Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.11. 2014 ÍANAMI OWINDH afr þr æn rs koso Afrí hófu NNamibíu. o ngarúnaðvið indverskan b taðurjaeir segagnrýnt hann, þ vindli.pír sem h aðru,2 milljónir man völdnarflokkurinn Sw um ogálfstæðistökunni G orseti.rraforsæt ye PH r þegar m.má þ TYRKLAND ANKARA Frans p opinberri heimsókn ogyrkland fara til Istanbúl ogandinu. Mun hann m.a.stuðla að betri s ,rklandii helsta leiðtoga Bartolómeus patríarka rúnaðarkirkjunnar.TyrklandRéttt 80 milljónum þeirrar trúar,ú eru aðeins 120 þúsund af allsndmestueitt sinn ava en n með ýmsum hætti, t.d, er reyntni sé leyfð er þrengt að henniÞóteru nh t krist a. E plinni að hlutski ti kristinnað páfi mun einkum beina athygljósað t er a ðunum í Sýrlandi austu um ofsóknum og hafa margim þar sem þeir sæta nú hrikalegðog í rlöndu erið myrtir. KIN nnkað íhefur mi onborginni ri þí Missou a ankæra ekki hvítákveðið var nýlega að unglilögreglumann fyrir að Michael Brown manninn. Lögre gjahafa ógnað sér en ma málið dæm ugleði.i k þá Í ljós kom óði Browns. V yrir sér hvort þ ha áhrif á ran lögregluma ðbu g Líbíu, var m ptavefjum um ögleg sóknum. E ynsamsæriskenningar e síðhafi verið að búa til á hað hann hafi komist y Brotamaðu isrgsrinn hafi HEIMURINN Gaza er á stærð við Man- hattan-eyju en íbúarnir um 1,8 milljónir, spildan er eitt af þéttbýlustu svæðum heims. Hamas-samtökin náðu þar öllum völdum 2006. Þau komu sér upp vel skipulögðu tollakerfi til að fá tekjur af umferðinni um smyglgöngin. Allir þurfa að sæta eftirliti, vörubílar eru vigtaðir og greiða skatta og tolla. Vitað er að sumir embættismenn Hamas hafa hagnast per- sónulega á tollum og einok- un, þeir búa ríkmannlega. Enn gróðavæn- legra er þó að „tolla“ fé sem berst frá ríkum arabalöndum. Atvinnuleysið er um 40% ogyfir 80% íbúa á Gaza-spildunni hjara vegna margvíslegrar mannúðaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna og fleiri aðila. Stærstu framlögin eru frá Evrópu- sambandinu, Bandaríkjunum og Sameinuðu þjóðunum. En ástandið er slæmt á svæðinu og eins og til að strá salti í sárin er nú neyðarástand vegna flóða í kjölfar rigninga, hundruð manna hafa þurft að yfir- gefa heimili sín. Fyrir var nær fjórði hver Gaza- búi búinn að missa heimili sitt og bjó í bráðabirgðabúðum vegna stríðsins mannskæða milli Ísraela og Hamas-samtakanna í sumar. Víða er einnig skortur á rafmagni og upphitun. Fyrir nokkrum árum var í gangi mikil uppbygging á Gaza og hvar- vetna var verið að byggja eða gera við mannvirki sem skemmst höfðu í síðasta stríði við Ísraela. Hugur var í mönnum, steypuhrærivélar rumdu sinn hrjúfa söng, gert var við gömul hótel og ný reist, mánaðarlega spruttu upp nýjar verslanamið- stöðvar. Mikið var flutt af kvikfé og kjöti, mjólkurafurðum, eldsneyti, lyfjum og öðrum brýnum nauðsynj- um frá Egyptalandi auk þess sem Gaza-búar seldu kaupmönnum handan ganganna skelfisk og fleiri afurðir. Ísraelar leyfa Gaza-mönnum aðeins að selja lítilræði af blómum og grænmeti til landsins, þeir tor- tryggja allt sem berst frá yfir- ráðasvæði Hamas. Þeir sjá sem fyrr spildunni að jafnaði fyrir neyslu- vatni, rafmagni og fjarskiptaþjón- ustu en hafa lengi takmarkað mjög allan innflutning á efni til uppbygg- ingar mannvirkja og gera það nú. Þeir óttast að sementið, steypujárn- ið og annað efni verði notað til að styrkja hernaðarvígbúnað Hamas og tengdra samtaka vígamanna. Og óttinn