Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Síða 21
Útsýnið úr kofanum var him-
neskt, að sögn Friðriks og
Nönnu. Dæmi nú hver fyrir sig.
Friðrik klappar lítilli skötu í lóninu rétt utan við hótel þeirra Nönnu.
Búið að teygja sig eftir morgunmatnum. Allt tilbúið!
Upplifun ferðamannsins skiptir heimamenn í
Frönsku Pólýnesíu miklu máli, að sögn Friðriks.
Náttúrun er í öndvegi en þó áhersla á að hlífa henni
eins og kostur er. Blóm og ávextir eru áberandi.
Hárgreiðslumeistarinn Nanna fékk hvað eftir annað
glæsilegar blómaskreytingaar í hárið, blóm voru sett
inn á herbergi alla daga og litlum blöðum af blómum
jafnvel dreift yfir rúmið. „Þetta var eitt blómahaf.“
Maturinn var síðan gjarnan ríkulega skreyttur
með blómum, eins og sjá má á myndinini hér til hlið-
ar. „Á stórum diski þar sem var alls kyns sjávarfang,
grænmeti og ávextir, betri en ég hef nokkurn tíma
smakkað, voru blómaskreytingarnar allt upp í 40 cm
háar! Þetta voru algjör listaverk.“
Friðrik segist stundum hafa velt því fyrir sér, ekki
síst á morgnana, hve munurinn sé mikill á ávöxtum
og grænmeti á svona stað eða því sem er í boði hér
norður frá. „Ég hafði aldrei fyrr smakkað svona
góða banana, kiwi, mangó og hvað þetta nú allt var.
Djúsinn á morgnana var til dæmis
kreistur úr mangó strax eftir að það
var tínt af trénu.“
Fegurðin ríkir þarna suð-
ur frá, í smáu sem
stóru. Friðrik nefn-
ir dæmi: „Á borði á
veröndinni okkar var
gler og í gegnum það gát-
um við horft ofan í
sjóinn. Þar var
upplýst kóralrif og
fiskar í öllum hugs-
anlegum litum syntu
um. Alveg mögnuð
sjón.“
Friðrik segist ekki hafa
orðið var við fátækt á
Frönsku Pólýnesíu þótt
fólk virðist almennt
heldur ekki vera sér-
staklega efnað. „Þarna
er ágætis skóla- og
heilbrigðiskerfi og allir
hafa í sig og á og fólk
leit almennt mjög vel
út. Allir geta veitt sér
fisk, tínt grænmeti,
ávexti og hnetur og selt
á markaðnum.“
Töluvert rignir í Frönsku Pólýnesíu í
sumrin, þegar vetur ríkir hér hjá
okkur, og ekki er mikið um ferða-
menn á þeim tíma. En tíminn þegar
Friðrik og Nanna dvöldu þarna
suður frá, seinni hluti sept-
ember og fram í október, var
yndislegur. Lítið dæmi: „Það
var stórkostlegt að synda við
kóralrifin. Þar sem flæddi
inn í lónið var hægt að
henda sér út í strauminn
með snorkgræjurnar og
fljóta þar inn ásamt fisk-
um í öllum hugsanlegum
litum. Alveg hreint stór-
koslegt.“
Þar sem fegurðin ríkir
9.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
570 8600 / 472 1111
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Bókaðu snemma
til að tryggja
þér pláss
DANMÖ
RK
2 fullor
ðnir
með fól
ksbíl
Netverð
, frá kr.
74.500á mann
FÆREYJAR2 fullorðnirmeð fólksbíl
Netverð, frá kr.34.500á mann
Árið 2014 var uppbókað í flestar ferðir með
Norrænu vegna mikillar eftirspurnar. Til að
tryggja sér pláss þá er mikilvægt að bóka
snemma og tryggja sér besta fáanlega verð.
Verð og siglingarátælun er komin á heimasíðu
okkar, www.smyrilline.is eða hringja í síma
5708600 og 4721111.