Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Side 54

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.11.2014, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.11. 2014 Menning Gatan sem vinnustofa Sigurðar ÁrnaSigurðssonar stendur við býr ekkiað neinum húsnúmerum. Samt er til þess að gera auðvelt að finna hana. Okk- ur skolar raunar í hlað á sama augnablik- inu á þessum rigningarmorgni. Myndlistar- maðurinn kumpánlegur með bókakassa undir hendinni, nýkominn úr áritunarlotu með félögum sínum, Einari Fali Ingólfssyni, ljósmyndara, rithöfundi og blaðamanni, og Þorsteini J. dagskrárgerðarmanni en í sam- einingu hafa þeir sent frá sér bókina Vatnsdalsá – Sagan og veiðimennirnir. Það var Pétur Pétursson, leigutaki árinn- ar, sem ámálgaði skrifin við þremenningana fyrir fjórum árum en allir hafa þeir veitt mikið í Vatnsdalsá og sýnt ánni og dalnum mikinn áhuga. Hugmyndin féll í frjóa jörð og byrjuðu félagarnir strax að viða að sér efni. Í upphafi einblíndu þeir á söguna frá árinu 1997, þegar Pétur kom að málum ásamt frönskum félaga sínum, en þá var tekin sú djarfa ákvörðun að veiddum laxi skyldi sleppt aftur í ána. Vatnsdalsá var fyrsta íslenska laxveiðiáin þar sem þetta fyrirkomulag var gert að skyldu. „Þetta var umdeilt fyrst og eflaust hefur einhverjum liðið eins og verið væri að breyta spilaregl- unum. Í dag eru hins vegar allir sáttir við fyrirkomulagið enda sýna rannsóknir að fiskurinn lifir þetta af,“ segir Sigurður Árni. Nauðsynlegt að sleppa Hann segir veitt og sleppt-fyrirkomulagið raunar hafa verið nauðsynlegt. Álagið á ís- lenskar laxveiðiár sé alltaf að verða meira, með flinkari veiðimönnum og betri búnaði. „Staða íslenska laxastofnsins væri klárlega verri í dag hefðu menn ekki tekið upp þetta fyrirkomulag.“ Veitt og sleppt var útgangspunkturinn en þegar þríeykið fór að skoða málið betur kom í ljós að saga Vatnsdalsár er í senn stór og spennandi og rekja má hana allt til upphafs Íslandsbyggðar. Þannig bendir Sig- urður Árni á að ekki minni kappi en land- námsmaðurinn Ingimundur gamli hafi verið drepinn vegna ágreinings um veiðirétt. „Enn er deilt um það hvar við ána hann fékk spjótið í sig,“ segir hann. Félagarnir tóku fyrir vikið snemma ákvörðun um að færa verkefnið út. „Þetta vatt upp á sig og bókin varð sífellt þykk- ari,“ segir Sigurður Árni sem er Pétri leigutaka, sem jafnframt gefur bókina út, þakklátur fyrir að gefa þeim algjörlega frjálsar hendur og setja ekki á þá minnstu tímapressu. „Þetta er meira en bara veiði- bók. Þetta er sagan í stóru samhengi og veiðimennirnir sem farið hafa þarna í gegn. Ótrúlegir menn margir hverjir. Af þeim er fjöldi frásagna í bókinni.“ Sigurður Árni segir samstarfið við Einar Fal og Þorstein hafa gengið eins og í sögu enda standi vinátta þeirra á gömlum merg. „Við komum hver úr sinni áttinni og bæt- um hver annan upp,“ segir hann en þess má geta að samhliða bókarskrifunum hefur Þorsteinn unnið að heimildarmynd um Vatnsdalsá. Veiddi mikið sem polli Sigurður Árni er enginn nýgræðingur í stangveiði. Hann óx úr grasi á Akureyri og veiddi mikið sem polli með föður sínum, einkum á Skagaheiðinni, í Kelduhverfi og Öxarfirði, þar sem hann var seinna í sveit á sumrin. „Þetta voru yndislegir tímar, öll fjölskyldan fór saman og gisti í tjaldi.