er ekki að ástæðulaus. Hamas kom sér upp geysilega miklu og háþróuðu neti jarðganga sem notuð voru til að smygla varn- ingi, peningum og vopnum frá Egyptalandi. En einnig var ætlunin að nýta göng sem lágu að landa- mærum Ísraels til að gera árásir á byggðir Ísraela og jafnvel hand- sama hermenn sem nota mætti sem gísla. Ísraelum tókst að granda stórum hluta þessara jarðganga í sumar með loftárásum og nú hefur ný stjórn í Egyptalandi, andvíg Ha- mas, frá haustinu 2013 lokað 1.600 göngum sem lágu að landamærum Egypta á Sínaí-skaga, einkum við borgina Rafah. Reyndar er fullyrt á Gaza að búið sé að loka öllum göngunum en aðrir efast um það og segja Hamas-menn þegar hafa grafið önnur með leynd eða séu að grafa. Herforingjarnir í Kaíró berjast nú við 10-15 hópa vígamanna á Sínaí og vitað er að sumir þeirra tengjast Hamas nán- um böndum. Tugir egypskra her- manna hafa fallið. Egyptar hafa nú komið upp 200 metra breiðu belti, einskismanns- landi, við landamærin. Abdel Fattah el-Sisi forseti sér enga ástæðu til að hjálpa ofsatrúarmönnunum í Ha- mas. Sumir fréttaskýrendur segja reyndar að ástæðan fyrir því að Ha- mas-menn byrjuðu að láta vígahópa sína skjóta flugskeytum á Ísrael í sumar, vel vitandi að þeir myndu svara með loftárásum, hafi verið ör- vænting. Þeir hafi ætlað að koma af stað nýju stríði við Ísrael og reyna að virkja samúð almennings í araba- löndunum, þvinga Sisi til að opna göngin á ný. Nær ekkert sement Það mistókst. Egyptar opn- uðu að vísu í vikunni landa- mærastöð við Rafah en afleið- ingin af lokun leynilegu ganganna er að nú berst sáralítið af bygg- ingarefni og fleiri nauðsynjum til Gaza og verðlag á því sem fæst hefur margfaldast. Að sögn SÞ skemmdust eða eyðilögðust um 20.000 íbúðir eða nær 6% af íbúðar- húsnæði á Gaza í loftárásum Ísr- aela. Þegar er búið að gernýta nær allan grjótmulning sem tekinn var úr rústum og aðeins hafa borist um 1.300 tonn af sementi til svæðisins frá því að stríðinu lauk í lok ágúst. „Þegar göngin voru opin var hægt að kaupa tonn af sementi á 380 shekela [um 12.300 ísl. kr.] á svarta markaðnum,“ segir Suheil Tuman, sem selur byggingarefni á Gaza. „Núna kostar það 3.800 she- kela.“ Fleira hefur hækkað í verði eða horfið af markaði, farsímar hafa hækkað verulega vegna minna framboðs, að sögn kaupmanna. Áð- ur var nær allt verðlag á spildunni mun lægra en á Vesturbakkanum. Að vísu er nokkuð keypt frá Ísr- ael en þær vörur eru mun dýrari en egypsk framleiðsla. Gaza-búar hafa sjaldan haft það jafn slæmt og erfitt að sjá hvað muni verða til að létta þeim lífsbar- áttuna. Þeir eru enn utangarðs, eins og Hamas, enn í úlfakreppu milli ísraelska hersins og hryðjuverka- samtaka. Bak við rimla vígamanna Hamas GAZA-BÚAR VORU FYRIR NOKKRUM ÁRUM FARNIR AÐ VONA AÐ HLUTSKIPTI ÞEIRRA VÆRI AÐ LAGAST. EN NÚ ERU ÞEIR Í EINANGRUNARBÚÐUM SEM HVORKI ÍSRAELAR NÉ EGYPTAR VILJA OPNA – VEGNA STEFNU HAMAS. GRÓÐI Í GÖNGUNUM Halaa Al-Zaza, palestínsk kona, við illa farið hús sitt í Gaza-borg í vikunni, lítil stúlka horfir út um gat á húsinu. Slæmt vetrarveður með mikilli rigningu og roki hefur enn aukið á vanda íbúanna á Gaza síðustu daga. AFP * Palestína er okkar frá ánni [Jórdan] að hafinu og frásuðri til norðurs. Við munum aldrei láta af hendi fer-þumlung af landi. Khalid Mishal, leiðtogi Hamas-samtakanna. Alþjóðamál KRISTJÁN JÓNSSON kjon@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.