segir Ólafur og hlær.
-Borgríki var fyrsta glæpa- og
hasarmyndin þín og þú hlýtur að
hafa lært mikið af því að leikstýra
henni. Geturðu sagt mér í hverju það
fólst og hvernig þú gast nýtt þér það
við gerð framhaldsmyndarinnar?
„Ætli það sé ekki fyrst og fremst
reynslan af því að vinna með karakt-
era. Það er sama hversu atriðin eru
mörg eða stór, á endanum eru það
alltaf karakterarnir sem bjóða
áhorfendum inn í myndina. Það er
alltaf mikilvægast að einbeita sér að
vinnunni hjá leikurunum og svo þeg-
ar kemur að útfærslum, áhættu-
atriðum og slíku, þá leitar maður til
fólks sem er sérfræðingar í því.“
-Þú leitaðir einmitt til lögreglu-
manna þegar þú gerðir fyrri mynd-
ina. Gerðir þú það aftur fyrir þessa?
„Já, já og svo vorum við með hauk
í hverju horni við útfærslur og ann-
að,“ segir Ólafur. Myndin sé raunsæ
upp að ákveðnu marki. „Á endanum
er þetta afþreying; þetta er bíó.
Heimurinn á að vera í samræmi við
sjálfan sig,“ segir Ólafur.
Líkamlegur klaufaskapur
-Nú hefur töluvert verið fjallað
um hversu mikið var lagt í slags-
málaatriði myndarinnar. Í þeim
naustu liðsinnis félaga þinna í
Mjölni, var einhver einn þar sem sá
um þá vinnu, slagsmálahönnun?
„Já, Jón Viðar Arnþórsson, hann
er algjör meistari. Þegar handritið
var gert var einfaldlega skrifað að
Jón Viðar sæi um ákveðna hluta.
Hann skrifar og leikstýrir þessum
atriðum og hans stefna er að það sé
þyngdarafl í þessu, að þetta sé trú-
verðugt. Að þetta sé ekki kungfú
heldur líkamlegur klaufaskapur í
þessu,“ segir Ólafur.
Spurður að því hvort leikararnir
hafi fengið að spinna eitthvað í tök-
um segist Ólafur orðinn frekar
íhaldssamur með árunum hvað varð-
ar að fylgja handriti. Innan ramma
hvers atriðis hafi leikarar þó fengið
frelsi til að smyrja á hlutina með
eðlilegum hætti. „Svo veit maður
aldrei með leikarana, maður veit t.d.
stundum ekkert hvað Ágústa Eva og
jafnvel Ingvar ætla að gera og það
er rosalega spennandi,“ segir Ólafur
sposkur.
Nýr leikstjóri fyrir endurgerð
-Nú stóð til að endurgera Borg-
ríki. Hvar er það mál statt?
„Það er þannig statt að það var
sett í endurgerð hjá New Regency
stúdíóinu og er komið þaðan yfir á
óháða aðila. Það er kominn nýr leik-
stjóri að henni, James Mangold er
að framleiða hana, hans fyrirtæki og
konan hans og þau eru komin með
nýjan leikstjóra sem ég held að ég
megi ekki nefna. Það er verið að
fjármagna hana, komið nýtt handrit
og verið að reyna að finna einhverjar
stjörnur,“ segir Ólafur.
Ólafur de Fleur
Jóhannesson
Heimasíða Borgríkis 2:
www.borgriki2.is.
Síðumúla 11 - 108 Reykjavík Sími 568-6899
Póstfang: vfs@vfs.is Netsíða: www.vfs.is
Bandsög 100mm.
Bandsög 260mm.
Bandsög BS-260G Blað: 2455x27mm.
Geta: = 277mm = 260x110mm.
Mótor: 1000w. TT 388017
Súluborvél
Súluborvél T-25A
Mótor: 0,65 KW.
3Ph. 400 V
MT3Festing:
Færsla: 125mm
Geta stál: 25mm
Hraðar: 8 Gírar
Þyngd: 190 kg.
TT 390002
Bandslípivél
Bandslípivél S-75
Slípiband: 75X2000mm.
Mótor: 3000w.
TT 389001
Bandsög BS-100 Blað: 1470x13mm.
Geta: = 100mm. = 100x150mm.
Mótor: 375w. TT 388001
349.000,-
T i lboð
326.300,-
T i lboð
134.900,-
T i lboð
95.500,-
Tilboð