Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Side 19
30.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Jón Svavar Jósefsson, óperusöngvari, raddgerfill, kórstjóri og
almennur brjálæðingur eins og hann segir sjálfur er ávallt
hress og kátur. Jón Svavar og spúsa hans Brynja Guðrún Ei-
ríksdóttir eiga saman dótturina Hugrúnu Jöru sem er tveggja
og hálfs árs og fyrir á Brynja Guðrún drengina Árna
Steina, fimm ára, og Sigurð Hrafn, níu ára. Það er því
mikið fjör og mikið gaman á heimilinu.
Þátturinn sem allir geta horft á?
Ætli allir nái ekki á einhverjum tímapunkti að horfa
á Stundina okkar, en Orðbragð hentar kannski hin-
um eldri.
Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öllum?
Ef spurningin er borin upp er aðeins eitt svar:
Kjötbollur með brúnni.
Skemmtilegast að gera saman?
Okkur finnst skemmtilegast að fara í Kola-
portið eða skreppa í fjöruferð.
Borðið þið morgunmat saman?
Vegna aðstæðna náum við ekki sama róli virka daga en gjarnan eru
veglegir morgunverðir um helgar, með mörgu tilheyrandi.
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar?
Við grínumst saman eða kveðum rímur.
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Jón Svavar
Jósefsson
Gaman að grínast saman eða kveða rímur
Hvar og hvenær? Laugardag og sunnudag kl. 11-16 við Elliðavatnsbæ í Heiðmörk.
Nánar: Jólamarkaður Skógræktarfélags Reykjavíkur verður haldinn hátíðlegur um
helgina. Barnastund verður kl. 14 báða dagana þar sem rithöfundur les fyrir börnin.
Auk þess kemur jólasveinn í heimsókn.
Jólasveinar á jólamarkaði
Lilli klifurmús
Öll dýrin í skóginum
eiga að vera vinir
H
eitt kakó og smákökur
gera föndurgerðina enn
skemmtilegri og ekki
skemmir fyrir ef ljúfum
jólatónum er skellt á fóninn. Jóla-
snjókarlana er einfalt að búa til og
þeir eru fallegt jólaskraut sem
börnin geta búið til sjálf. Sköp-
unargleði þeirra fær útrás og að
auki njótum við þess að eiga nota-
lega stund saman.
Jólasnjókarlar
Það sem þarf til
2 hvítur A4 pappi.
1 svartur A4 pappi
hvers kyns band eða þráður, má
vera hvernig sem er á litinn en t.d.
er hægt að fá hvítt og rautt, rönd-
ótt snæri í IKEA fyrir 790 kr. Það
er jólalegt og hægt að nýta afgang-
inn í að skreyta jólapakka.
svartur vaxlitur
appelsínugulur vaxlitur
límstifti
skæri
Aðferð
Þegar hringirnir eru búnir til,
hafið gott bil á milli þeirra. Fyrsti
hringurinn þarf að vera 15 cm í
þvermál. Annar hringurinn þarf að
vera 10 cm í þvermál og sá þriðji 5
cm í þvermál. Snjallt er að leggja
hvítu blöðin saman og klippa út á
sama tíma. En það er líka ágætt
fyrir börnin að æfa sig og klippa út
síðari hringina með því að leggja
útklipptu hringina á blað og strika
eftir hringinn með blýanti.
Teiknið með vaxlitnum svört
augu og munn og appelsínugult nef
á minnsta hringinn. Þrjá svarta
hnappa á miðjuhringinn.
Næst er hatturinn og hendur
búnar til. Teiknið rétthyrning á
svarta blaðið sem er 6 cm á hæð
og 7,5 cm á breidd. Hatturinn er 5
cm á hæð og derið er 1 cm, eins og
sést á mynd. Hendurnar ættu þá
að myndast sitthvorum megin,
hvor um sig 1,5 cm á breidd og 5
cm á hæð. Klippið þetta út.
Leggið útklipptu hlutina á borð
og raðið þeim á réttan stað. Gott
er að líma saman hringina þrjá,
raða þeim aðeins hverjum ofan á
annan, til að skrautið haldist betur.
Límið síðan hendurnar á miðju-
hringinn að aftan en hattinn á
efsta hringinn að framan. Því næst
er snærið límt vel við snjókúlurnar
þrjár og látið þorna. Endurtakið
með seinni snjókarlinn.
Klippið út svartan bút til að
halda snjókörlunum hangandi hlið
við hlið. Búturinn þarf að vera 30
cm á lengd og 5 cm á hæð. Límið
snærið á sitthvorn endann. Einnig
er gott að hefta snærið fast við.
Bindið saman hnút fyrir ofan og
hengið upp!
HEIMATILBÚIÐ JÓLASKRAUT
Föndrað fyrir
fyrsta í aðventu
Krúttlegir jólasnjókarlar eru tilvalið skraut í barnaherbergið, sérstaklega skemmtilegt er þegar þeir eru heimatilbúnir.
Getty Images/iStockphoto
JÓLASKRAUTIÐ ÞARF EKKI ENDILEGA AÐ KAUPA ALLT
TILBÚIÐ ÚTI Í BÚÐ. HEIMATILBÚIÐ FÖNDUR SEM BÖRNIN
DUNDA SÉR VIÐ AÐ SKAPA GERIR JÓLASKRAUTIÐ PER-
SÓNULEGRA OG EINFALDLEGA JÓLALEGRA. HVAÐ ER
SKEMMTILEGRA EN AÐ FÖNDRA MEÐ BÖRNUM SÍNUM?
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Framhlið snjókarlsins.
Jólaskrautið tilbúið.
Stykkið sem heldur
snjókörlunum uppi.
Snjókúlurnar fyrir snjókarlinn.
Hattur
og
hendur.
Bakhlið snjókarlsins.
Ármúla 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn.is | www.gahusgogn.is
GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á
íslenskum markaði um árabil. Við leggjum áherslu á
stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu.
Við tökum málin þín
í okkar hendur
Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki