Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.11. 2014
* Ég var orðinn landsliðsmaður í lygi áður enég var kominn í úrvalslið fíklanna.Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens í pistli í vikunni.Landið og miðinSKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
Þetta byrjaði allt með jólakett-inum. Það var í Listagilinuá Akureyri árið 2000, þegar
Aðalheiður hélt fyrsta jólamarkað-
inn í Kompunni; litlu herbergi, sem
var gallerí inni í vinnustofunni
hennar. Hugmyndin þróaðist og
síðan fjölskyldan flutti í Freyju-
lund í Hörgársveit hefur alltaf ver-
ið opið hús um helgar á aðvent-
unni; heitt á könnunni og listaverk
til sölu.
„Ég byrjaði á þessu vegna
áskorana frá vinum og velunn-
urum, fólki sem vildi hafa mögu-
leika á að kaupa lítil listaverk af
okkur til jólagjafa,“ segir Aðal-
heiður þegar Morgunblaðið kom í
heimsókn í Freyjulund á dimm-
bláum morgni í vikunni.
Hún var nýgengin til liðs við
Dieter Roth-akademíuna, samtök
listamanna sem stofnuð voru til
minningar um þann svissneska
listamann og Íslandsvin, „til að
halda í heiðri hugsjónir hans og
hugmyndir um listina. Hann hafði
þá skoðun að allir listamenn ættu
að gera lítil verk svo að allur al-
menningur hefði tök á því að
kaupa list; ekki ætti bara að fram-
leiða stór verk sem þeir efnameiri
hefðu efni á að kaupa. Hann kallaði
litlu verkin veggjakonfekt! Það var
meðal annars þess vegna sem ég
fór út í að gera þetta.“
Aðalheiður er þekkt fyrir tré-
listaverkin og kötturinn illræmdi
varð einmitt til vegna þess að hún
sat uppi með fullt borð af trékubb-
um þegar leið að jólum. „Þegar ég
leit á borðið einn daginn sá ég fullt
af jólaköttum gægjast upp úr
spýtnahrúgunni! Kubbarnir voru
afskornir innrömmunarlistar og
litu út eins og kattaloppur …“
Jólakötturinn hefur síðan verið
uppistaðan á jólamarkaði Aðal-
heiðar en fleira bæst við með
hverju árinu. Kötturinn er heldur
aldrei eins; hefur vaxið og dafnað
og nú hvæst (og hugsanlega étið
óþæg börn) í fjórtán ár. Sumir
kaupa einn á ári og eiga allt katta-
safnið.
Aðalheiður og Jón opna heimili
sitt og vinnustofur alla laugar- og
sunnudaga fram að jólum á milli
klukkan tvö og sex. Að auki er
ætíð opið hús í Freyjulundi á Þor-
láksmessu, kaffi og meððí í boði
um leið og fjölskyldan leggur loka-
HÖRGÁRSVEIT
Veggjakon-
fekt á jólum
AÐALHEIÐUR S. EYSTEINSDÓTTIR OG JÓN LAXDAL HAFA Í
ÁRATUG STUNDAÐ MYNDLISTARBÚSKAP Í FREYJULUNDI,
GÖMLU FÉLAGSHEIMILI SKAMMT NORÐAN AKUREYRAR.
ÞAR ER KOMIN HEFÐ FYRIR JÓLAMARKAÐI Á AÐVENTU.
Aðalheiðar og þessi vinalega, gamla kona eru ánægðar í Hörgársveitinni, fjarri
Akureyrabæ en þó mjög stutt frá. Tíu mínútna keyrsla er þaðan í Freyjulund.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gamli samkomusalurinn er vinnustofa Aðalheiðar en Jón vinnur á uppi svið-
inu. „Hann er á leiksviðinu en ég á dansgólfinu,“ sagði Alla við blaðamann.
Bústofninn í Freyjulundi er einn
hani og fimm hænur. Haninn og
fyrsta hænan, sem Jóni voru gefin í
sextugsafmælisgjöf, voru nefnd Jan
og Henrietta, í höfuð listamannsins
Jan Voss og Henriettu konu hans.
„Jan sýndi hjá mér í Kompunni á
Akureyri; þrjár pissuskálar fyrir
karla og þrjár lifandi hænur; þannig
var minning hans úr frystihúsinu á
Flatey á Breiðafirði þar sem hænur
verptu í pissuskálar. Jan var gesta-
listamaður í eynni þegar hann var
ungur,“ segir Aðalheiður.
Að sýningu lokinni gaf Jan lista-
konunni hænurnar, þær voru send-
ar í sveit því Freyjulundur var ekki
tilbúinn, en drápust áður en fjöl-
skyldan flutti. „Hér byggðum við
hænsnakofa við húshornið og end-
urgerðum sýninguna úr Kompunni,
með hænum og pissuskálum!“
Hænan Henrietta lagði upp laup-
ana í fyrra: „gekk út og dó en nú
eigum við Kötlu, Marsilíu, Arnfinnu,
Oddnýju og Kristjönu ásamt Jan.
Mamma Jóns hét Oddný, mamma
heitir Arnfinna og Kristjana er kon-
an sem lét okkur hafa hænurnar.
Jan og Henrietta búa í Rauða
hverfinu í Amsterdam og til að
halda hita á hænunum er rauð hita-
pera í kofanum. Hann er sannkallað
pútnahús í anda Rauða hverfisins!“
Pútnahús í
rauðu hverfi
UM ALLT LAND
HRÚTAFJÖRÐUR
Sveitarfélagið Húnaþing vestra tekur alfarið við umsjón og rekstri Byggðasafns
Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði. Það var ákveðið á dögunum
a Húnaþin
veitarfélagið Skagaströnd
ÖLFUS
Beinagrindur af kindum fundust við Ga
vera létt fyrir þann sem þarf að losa
stað í stað þess að hen
skipulags- og bygging
gámasvæðið sé op
k
FJARÐABYGGÐ
Smári Geirsson, fv. forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð,
vinnur að ritun sögu Fáskrúðsfjarðar. Einna mest hefur verið
skrifað um Mjóafjörð, afVilhjálmi heitnum Hjálmarssyni og
töluvert um önnur sveitarfélag sem nú tilheyra Fjarðabyggð,
nema hvað saga Stöðvarfjarðar hefur ekki verið rituð.
Framlag til Sögu Fáskrúðsfjarðar er tryggt næstu tvö árin.
K
Hr
ák
sto um
hit s á
næsta fundi hreppsnefnda
Framkvæmdastjóra veitun
að ganga frá málinu fyrir þ
fundi verður kosin stjórn
ÍSAFJÖRÐUR
Kómed
á Ísafirð
hafið æ
leikriti
Ásmun m
er að r k
byggða
vinsælustu Íslendingasögu öfundur
og leikari verksins er Elfa Logi
Hannesson en leikstjórn er í höndum
Víkings Kristjánssonar le
BB segir frá. „Íslendingasö
hafa heillað frá því ég var
Grettissaga er bara helvít
áskorun að fást við hana,“