Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Blaðsíða 51
Margir eru hændir að hestum og ekki óalgengt að fólk sem leggur fyrir sig dýralækningar sé með bakgrunn í hestamennsku. Starfandi dýralæknar Karlar Konur 1930 1940 1950 1960 1970 1980 1990 2000 2004 140 120 100 80 60 40 20 0 2014 0% 0% 11% 6% 16% 33% 40% 66% 5% 6% Gæludýraeign er alltaf að aukast í þéttbýli, sérstaklega hefur hundum fjölgað. Guðbjörg og Charlotta segja þetta ekk- ert einsdæmi, þessi þróun sé alþjóðleg og eigi raunar við um mun fleiri stéttir en dýralækna. Erfitt sé að komast inn í námið og stúlkur séu gjarnan með hærri einkunnir en piltar á stúdentsprófi. Þegar Charlotta hóf nám í dýralækningum í Danmörku fyrir sautján árum voru aðeins 20 af 120 nemendum piltar. Sumir tengja dýralækningar við lík- amlegan styrk og auðvitað getur hann komið sér vel, einkum þegar sinna þarf stærri skepnum. Sá þáttur starfsins liggur þó ekkert endilega betur fyrir körlum en konum. „Starf dýralæknisins snýst miklu frekar um lagni en styrk,“ upplýsir Guð- björg. Auka þarf hið akademíska líf Fara þarf utan til að læra dýralækningar og fyrir vikið er ekkert stúdentalíf kring- um fagið hér heima. Charlotta segir vís- indasamfélagið líka takmarkað. „Það er aðallega Tilraunastöðin að Keldum og því miður er vegið að henni,“ segir hún. „Auka þarf þetta akademíska líf. Ungt fólk, sem er að stíga sín fyrstu skref í faginu, þarf að geta leitað til þeirra sem eldri eru. Þetta er eitt af þeim verkefnum sem félagið getur beitt sér fyrir.“ Dýralæknar vinna ekki bara að velferð dýra. „Við erum einu læknarnir sem erum menntaðir til að sinna bæði heilbrigði manna og dýra,“ segir Guðbjörg en dýra- læknar sjá meðal annars til þess að mat- væli séu örugg til neyslu og koma í veg fyrir að sjúkdómar í dýrum smitist yfir í menn. Þetta má skilgreina sem eflingu þjóðarhags enda gætu áföll af þessu tagi kostað landbúnað og samfélagið allt gríð- arlega fjármuni. Guðbjörg og Charlotta benda á að heilsa manna og dýra sé svo nátengd að gjarnan sé talað um hana í einu lagi. Þannig leggi heilbrigðisvísindi 21. aldar mikla áherslu á samspil lýðheilsu manna, hjarðheilsu dýra og umhverfis. Þær nefna í þessu sambandi „One Health“, alþjóðlegt átak sem ætlað er að stuðla að bættri heilsu manna og dýra og betra umhverfi. Ætlunin er að auka rannsóknir og sam- vinnu milli samtaka lækna og dýralækna um heim allan. „Þegar verkefnið verður komið í gagnið mun það vernda og bjarga milljónum lífa í nútíð og framtíð,“ segir á heimasíðu „One Health“. Hér hugsa menn greinilega stórt. Charlotta nefnir sýklalyfjaónæmi sem dæmi en það sé að verða stórt vandamál á heimsvísu. „Menn þurfa að koma sér saman um stefnu, kröfur til matvæla og upplýsingagjöf til almennings. Í þessu sambandi skipta matvælaeftirlit og fæðu- öryggi mjög miklu máli og þar gegna dýralæknar lykilhlutverki,“ segir hún. Fjörutíu starfa í útlöndum Athygli vekur að yfir fjörutíu íslenskir dýralæknar starfa í útlöndum. Spurðar hverju þetta sæti eru stöllurnar fljótar til svars. „Að hluta til geta það verið launin. Þau eru lægri hér en í samanburðarlönd- unum. Svo