Morgunblaðið - 28.10.2014, Side 21

Morgunblaðið - 28.10.2014, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2014 Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Sérfræðingar í líkamstjónarétti Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is www.skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms- lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar- lögmaður fi p y j g p C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa mauki Bruchetta eykmeð tvír ðlahangikjöti, bal- samrau og piparrótarsósu hetBruc ta með hráskinku, balsam nmgrill uðu Miðjarðar- hafsgræ K r a b b a - salat f ðboskum kryddjurtum í brau B r u c h e t t a Mimeð jarðarhafs-tapende aR i s rækja á spjóti með peppadew Silunga hrogn ónmeð japönsku maj sinnepsrjóma-osti á bruchettuBirkireykt-ur lax alioá bruchettu með grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is MöndluMix og KasjúKurl er ekki bara hollt snakk. Líka gott á salatið. Hollt oggott frá Yndisauka. Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum, Melabúðinni, Fjarðarkaup, Miðbúðinni, Kjöthöllinni, Hreyfingu, Garðheimum, Mosfellsbakaríi og Bakaríinu við brúna Akureyri. Lögreglan í Roms- dal í Noregi biður fólk að fara ekki á fjallið Mannen í dalnum vegna hættu á aurskrið- um. Í þrjár vikur hefur verið fylgst grannt með fjall- inu en talið er að gríðarlegt magn af grjóti og aur geti farið af stað ef það fer að rigna verulega. Ellefu íbúar við fjallið hafa þurft að yfirgefa heimili sín og liggur ekki ljóst fyrir hvenær þeir fá að snúa aftur heim en að sögn lög- reglu er talið að skriður geti fallið fyrirvaralaust. Norska þjóðin hefur fylgst með fjallinu undanfarna daga þar sem skriðunnar var beðið og hefur raunveruleikasjónvarp öðlast nýja merkingu þar sem hægt er að fylgj- ast með beinni útsendingu af fjall- inu allan sólarhringinn. NOREGUR Skriðuhætta í Romsdal Í hlíð fjallsins Mannen. Fimmtán ára gamall piltur skaut kennara til bana í gær í mennta- skóla í borginni Viljandi í Eistlandi. Að sögn lögreglu var drengurinn í þýskutíma þegar hann dró upp skammbyssu og skaut kennarann, 56 ára gamla konu. Hann lagði síð- an byssuna á borðið og beið eftir lögreglunni. Ekki er vitað hvað piltinum gekk til og ekki er vitað til þess að hann hafi átt nokkuð sökótt við kennarann. Eistneskir fjölmiðlar segja að drengurinn hafi fyrr á þessu ári viðhaft ýmis sér- kennileg ummæli um byssur og morð á samfélagsvefjum á netinu. Hann á yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsisdóm verði hann sakfelldur fyrir morð. Toomas Hendrik Ilves, forseti Eistlands, sagði í yfirlýsingu að þetta væri mikill harmleikur sem ætti sér ekkert fordæmi í Eist- landi. AFP Sorg Móðir huggar son sinn utan við skóla í Viljandi þar sem 15 ára gamall drengur skaut kennara sinn. Pilturinn notaði löglega skráða byssu sem faðir hans á. Nemandi skaut kenn- ara til bana Saksóknarar í Suður-Afríku munu áfrýja dómi yfir hlauparanum Oscar Pistorius en hann var í síðustu viku dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að verða Reevu Steenkamp, unnustu sinni, að bana. Pistorius var fundinn sekur um manndráp af gáleysi en hann skaut Steenkamp til bana í gegnum hurð á baðherbergi í íbúð þeirra. Pistorius bar að hann hefði haldið að innbrots- þjófur hefði lokað sig inni á baðher- berginu. Pistorius var einnig dæmdur í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir að skjóta úr byssu inni á veit- ingastað. Fjölskylda Pistorius hefur stað- fest að hann ætli sér ekki að áfrýja dómnum en fram hefur komið að hlauparinn muni aðeins þurfa að af- plána um tíu mánuði í fangelsi. Dómari í málinu komst að þeirri niðurstöðu að Pistorius væri ekki sekur um manndráp að yfirlögðu ráði. Talsmaður ríkissaksóknara- embættis Suður-Afríku sagði í yfir- lýsingu að þessari niðurstöðu yrði áfrýjað innan fárra daga. June Steenkamp, móðir Reevu, vildi í viðtali við breska blaðið The Times um helgina ekki upplýsa hvort fjölskylda hennar styddi að dómnum yfir Pistoriusi yrði áfrýjað. Von er á bók eftir June í nóvember þar sem hún lýsir Pistorius sem aumkunarverðum, mislyndum, yfir- gangssömum og byssuóðum manni og hafnar lýsingu hans á atburðum nóttina örlagaríku. „Það er enginn efi á því í okkar huga að eitthvað fór hræðilega úr- skeiðis, eitthvað sem varð til þess að hún faldi sig á bak við luktar dyr með tvo farsíma,“ skrifar June um dóttur sína í bókinni, sem BBC fjallar um í dag. AFP Í fangelsi Hlauparinn Oscar Pistor- ius fluttur í fangelsi í síðustu viku. Fangelsisdóminum verður áfrýjað  Pistorius byrjaður að afplána dóminn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.