Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Side 24
Hópurinn saman kom-
inn á gólfæfingu í vik-
unni og er búinn að
stilla sér glæsilega upp.
H
ópfimleikar voru í sviðsljósinu á
Evrópumótinu sem haldið var í
Laugardalshöll um miðjan síðasta
mánuð. Íslenska kvennaliðið sem
hefur verið sigursælt síðustu ár náði þar
silfrinu en Svíar sigruðu naumlega. Athygli
vakti að ekkert íslenskt karlalið var mætt til
leiks en blandað lið tók þátt. Nú verður
breyting á þessu en Bjarni Gíslason er einn
fjögurra þjálfara nýs karlaliðs í hópfimleikum
sem stefnir hátt. „Eftir Evrópumótið nálg-
uðust nokkrir strákar mig og spurðu hvað ég
ætlaði að gera,“ segir Bjarni, sem hætti með
kvennaliðið eftir keppnina. Hann varð var við
mjög mikinn áhuga. „Þessi orka sem ég er
búinn að vera að eyða síðustu ár í svona stór
verkefni er ennþá til staðar, mig langaði bara
til að breyta til. Ég talaði við fleiri stráka og
spurði hvernig þeim litist á að við reyndum
að starta einhverju og það var aldeilis áhugi
fyrir því,“ segir Bjarni en í liðinu eru meðal
annars strákar sem voru hættir en vildu
byrja aftur til að taka þátt í þessu verkefni.
Liðið æfir í Gerplu og er að megni til skip-
að fimleikamönnum úr félaginu. Hann segir
að nokkrir strákar úr Ármanni séu búnir að
nálgast hann og einn sé byrjaður. Markmiðið
er að safna saman bestu strákum landsins í
einu liði.
Stefna á Norðurlanda- og Evrópumót
Þarna er ekki tjaldað til einnar nætur. Stefn-
an er tekin á Norðurlandamótið 2015 og Evr-
ópumótið 2016. Bjarni hefur sjálfur víðtæka
reynslu bæði af keppnum á stórmótum og
þjálfun en hann hefur raðað að sér titlum
með kvennaliðinu. Þegar blaðamaður ræddi
við hann í vikunni var liðið aðeins búið að æfa
í viku. Æft er fimm sinnum í viku í þrjá
klukkutíma í senn. Æfingarnar eru annars
lend lið vita af því að þeir væru á leiðinni og
ætli sér stóra hluti.
„Fyrir mér er þetta tveggja ára pró-
gramm. Við ætlum að reyna að fá sem flesta
af þessum strákum til að fara á Evrópumótið
2016. Fyrst þarf áhuginn að koma og svo
þurfa þeir að finna að þeim sé að fara fram.
Það eru ótrúlegir hlutir búnir að gerast á
einni viku.“ Á fyrstu æfingunni voru 16 strák-
ar. „Það hafa aldrei mætt svona margir.
Núna eru þeir orðnir 20 talsins,“ segir Bjarni
en þeir hafa þó ekki enn allir mætt í einu.
„Þetta eru þeir sem eru búnir að segjast fara
alla leið inn í verkefnið.“
Fimleikafólk getur jafnan stundað hópfim-
leika lengur en áhaldafimleika en í síðasta
landsliði kvenna voru tvær af stelpunum 27
ára gamlar. Strákarnir í hópnum eru á breiðu
aldursbili, 16 ára til 36 ára. „Sá elsti Guðjón
Kristinn Ólafsson er úr frjálsum íþróttum, fór
þaðan inn í fullorðinsfimleika og byrjaði fyrir
tveimur árum að æfa. Hann gerði núna á æf-
ingu í fyrsta skipti þrefalt heljarstökk með
hálfri skrúfu sem er mjög erfitt stökk.“
Margir koma hinsvegar úr áhaldafim-
leikum. „Í áhaldafimleikum ert þú að vinna
sem einstaklingur að markmiði og í keppnum
er öll ábyrgðin hjá þér. Í hópíþróttinni eru
allir að stefna að sama markmiðinu og þá má
enginn slaka á, því það á til að smita út frá
sér. Ef þú gefur ekki allt þitt þá er hópurinn
að tapa á því.“ Hann segir þurfa að vinna í
þessu hugarfari strax og krakkarnir skipti yf-
ir í hópfimleika. „Núna er orðið meira um
það að krakkar velji hópfimleika um leið og
þeir eru búnir að fara í gegnum ákveðið
grunnstig. Það er þróunin í Gerplu,“ segir
Bjarni.