dregur öflugt akademískt um- hverfi líka að. Margir af þessum læknum vilja örugglega starfa hér heima en hafa það einfaldlega betra úti,“ segir Guðbjörg. Á móti kemur að fjölmargir erlendir dýralæknar starfa hér á landi, einkum tímabundið í sláturhúsum landsins. „Þetta eru einkum Austur-Evrópubúar og Spán- verjar sem búa við mikið atvinnuleysi heima fyrir og sætta sig þess vegna við lægri laun“ segir Guðbjörg. „Vinnan í sláturhúsunum er ekki sérlega vel borg- uð.“ Komin er upp sú staða að erfitt er að fá dýralækna til að sinna búfé einkum í dreifðari byggðum landsins. Guðbjörg og Charlotta segja þá vinnu bæði líkamlega erfiðari en í þéttbýli og ekki eins fjöl- skylduvæna. „Dýralæknar úti á landi starfa gjarnan einir. Þeir geta verið kall- aðir út á öllum tímum sólarhringsins og jafnvel þurft að taka börnin með í fjósið um miðja nótt. Það er líklega engin til- viljun að börn dýralækna verða yfirleitt ekki dýralæknar sjálf. Þau eru einfaldlega búin að fá nóg,“ segir Charlotta brosandi. Málsvarar málleysingjanna Dýralæknar hlúa ekki aðeins að heilsu og velferð dýra, þeir eru jafnframt málsvarar þeirra. Hvort sem eiga í hlut villt dýr, gæludýr eða búfénaður. Stutt er síðan ný lög um velferð dýra voru samþykkt á Ís- landi og segja Guðbjörg og Charlotta þau með því besta sem þekkist í heiminum. Nú má til dæmis ekki lengur gelda grísi án deyfingar, svo sem frægt varð að en- demum á sinni tíð. „Þetta eru sanngjörn og góð lög,“ segir Guðbjörg, „en það var barningur að koma þeim í gegn“. Dýrahald er síst á undanhaldi í þétt- býli, sérstaklega hefur hesta, hunda- og kattaeign færst í aukana, að kanínunum ógleymdum, en hundahald var sem kunn- ugt er bannað í þéttbýli um tíma. Gælu- dýrum hefur fjölgað jafnt og þétt hér á landi á umliðnum árum og sama þróun á við um flest önnur lönd. Skuldbinding að vera með dýr Tilfinning Guðbjargar og Charlottu er sú að Íslendingar séu upp til hópa dýravinir og fari vel með sínar skepnur. Auðvitað verði alltaf til fólk sem ekki eigi að hafa dýr, en taki þau eigi að síður að sér. „Svo er líka til fólk sem meinar vel þeg- ar það tekur að sér dýr en gerir sér ekki grein fyrir því hvað það getur verið mikil vinna. Það er skuldbinding að vera með dýr, yfirleitt til lengri tíma. Þetta ættu allir að hafa í huga áður en þeir fá sér dýr,“ segir Guðbjörg. Þær eru sammála um að slæm meðferð dýra sé ekki stórt vandamál á Íslandi en Charlotta bendir eigi að síður á að öll ástæða sé til að hafa eftirlit með dýra- velferð. Kenna og leiðbeina fólki eftir þörfum hvernig annast á dýr og bera virðingu fyrir þeim. „Samvistir við dýr gefa okkur svo mikið. Dýrin veita okkur ekki bara gleði, heldur geta þau líka hæglega stuðlað að bættri líðan okkar og heilsu og þannig sparað heilbrigðiskerfinu peninga. Ekki veitir víst af.“ Morgunblaðið/Eggert Morgunblaðið/Eggert * Menn þurfa að koma sérsaman um stefnu, kröfur tilmatvæla og upplýsingagjöf til almennings. Í þessu sambandi skipta matvælaeftirlit og fæðu- öryggi mjög miklu máli og þar gegna dýralæknar lykilhlutverki. 30.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.