Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Qupperneq 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Qupperneq 25
30.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 F rjálsíþróttakonan Arna Stefanía Guð- mundsdóttir gekk nýverið til liðs við FH frá ÍR. Hún setur stefnuna á EM 22 ára og yngri næsta sumar. Íþróttagrein Frjálsar íþróttir. Hversu oft æfir þú í viku? Ég æfi sex sinnum í viku. Hver er lykillinn að góðum árangri? Ég myndi segja að þar væri margt sem spilar saman, góður svefn, gott mataræði, setja sér markmið, vera með góðan sjálfsaga og ekki síst að hafa trú á sjálfum sér, að mað- ur geti það sem maður ætlar sér. Hvernig er best að koma sér af stað? Held það sé best að byrja bara rólega en gera alltaf eitt- hvað á hverjum degi, þarf ekki að vera meira en hálftími þess vegna. Svo margt er hægt að gera sem er líka skemmtilegt og krefst ekki mikils tíma og manni líður svo vel þegar maður er búin að hreyfa sig smá. Ekki ætla sér of mikið fyrst því það getur orðið til þess að maður fái nóg. Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira? Ég held að það sé sniðugt að fara í alls konar tíma og stunda ólíka hreyfingu. Hjóla, hlaupa, synda, út að labba og jóga eru góð dæmi fyrir fjölbreytta hreyfingu sem öll er þó góð á sinn hátt og gott að blanda þessu saman. Mér finnst líka sniðugt að vera í hópi eða hafa einhvern með sér því þá verður þetta miklu skemmti- legra. Hvernig heldurðu þér í formi þeg- ar þú ferð í frí? Alltaf þegar ég fer í frí eftir keppnistímabil reyni ég að hreyfa mig á hverjum degi en geri allt annað en að hlaupa eða eitthvað sem tengist frjálsum. Ég er með kort í líkams- rækt og fer því í allskonar tíma sem eru þar í boði, svo reyni ég að synda aðeins með. Fór mikið í spinning þegar ég var síðast í fríi og fannst mér það bæði skemmtilegt og góð æfing fyrir líkamann. Ertu almennt meðvituð um mataræðið? Já, ég reyni að passa mataræðið, með því að borða reglulega og hollt. Reyndar verð ég að viðurkenna það að mér finnst nammi rosalega gott en ég reyni að hafa það bara á laugardögum og gengur það bara nokkuð vel. Hvað borðarðu til að halda þér í formi? Borða reglulega og hollt. Hámark, skyr, hnetur og ávextir verður oft fyrir valinu enda auðvelt að grípa það með og góð næring og orka. Hvaða óhollusta freistar þín? Mér finnst súkkulaði með lakkrís rosalega gott og svo er ís líka í uppáhaldi. Hvað ráðleggurðu fólki sem vill bæta mataræðið? Að borða alltaf hollan morgunmat og borða með reglulegu millibili yfir daginn. Fá sér hollan skyndibita þegar það verður fyrir valinu og hafa nammidag einu sinni í viku. Manni líður miklu betur þegar maður borðar hollt og það er líka miklu skemmtilegra að borða nammið þegar maður er búinn að bíða í viku og vera duglegur fram að því með hollu mataræði. Hvaða gildi hefur hreyfing fyrir þig? Hún skiptir mig miklu máli. Ekki nóg með að þetta sé það skemmtilegasta sem ég geri heldur líður mér alltaf svo vel þegar ég er komin heim af æfingu. Hver eru algeng mistök hjá fólki við æfing- ar? Ég held að fólk fari oft of hratt af stað og æfi of mikið sem getur leitt til meiðsla sem erfitt er að koma sér upp úr. Það er miklu betra að byrja rólega og vera ferskur á æfing- um. Er staða frjálsra íþrótta góð á Íslandi? Já, hún er mjög góð. Ég æfi í FH þar sem allt er til alls. Frjálsíþróttahöll, frjálsíþróttavöllur (úti), lyftinga- aðstaða og góðir þjálfarar. Hverjar eru fyrirmyndir þínar? Þær eru margar en ein hefur verið lengi ofarlega hjá mér. Mér hefur allt- af fundist Ragna Ingólfsdóttir badmintonkona svo flott og ég man eftir henni frá því að