Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Síða 2
Eruð þið spenntar fyrir jólasýningunni?
Heldur betur. Undirbúningur er hafinn fyrir löngu
svo það er kærkomið að fleiri en við séu loks komnir í
jólaskap.
Hvað er það skemmtilegasta við jólin?
Vá það er svo margt. Hrefnu finnst aðdragandinn
bestur. Aðventan, því þá ríkir svo einstök stemning.
Fólk er svo opið og brosandi kátt. Hefðirnar eru svo
sterkar og gaman að taka upp og skreyta með hlut-
um sem fylgja margar dýrmætar minningar. Svo er
Hrefna líka fædd í jólamánuðinum þannig að hún er
svaka jólastelpa. Hjá Lindu og líka Hrefnu hefur desem-
ber verið mikill vinnumánuður en þá fáum við að hitta enda-
laust frábæra krakka og fjölskyldur þeirra. Það skemmtileg-
asta við jólamánuðinn er að eiga börn og upplifa jólin með
þeim. Strákarnir mínir eru miklir jólakarlar og elska jólasvein-
ana og smákökurnar hennar ömmu. Linda er líka mikil áramóta-
stelpa fædd á nýársdag þannig að það er eintóm gleði framundan.
Mega allir krakkar á öllum aldri koma og sjá
Skoppu og Skrítlu?
Svo sannarlega er allur aldur velkominn. Við fáum mikið af eldri systk-
inum og þau skemmta sér ekki síður en þau yngri. En þannig eru ein-
mitt jólin. Kærleikur og gleði, og þá skiptir aldur ekki máli. Svo finnst
þeim eldri líka svo sérstaklega gaman að sjá öll börnin sem eru að leika í
sýningunni. En það eru 25 dansandi, leikandi og syngjandi börn sem
skipta með sér hlutverkum í sýningunni.
Lofið þið frábærri sýningu í ár?
Ó já, við lofum því að senda leikhúsgesti út með jólagleði í hjarta. Þessi
sýning sló alveg í gegn í fyrra. Sýndum 39 sýningar fyrir fullu húsi á ein-
um og hálfum mánuði. Við höfum þá trú að litlu vinir okkar og vinkonur
vilji koma aftur og upplifa leikhústöfrana á aðventunni. Vonandi að það
verði ómissandi þáttur í jólaundirbúningnum.
Hvað er svo á döfinni hjá Skoppu og Skrítlu?
Við erum nýorðnar 10 ára. Héldum upp á það með pomp og prakt í
Húsdýragarðinum sl. sumar. Veglegt og dýrmætt ár að baki. Við von-
umst til að Skoppa og Skrítla eigi eftir að lenda í fleiri ævintýrum á
komandi ári hérlendis og erlendis.
Morgunblaðið/Golli
Skemmtileg-
asta við jóla-
mánuðinn
eru börnin
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.11. 2014
Svar: Já, ég kveiki á aðventukerti og ein-
hvern tímann á aðventunni förum við fjöl-
skyldan í leikhús. Ég útbý alltaf nýjan krans
fyrir hverja aðventu.
Salóme Halldórsdóttir.
Svar: Já, ég kveiki á kerti fyrsta í aðventu og
er alltaf með sama kransinn og er búinn að
vera með hann í mörg, mörg ár.
Óskar Gunnar Óskarsson.
Svar: Ég er með kerti allt haustið en ég
kveiki samt líka alltaf á sérstöku aðventu-
kerti. Ég er með krans úr járni sem ég skreyti
samt alltaf upp á nýtt.
María Birna Þórarinsdóttir.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Svar: Já, ég kveiki á aðventukerti. Í grunninn
er kransinn sá sami, sama grindin, en ég
skreyti hann alltaf á nýjan hátt. Í ár er hann
rauður og hvítur.
Edda María Kjartansdóttir.
Morgunblaðið/Þórður
SPURNING DAGSINS KVEIKIR ÞÚ Á AÐVENTUKERTI UM HELGINA?
Starf dýralæknisins er mun
fjölbreyttara en blasir við í
fyrstu. Þetta segja dýra-
læknarnir Charlotta
Oddsdóttir og Guðbjörg
Þorvarðardóttir sem sitja í
stjórn Dýralæknafélags Ís-
lands. 52
Í BLAÐINU
Forsíðumyndina tók
Golli
Aðalheiður S. Ey-
steinsdóttir og Jón Lax-
dal hafa í áratug stundað
myndlistarbúskap í
Freyjulundi, gömlu félags-
heimili skammt norðan
Akureyrar. Þar er hefð
fyrir markaði á aðventu
þar sem jólakötturinn er í
aðalhlutverki. Landið
og miðin 12
Baltasar Kormákur er með af-
brigðum skarpur og samferða-
fólk hans þarf að hafa bein í
nefinu. Þetta segir Gunn-
laugur stjörnuspek-
ingur í stjörnukorti vik-
unnar þar sem farið er
yfir vitsmuni, grunneðli
og tilfinningalíf leikstjór-
ans og honum veitt góð
ráð inn í framtíðina.
Stjörnukortið 44
Leikkonan Maríanna Clara
Lúthersdóttir heldur mikið
upp á sænsku skáldkonuna
Astrid Lindgren og
hennar verk. Bókin Á Saltk-
ráku er í sérstökum metum
hjá leikkonunni sem og sag-
an af sjálfri Ronju ræningja-
dóttur. Sem krakki las hún
sínar uppáhaldsbækur þar
til þær duttu í sundur.
Bækur 58
Hrefna B. Hallgrímsdóttir og Linda Ásgeirsdóttir, gjarnan þekktar sem Skoppa
og Skrítla, hafa í nógu að snúast þessa dagana en jólasýning Skoppu og Skrítlu
hefst í Borgarleikhúsinu nú um helgina. Þær hafa skemmt og glatt börn um allt
land og víðar um heim í áratug en í sumar fögnuðu þær 10 ára afmæli sínu.
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
SITUR FYRIR SVÖRUM