Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Qupperneq 38
uðu á ferð sinni um mannslíkam-
ann. „Við spyrjum þær: Hey, hvað
sástu? Fannstu krabbamein? Sástu
eitthvað sem gefur hjartaáfall til
kynna? Sástu of mikið natríum?“
Arðbær markaður
Nanóeindirnar
eru nýjasta
G
oogle vinnur nú að því að
þróa pillu úr nanóflög-
um sem getur greint
krabbamein, yfirvofandi
hjartaáföll og aðra kvilla áður en
þeir verða að vandamálum. Hug-
myndin er að pillan verði segul-
mögnuð og jafnframt að hún verði
um 10.000 sinnum minni en breidd
hárs á höfði.
Pillan mun innihalda mótefni eða
prótín sem geta greint tilteknar
sameindir innan mannslíkamans, þá
sérstaklega þær sem gefa til kynna
krabbamein á upphafsstigum eða
yfirvofandi hjartaáfall. „Hugmyndin
er í grunninn frekar einföld; þú
gleypir bara pilluna með nanóflög-
unum. Á henni verða svo tiltekin
prótín eða mótefni sem geta fundið
aðrar sameindir,“ sagði Andrew
Conrad, yfirmaður hjá Google í
rannsóknardeild X, á ráðstefnu í
Kaliforníu í vikunni. „Pillan ferðast
um líkama þinn og vegna þess að
hún verður segulmögnuð verður
alltaf hægt að kalla hana fram á til-
tekna staði og spyrja hana hrein-
lega hvað hún sá.“
Lausnir sem minna á
vísindaskáldskap
Google X er að hluta til leynileg
deild innan fyrirtækisins þar sem
leitast er við að tífalda möguleika
tækninnar og finna lausnir sem
minna á vísindaskáldskap við
vandamálum. Deildin var sett á
laggir árið 2010 þegar Google hóf
að þróa sjálfakandi bifreiðir.
Conrad notaði jafnframt þá
myndlíkingu að pillurnar yrðu ekki
ólíkar því að senda þúsundir lækna
inn á meðal fólksins í stórri borg til
að kanna hvað færi fram innra með
því. Núverandi ástand væri fremur
líkt og að einn læknir yrði sendur í
þyrlu til að skima yfir heila borg til
að reyna að átta sig á því hvað væri
að hrjá fólkið.
„Ef þú skoðar á þér úlnliðinn þá
sérðu greinilega æðar á yfirborðinu.
Aðeins með því að setja segul þar
geturðu fangað nanóeindirnar.“
Conrad bætti við að lítið tæki á
borð við snjallúr væri hægt
að nota til þess að lesa
úr þeim upplýsingum
sem eindirnar öfl-
framtak Google á hinum arðbæra
heilsumarkaði, sem getur numið
10% af hagkerfum þróaðra ríkja.
Svo dæmi sé tekið fara um 100
milljarðar punda í breska heilbrigð-
iskerfið á ári hverju.
Framtak Google byggist á þeirri
viðleitni að læknisfræði skuli vera
forvirk og beita eigi tækninýjungum
til þess að greina vísbendingar um
heilsuvandamál áður en
þau raungerast. Hefð-
bundin læknisfræði hef-
ur fremur byggst á því
að bregðast við til-
teknum vandamálum
þegar þau eru kom-
in fram og sjúkling-
urinn hefur séð
ástæðu til að bóka
tíma hjá lækni
vegna einkenna sem
hann finnur fyrir.
Conrad tók jafnframt sérstaklega
fram að Google myndi ekki halda
utan um framkvæmdina þegar
tæknin færi í almenna notkun. Stór-
fyrirtækið myndi því ekki hafa að-
gang að þeim upplýsingum sem
nanóeindirnar öfluðu. Það yrðu
læknar sjúklinga, spítalar og aðrar
heilbrgðisstofnanir sem myndu sjá
um að hrinda tækninni í fram-
kvæmd.
Vinnan er ennþá á upphafs-
stigum. Google veit ekki ennþá
hversu margar nanóeindir þarf til
þess að gera kerfið skilvirkt og
verður jafnframt að húða pillurnar
á tiltekinn hátt svo þær geti bund-
ist frumum og greint vandamál.
Áform fyrirtækisins á þessu sviði
hafa verið gerð opinber í ljósi þess
að Google leitar nú samstarfsfélaga
til þess að halda framrás tækninnar
áfram.
