Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.11.2014, Blaðsíða 43
GK Reykjavík
38.900 kr.
Töff leðurbuxur frá
merkinu Six Ames.
GS Skór
21.995 kr.
Svartir strigaskór frá
New Balance.
Vila
8.990 kr.
Kolsvartar leggings sem
hægt er að para saman
við nánast allt.
Tískudrottningin og rit-
stjóri CR fashion Book
Carine Roitfeld klæðist
gjarnan svörtu.
Fallegur kjóll
frá Isabel Mar-
ant veturinn
2014/2015.
9.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
V
ík Prjónsdóttir, sem samanstendur af þeim, Brynhildi Páls-
dóttur, Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur og Þuríði Rós Sig-
urþórsdóttur, hefur síðastliðin 10 ár framleitt vörur úr ís-
lenskri ull og með íslenskum framleiðendum og leggur
ríka áherslu á gæði vörunnar og framleiðslu.
Nú hefur Vík hafið framleiðslu á húfum úr 100% enskri
ull og fer framleiðslan fram í lítilli fjölskyldurekinni verk-
smiðju í Thüringen í Þýskalandi.
„Ég heimsótti litla verksmiðju í Thüringen í Þýska-
landi, sem hafði verið starfrækt frá árinu 1871 og
hefur þróast vel með tækninni. Þau eru lengi búin
að framleiða svokallaðar sjómannapeysur og húfur
og framleiðslan er virkilega vönduð. Þarna kom
akkúrat tækifærið til þess að prufa að framleiða er-
lendis. Við tókum því þessar húfur sem þau höfðu
verið að framleiða lengi og breyttum þeim aðeins
og gerðum þær að okkar,“ útskýrir Brynhildur Pálsdóttir.
Brynhildur segir að fólk sem býr svona norðanlega eins og á Ís-
landi noti ullina allan ársins hring.
„Við erum stundum spurðar að því hvort að við sérum að fara að
gera sumarvörur en svona ullarhúfa er alveg eins góð þegar þú ert
að ferðast um landið á sumrin eins og á veturna. Við þurfum
alltaf húfu. Okkur langaði því að leika okkur með hugtakið
„Artic Sun Hat“ því þetta er í raun sólhatturinn fyrir norð-
urhjara veraldar.“
Hugmyndin kviknaði þegar hönnuðirnir fóru að velta
fyrir sér norðrinu og litunum í sólarlaginu.
„Við erum í raun að gera vetrarflík að sumarflík.
Minna okkur á sólina, hitann og hlýjuna á dimmasta
tímanum. Við erum að færa sólina aftur yfir í myrkr-
ið,“ bætir Brynhildur við að lokum.
Húfurnar fást í verslununum Spark, Mýrinni og
Aurum.
VINNA MEÐ LITINA Í SÓLARLAGINU
Sólhattur
fyrir norður-
hjara veraldar
ARTCTIC SUN HAT ERU NÝJAR, LITRÍKAR
HÚFUR FRÁ HÖNNUNARÞRÍEYKINU
VÍK PRJÓNSDÓTTUR.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Vík Prjónsdóttur skipa þær Brynhildur Pálsdóttir, Guð-
finna Mjöll Magnúsdóttir og Þuríður Rós Sigurþórsdóttir.
Morgunblaðið/Ernir
Húfurnar eru
innblásnar af lit-
um sólarlagsins.