Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Síða 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Síða 33
Morgunblaðið/Árni Sæberg Frá vinstri: Húsbóndinn á heimilinu, Gunnar Kristinn Vil- bergsson, systir hans; Þórunn Lilja Vilbergsdóttir og for- eldrar; Vilbergur Kristinsson og Jóhanna Arnleif Gunnars- dóttir. Við endann sitja systurnar Emilía Myrra og Áróra Ísabella Hákonardætur, systir Evu Rúnar; Vigdís Guðjohn- sen, eiginmaður hennar Hákon Sverrisson og þar við hlið sitja systurnar Lára Dawn Michelsen og Eva Rún Michelsen. 30.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33 Ostaterta 4 stærðir af hringlaga hvítmygluost- um, hér var stór camembert not- aður, Bóndabríe, Gullostur og Dala- hringur. (Stóri hringurinn fæst í ýmsum sérverslunum með osta, til dæmis í Hagkaupum í Kringlunni) 2 ferskar fíkjur 1 dl blandaðar hnetur eða möndlur, t.d. pekanhnetur, möndlur, val- hnetukjarnar 1 dl þurrkuð trönuber og apríkósur Raðið ostunum í stærðarröð til að mynda 3-4 hæða tertu. Skreytið með þurrkuðum ávöxtum, hnetum og möndl- um og niðurskornum ferskum gráfíkjum. KARAMELLUBRÁÐ 1 dl sykur ½ dl vatn Hitið saman sykur og vatn í potti. Hreyf- ið ekki við blöndunni meðan hún sýður því þá kristallast hún. Sjóðið þar til blandan er gyllt og snöggkælið pottinn í köldu vatni til að stoppa suðuna. Hellið karamellubráð- inni yfir allt saman og berið fram. Hefðbundin jólakaka 100 g smjörlíki, mjúkt 125 g sykur 2 stk. egg 200 g hveiti 2 og ½ tsk. lyftiduft ¼ tsk. sítrónudropar 1 dl mjólk 1 dl rúsínur Hitið ofninn í 175°C. Þeytið smjör og sykur saman þangað til blandan er létt og ljós. Bætið eggjunum ró- lega saman við ásamt bragðefnum. Sigtið þurrefnin saman við. Bætið rúsínum saman við í lokin. Setjið allt í vel smurt hefðbundið jólakök- umót og bakið í um 1 klst. eða skemur ef minni og fleiri mót eru notuð. 

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.