Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Page 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Page 39
30.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 * Til þess að tækni sé vel heppnuð þarf raun-veruleikinn að sigrast á almannatengslum,því náttúran lætur ekki að sér hæða. Richard P. Feynman DX7-hljómtölvan frá Yamaha þótti mikið byltingartæki snemma á níunda áratugnum og virtir tónlistarmenn voru fengnir til að mæra krafta henn- ar í auglýsingum hér á landi. DX7 var fyrsti stafræni hljóðgervillinn sem náði almannahylli og seldist vel og heyra má einkennandi hljóð hans í mörgum þekktum popplögum frá sama tímabili. Hann er enn þann dag í dag einn mest seldi hljóðgervill sög- unnar þrátt fyrir að framleiðslu hans hafi verið hætt árið 1989. Á almenn- um markaði kostaði hann um 2000 dollara. Í auglýsingu fyrir DX7 sagði að í hljóðverum Yamaha hefði tekist að búa til svo fullkomin tölvuforrit að ekki heyrðist munur á þeim hljóðum sem DX7 gæfi frá sér og hljóði frá alvöruhljóðfærum. GAMLA GRÆJAN Yamaha- hljómtölva Apple hyggst nú sækja fram með Beats-tónlistarveitu sína og sjá til þess að hún verði sjálf- krafa aðgengileg á hverjum ein- asta seldum iPhone. Dagblaðið Financial Times greindi frá þessu í vikunni. Beats-smáforrit mun fylgja með í nýjustu uppfærslunni af iOS-stýrikerfinu sem er í notk- un á iPhone-um og iPödum. Apple keypti Beats, fyrirtæki sem þá var best þekkt fyrir heyrnartól sín, fyrir þrjá millj- arða bandaríkjadala í maí á þessu ári. Fyrirtækið hefur þó ekki viljað tjá sig opinberlega um áform sín. Það var jafnframt Financial Times sem sagði fyrst frá því að Apple hefði keypt Beats. Sókn Apple inn á tónveitu- markaðinn ógnar stöðu Spotify, sem til þessa hefur leitt mark- aðinn, og jafnframt er talið að minnkandi sala í iTunes, vef- verslun Apple, hafi haft áhrif á ákvörðunina um að fjárfesta í Beats. Með því að forhlaða forritinu inn á nýja iPhone-a og iPad-a mun Apple eiga auðveldara með að klófesta nýja við- skiptavini. Á hinn bóginn hefur fjárstreymi frá tónlistarveitum á borð við Spotify skapað mikið umtal í kjölfar þess að ein áhrifamesta poppstjarna heims, Taylor Swift, lét fjarlægja alla sína tónlist af veitunni. Hún lét hafa eftir sér að þau stefgjöld sem hún hlyti frá Spotify græfu undan verkum hennar. Spotify neitaði að tjá sig um málið. TÖFF TÆKNISTAÐREYND Beats forhlaðið á iPhone Í september árið 1986 fórust 10.000 manns í jarðskjálfta sem hljóðaði upp á 8,1 á Richer-kvarða í Mexíkóborg. Heilu borgarhlutarnir lögðust í rúst. Síðan þá hafa Mexíkóar fjárfest og komið upp einu háþróaðasta aðvörunarkerfi í heimi. SASMEX-stofnunin var sett á lagg- ir árið 1991 og greinir upplýsingar og gögn frá jarðskjálftamælum víðs- vegar um landið. Aðvörunarbjöllur við helstu borgir Mexíkó fara svo í gang verði mælarnir varir við jarð- skjálfta. Kerfið getur orðið til þess að íbúar hafi nokkrar aukasekúndur til að undirbúa sig og þessi tími get- ur skipt sköpum. Hins vegar hafa ekki allir íbúar Mexíkó efni á SASMEX-móttökutæki -- um 100.000 slíkir eru í umferð og kosta um 330 dollara stykkið. Flestir af þeim eru því stað- settir í skólabyggingum, spítölum og neðanjarðarlest- arstöðvum. Um 21 milljón manna býr í og við Mexíkó- borg og því ljóst að margir þeirra munu ekki fá aðvörun þegar jörðin tekur að nötra og skjálfa. Frumkvöðlar í Mexíkó vinna nú að því að búa til móttökutæki á stærð við vekjaraklukku – El Grillo eða krybbuna upp á íslensku – sem verður fáanlegt fyrir um 50 doll- ara. „Þetta er ódýrasta og besta leiðin fyrir almenning í Mexíkó til þess að tengjast við almannavarnakerfið,“ seg- ir Andres Meira, hönnuður verkefnsins. Fjármögnunin því að baki er jafnframt best heppnaða Kickstarter- hópfjármögnunarverkefni Mexíkó. Þegar jarðhræringar grein- ast gefur El Grillo frá sér há- vært aðvörunarhljóð. Mexíkó er af ýmsum sökum afar berskjölduð gagnvart jarðskjálftum og í ár hafa margir litlir skjálftar greinst. NÝJASTA NÝTT El Grillo vari Mexíkóa við Studio 2.0 Verð frá59.990.- Njóttu tónlistarinnar í ró og næði með ANC tækninni (Adaptive Noise Canceling). Þegar þú hlustar á tónlist þá útilokar ANC-tæknin umhver- fishljóð eftir mismunandi hávaða og aðstæðum í umhverfinu. Litir °°°° Solo2 Verð 37.990.- Solo2 heyrnartólin eru kraftmikil, tær og færa þig nær þeim gæðum sem tónlistar- maðurinn vill að þú upplifir. Litir °° UrBeats Verð18.990.- UrBeats In-Ear heyrnartól, fást í iPhone litunum. Litir °°°

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.