Google-pilla
greini kvilla
ÝMIS VERKEFNI NETRISANS GOOGLE MINNA
Á VÍSINDASKÁLDSKAP. NÝJASTA HUGMYNDIN
ÞAR Á BÆ ER AÐ HANNA NANÓFLÖGUPILLU SEM GETUR
FERÐAST UM MANNSLÍKAMANN OG GREINT KVILLA
ÁÐUR EN ÞEIR VERÐA AÐ VANDAMÁLUM.
Halldór A. Ásgeirsson haa@mbl.is
Google sér fyrir sér að spítalar og hjúkrunarfólk muni hafa yfirumsjón með framkvæmd þess að greina upplýsingarnar.
Morgunblaðið/Kristinn
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.11. 2014
Græjur og tækni
Samgöngukerfi Lundúna er þekkt fyrir umfang sitt
og skilvirkni. Fleiri og fleiri strætisvagnar í borg-
inni eru nú búnir hybrid-vélum en til stendur að
gera þá að fullu rafknúna. Einn möguleiki sem nú
er til skoðunar er að hægt verði að hlaða vagnana
þráðlaust á sérstökum snertiflötum við enda-
stöðvar þeirra á svipaðan hátt og rafmagns-
tannburstar eru hlaðnir.
Strætisvagnar hlaðnir þráðlaust
Tæknidagur fjölskyldunnar verður
haldinn í Verkmenntaskóla Aust-
urlands laugardaginn 8. nóv-
ember. Í ár markar þessi dagur
tímamót í menntunar- og nýsköp-
unarsögu Austurlands því „Fab
Lab Austurland“ – stafræn
smiðja með tækjum og tólum til
að búa til alla skapaða hluti –
verður formlega opnuð.
Þetta er í annað sinn sem
Austurbrú og Verkmenntaskóli
Austurlands taka höndum saman
og skipuleggja dag sem vekur at-
hygli á fjölbreyttum, heillandi og
áhugaverðum viðfangsefnum í iðn-
aði, tækni og raunvísindum í
fjórðungnum.
Í tilkynningu segir að Tækni-
dagurinn í fyrravor hafi tekist
með eindæmum vel en um fimm
hundruð manns heimsóttu skólann
og óhætt að segja að mörgum
hafi komið á óvart hversu spenn-
andi starfstækifæri eru í boði
fyrir ungt fólk sem ákveður að
leggja fyrir sig iðn-, tækni- og/
eða vísindanám. Eitt meginmark-
miðið með Tæknidegi fjölskyld-
unnar er einmitt að vekja athygli
á mikilvægi slíkrar menntunar
fyrir samfélagið.
Tæknidagurinn á Austurlandi
STAFRÆN SMIÐJA MEÐ
TÆKJUM OG TÓLUM TIL AÐ
BÚA TIL ALLA SKAPAÐA
HLUTI SETT Á LAGGIR.
Ungir sem aldnir geta kynnt sér margvíslegar tækninýjungar fyrir austan.
Örbylgjuofninn er
staðalbúnaður á
mörgum heimilum og
hefur verið um hríð.
Flestir kannast við
notalegt suð í slíkum
ofni á meðan vaxandi
popppoki tekur á sig
mynd á hringskífunni
í miðju hans. Þessi
merka uppfinning leit hins
vegar dagsins ljós fyrir slysni. Árið
1945 var Percy Spencer að vinna að
þróun radartækni fyrir bandaríska
varnarmálaráðuneytið þegar hann
veitti því athygli að súkkulaðistykki í
vasa hans hafði bráðnað. Hann hóf
þá að gera ýmsar tilraunir, þar á
meðal með poppmaís, og eins og
Kaninn segir: the rest is history.
Af öðrum merkum uppfinningum
sem óvart komu fram má nefna hinn
stórmerka Post-It-miða. Skapari
hans, Spencer Silver, hafði ætlað sér
að skapa ofursterkt lím en endaði á
að búa til veikt skammtímalím. Í
fyrstu taldi hann sig hafa uppgötvað
„lausn án vandamáls“.
ÓVILJANDI UPPFINNINGAR
Fann óvart
upp örbylgjuofninn
Sjálfkeyrandi bílar eru hluti
af framtíðarsýn Google.