ég var lítil. Hún kemur vel fyrir og frábær íþróttakona sem náði langt. KEMPA VIKUNNAR ARNA STEFANÍA GUÐMUNDSDÓTTIR Mikilvægt að hafa trú á sjálfum sér Heilbrigði tanna skiptir miklu máli fyrir almenna heilsu og vellíðan fólks en rannsóknir benda til að eldra fólki geti verið hættara við t.d. hjartasjúkdómum og lungnabólgu ef munnurinn er illa hirtur. Ástæðan er talin tengjast ákveðnum bakteríum í munnholi sem borist geta með blóðrásinni um líkamann. Heilbrigðar tennur og betri heilsa* Að hata fólk er eins og aðbrenna hús sitt til þess aðeyða einni rottu. H.E. Fosdick Það að sofa á daginn brennir færri kaloríum en á nóttunni, samkvæmt rannsókn sem leiðir í ljós að næturvinna getur aukið líkurnar á offitu. Næturvinna getur truflað brennsluna með því að láta starfsfólkið nota minni orku en það hefði notað á venjulegum degi. Eitt af því sem kom í ljós var að þegar starfsfólk svaf á daginn brenndi það 12-16% færri kaloríum en þegar það svaf að nóttu til. Niðurstöðurnar varpa ljósi á af hverju starfsfólk sem vinnur næturvinnu er líklegra til að þjást af offitu og fá hjartasjúkdóma. Kenneth Wright yfirmaður svefnrannsóknarstof- unnar hjá Háskólanum í Colorado segir að minni orkunotkun ýti undir slæmt fæði og skort á þjálfun sem er algengari meðal næturvaktafólks. Hann segir að þetta geti verið út af misræmi milli innbyggðrar líkamsklukku og svefnmynsturs sem trufli brennslu. „Jafnvel 50 kcal umframneysla á dag getur leitt til aukinnar þyngdar yfir lengri tíma og ef þessu fylgir þreyta sem tengist vaktavinnu sem leiðir til minni líkamsræktar þá veldur þetta þyngdaraukningu,“ sagði hann. Fitandi næturvinna Eitt af því sem kom í ljós var að þegar fólk svaf á daginn brenndi það 12-16% færri kaloríum en á nóttunni. Getty Images Melavöllurinn var gerður af Íþróttasambandi Reykjavíkur á Melunum sunnan Hringbrautar árið 1911. Völlurinn var vígður 11. júní og fyrsta mótið sem var haldið þar var vikulangt íþrótta- mót Ungmennafélags Íslands í til- efni af hundrað ára afmæli Jóns Sigurðssonar 17. júní 1911. Árið 1926 fauk nánast öll girð- ingin í kringum Melavöllinn í ofsa- veðri og var þá ákveðið að gera nýjan, betur útbúinn völl á sama stað en sem lægi meðfram Suður- götu. Þessi völlur, sem margir þekkja, var girtur með bárujárni líkt og sá fyrri. Á þeim árum var gríðarleg íþróttastarfsemi í ná- grenni Melavallar annars staðar á Melunum og íþróttamannvirkin náðu alls yfir 7,5 hektara svæði. Þarna fóru fram kappleikir í knattspyrnu og handknattleik, frjálsíþróttamót, 17. júní hátíða- höld, álfabrennur, hnefaleikar, tennis og á veturna renndi fólk sér á skautum. Árið 1935 var nýtt íþrótta- svæði skipulagt í Nauthólsvík og voru Melarnir þá skipulagðir und- ir íbúðir og skóla. Árið 1959 var síðan Laugardalsvöllurinn opn- aður og þar með var helsta hlut- verki Melavallar lokið. Völlurinn þjónaði þó áfram margvíslegu hlutverki, m.a. undir rokk- tónleika. Völlurinn var ekki form- lega lagður niður fyrr en árið 1984 og síðar reis Þjóðar- bókhlaðan á svæðinu. Á Melavellinum fóru fram kappleikir í knattspyrnu og handknattleik, frjáls- íþróttamót, 17. júní hátíðahöld, álfabrennur, hnefaleikar, tennis og á veturna renndi fólk sér á skautum á vellinum. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Fjölbreytt mannlíf og íþróttir á Melavelli Morgunblaðið/Árni Sæberg 100% hreinar Eggjahvítur Þú þekkir okkur á hananum Án allra aukaefna! Gerilsneyddu eggjahvíturnar frá Nesbú eru frábær valkostur í jólabaksturinn. Hugsaðu um hollustuna, veldu eggjahvítur frá Nesbú. Ís le ns k framleiðsla
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.