Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Page 29
M
ér finnst mikilvægast að hafa heimilið mitt
huggulegt og að mér líði vel þar. Prakt-
íska hluti kaupi ég yfirleitt í svörtu, hvítu
eða gráu svo ég fái ekki leið á þeim strax
en svo er ég mjög dugleg að skipta út minni hlutum
eins og myndum, blómum, kertum og púðum og þá
finnst mér fallegir litir skipta miklu máli svo það sé
ekki kuldalegt,“ segir Kristín Eva sem starfar í þjón-
ustuveri Icelandair samhliða námi í ferðamálafræði í
Háskóla Íslands.
Kristín segir heimilisstílinn einkennast af einfald-
leika og góðri blöndu af gömlum húsgögnum í bland
við nýlegri muni. „Ég er Pinterest- og Instagram-fíkill
og svo finnst mér mjög gaman að skoða fasteignavef-
inn og sjá hvernig fólk innréttar heima hjá sér – það
varð eiginlega árátta eftir að við keyptum íbúðina okk-
ar, þá hætti ég ekkert að skoða íbúðir,“ segir Kristín
Eva og bætir við að hún sé einnig dugleg að herma
eftir vinkonum sínum þegar þær fá góðar hugmyndir.
Kristín, sem verslar aðallega í IKEA en segist þó af
og til leyfa sér að kíkja í Epal, Mýrina, Líf&list, Hrím
og fleiri búðir, segir hvítt Tablo-sófaborð frá Normann
Copenhagen og stól frá Arne Jacobsen efst á óskalist-
anum.
Krummi eftir Ingibjörgu Hönnu sómir sér vel í eldhúsglugganum.
Svefnherbergi Kristínar Evu og Kristins er fallega innréttað. Stóri spegillinn og
ljósaserían í horninu gefa herberginu notalega stemningu.
Skemmtileg smáatriði í stofunni.
Litirnir skapa hlýleika
KRISTÍN EVA ÓLAFSDÓTTIR OG KRISTINN FREYR SIGURÐSSON BÚA Í AFAR
HEILLANDI ÍBÚÐ Í FOSSVOGI. HEIMILISSTÍLLINN EINKENNIST AF GÖMLUM
MUNUM Í BLAND VIÐ NÝLEGRI HÖNNUNARVÖRU.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Kristín Eva segir liti skapa hlýleika á heimilinu enda einkennir falleg litasmsetning heimilisstílinn að hluta.
FALLEGT HEIMILI Í FOSSVOGI
Stofan einkennist af góðri blöndu af eldri munum og nýlegri hönnunarvöru.
Morgunblaðið/Golli
30.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Hlý og vönduð
dúnsæng og
dúnkoddi
Aðeins
kr. 18.900
Fullt verð: 23.800
Tvennutilboð
-16.00 Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100 • Húsgagnahöllinni, Reykjavík
456 4566