„Það er ennþá ekki nógu sterkur grunnur
og ekki til nógu mörg unglingaklúbblið hjá
strákunum. Það er líka markmiðið með að
starta þessu núna og að hafa þetta stórt að
eftir þessi tvö ár fari að koma upp fjórða og
þriðja flokks lið hjá strákunum. Það myndi
mér þykja mjög vænt um.“
Hann segir það hafa gert „allt fyrir íþrótt-
ina“ að halda Evrópumótið hérlendis. Hann
segir líka að þetta mót hafi verið miklu flott-
ara en mótin sem hann hafi tekið þátt í. „Ég
er búinn að keppa sjálfur á tveimur mótum
og fara á þrjú mót með keppendur og þetta
er langflottasta mótið.“
Auk þess að þjálfa fimleika er Bjarni á
öðru ári í BS-námi í íþróttafræði við Háskól-
ann í Reykjavík. Hann var í fimleikum í eitt
ár sem barn um 10-11 ára. „Ég var einn af
þessum krökkum sem voru úti um allt.“
Hann endaði í frjálsum íþróttum og var að
lyfta og fór þaðan í Gerplu í fullorð-
insfimleika og varð ofurseldur íþróttinni.
Hann fór síðan að þjálfa fyrir hálfgerða til-
viljun eftir að hafa fótbrotnað og þá varð ekki
aftur snúið.
Vill að þjálfunin verði ókeypis
Bjarni stefnir hátt með nýja karlaliðið og leit-
ar nú að styrktaraðilum. „Eins og í sumum
íþróttum, aðallega boltaíþróttum, þegar þú
ert kominn upp í meistaraflokk og jafnvel
fyrr, þarftu ekki að borga til að æfa. Hjá
okkur þurfa allir meistaraflokkar og þar með
þetta lið að borga fyrir æfingar. Markmiðið
hjá okkur er að útiloka þennan kostn-
aðarhluta til að skapa ennþá betra æfingaum-
hverfi og hvetja til þátttöku.“
Þeir sem vilja sjá meira af liðinu er bent á
á Instagram þar sem liðið er skráð undir
@gerplamensteam og ennfremur er mynd-
band og fleira á fésbókarsíðu Fimleika-
sambands Íslands.
EVRÓPUMÓTIÐ STÓREFLDI ÁHUGA Á HÓPFIMLEIKUM HÉRLENDIS
Nýtt karlalið í hópfimleikum
BJARNI GÍSLASON, FYRRVERANDI ÞJÁLFARI ÍSLENSKA KVENNALANDSLIÐSINS Í HÓPFIMLEIKUM, LEIÐIR GLÆNÝTT KARLALIÐ Í HÓPFIMLEIKUM SEM STEFNIR
HÁTT. ÍSLENSKT KARLALIÐ TÓK EKKI ÞÁTT Í EM Í LAUGARDALSHÖLLINNI EN ÞETTA LIÐ STEFNIR Á AÐ LÁTA TIL SÍN TAKA Á KOMANDI MÓTUM.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Ljósmyndir: Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is
Bjarni Gíslason er sigursæll þjálfari.
vegar stökkæfingar og hins vegar blandaðar
æfingar af gólfæfingum og stökki. Það eru
þrír stökkþjálfarar að þjálfa liðið en auk
Bjarna eru það eru Þórarinn Reynir Val-
geirsson og Kristinn Guðlaugsson en Yrsa Ív-
arsdóttir er dansþjálfari. Til viðbótar er ein
af þessum fimm æfingum svokölluð „power
tumbling“-stökkæfing en Daninn Daniel Bay
Jensen sér um hana. Það er í raun sérstök
íþrótt, sem hann stefnir á að innleiða hér-
lendis og hefur verið vinsæl í Danmörku.
Hugmyndin er síðan að bæta inn ólympískum
lyftingum þegar líður á og mun Lárus Páll
Pálsson formaður Lyftingasambands Íslands
sjá um þjálfunina.
Hópfimleikarnir hafa verið sterkastir í
Gerplu og þá aðallega hjá stelpunum, karlalið
hafa þó keppt nokkrum sinnum á síðustu ár-
um en ekki með sama undirbúningi, framtíð-
arsýn og liðsstyrk og nú. „Markmiðið okkar
núna er að byggja upp flott umhverfi til að
æfa í og við erum að leggja mikinn metnað í
þennan ramma,“ segir hann en liðið bjó til
myndband og setti á YouTube af fyrstu æf-
ingunni. Það var á ensku til þess að láta er-
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.11. 2014
Heilsa og hreyfing
Brasilíuhnetur eru mjög næringarríkar og því gott og hollt snarl. Það er samt mikilvægt að
borða ekki mikið af þeim því þær eru sérstaklega fituríkar. Þær innihalda mikið af seleníum
sem er gott fyrir skjaldkirtilinn. Þá er nóg að borða 3-4 á dag. Brasilíuhnetur eru einar af þess-
um hnetum sem eru alls ekki hnetur heldur fræ rétt eins og furuhnetur.
Hollt snarl