“ Sigurður Árni leit alltaf á stangveiðina sem tómstundagaman en sumarið 2001 at- vikaðist það svo að hann gerðist leið- sögumaður. Fyrst í Litluá í Kelduhverfi en síðan Vatnsdalsá, að beiðni téðs Péturs Pét- urssonar. „Ég þekkti Pétur ekki neitt þeg- ar hann hringdi í mig og bað mig að „gæda“ nokkra Frakka,“ segir Sigurður Árni sem bjó og starfaði í Frakklandi á þessum tíma. Hann var heima í sumarleyfi og sló til. Síðan hefur hann gert þetta ann- að veifið, mest í Vatnsdalsá. Þegar hér var komið sögu hafði Sigurður Árni aldrei veitt í Vatnsdalsá. Það var ást við fyrstu sýn. „Ætli það sé ekki fjölbreyti- leikinn,“ svarar hann spurður hvað geri ána svona merkilega. „Vatnsdalsá er allt frá djúpum gljúfrum og erfiðum veiðistöðum efst niður í þessar stóru lygnur. Og allt þar á milli. Stærðin er mjög heppileg, það er að segja vatnsmagnið. Vatnsdalsá er full- komin fluguveiðiá. Og ekki spillir fallegur dalurinn fyrir.“ Hann segir það skapa ánni ákveðna sér- stöðu að þar sé að finna allar fimm teg- undir ferskvatnsfiska á Íslandi, það er lax, staðbundna og sjógengna bleikju og stað- bundinn og sjógenginn urriða. „Það er mik- ið ríkidæmi. Þarna eru stórkostlegir fiskar,“ segir Sigurður Árni en þess má geta að ekki þarf að sleppa silungnum sem veiddur er í ánni. Náttúrurómantík frekar en sköpun Þekkt er að margir listamenn stunda stangveiði. Fyrir sína parta tengir Sigurður Árni það frekar náttúrurómantík en sköp- uninni sem slíkri enda þótt veiði sé í eðli sínu skapandi iðja. Veiðimaðurinn þarf sí- fellt að bregðast við. „Ég er meiri náttúru- unnandi en veiðimaður. Útivist hefur alltaf heillað mig og er á endanum meira atriði en veiðin. Þess vegna var ekkert mál fyrir mig á sínum tíma að byrja að sleppa lax- inum.“ Aðalatriðið í hans huga er að landa lax- inum. „Það er einstakt að upplifa viðbrögð fólks sem veiðir sinn fyrsta lax. Allt þarf að ganga upp og laxinn í raun og veru að gera mistök sjálfur til að hægt sé að landa honum á flugu. Þessi glíma er engu lík.“ Hann segir ekki síður merkilegt að upp- lifa með fólki þegar það sleppir laxinum aftur og finnur hvernig hann endurheimtir kraftinn þegar hann syndir út í hylinn. „Maður gefur honum ákveðið líf.“ Sigurður Árni sækir ekki síst í veiðina og útivistina til að hvíla hugann frá amstri hversdagsins og hermt er að fátt jafnist á við streymandi vatn í því sambandi. Hann viðurkennir líka að hann fái margar af sín- um bestu hugmyndum til listsköpunar á ár- bakkanum. Ekki er hægt að útiloka að vatnsniðurinn kalli það fram. „Ég er alltaf með skissubókina með mér í veiðiferðum,“ segir hann. Vatnslitamyndir af flugum Og Sigurður Árni tengir með beinum hætti við list sína í bókinni en hana prýðir fjöldi vatnslitamynda sem hann hefur málað af flugum. „Ég hafði leikið mér aðeins með að gera ómögulegar flugur áður og okkur fannst upplagt að ég gerði nokkrar myndir af flugum sem þekktar eru í Vatnsdalnum í stað ljósmynda. Þetta er persónulegri nálg- un og gefur bókinni annan blæ.“ Spurður hvort áform séu um að sýna þessar flugumyndir hristir Sigurður Árni höfuðið. „Það er samt aldrei að vita nema ég hafi sýningu í félagsheimilinu í Húna- vatnssýslu síðar meir.“ Nema hvar? Sigurður Árni Sigurðsson, t.v., með tveimur frönskum veiðimönnum við Vatnsdalsá, Gerard Bornet og Jean Deleplanque. Einu sinni brákaði Bornet þessi, fyrir miðju, á sér ökklann í veiði en tók ekki í mál að hætta og sneri aftur á árbakkann eftir að hafa verið settur í gips. Það er með eftirminnilegri augnablikum sem Sigurður Árni hefur upplifað í veiði þegar hann fylgdist með kappanum setja í risastóran lax og landa honum, hoppandi á öðrum fæti með stöngina í annarri hendi og hækjuna í hinni. Jean Deleplanque var lögreglustjóri í París og notaði víst sömu aðferð við að þreyta laxa og pólitíkusa. Morgunblaðið/Einar Falur SÖGUR AF Á, FÓLKI OG FISKUM Fullkomin fluguveiðiá SIGURÐUR ÁRNI SIGURÐSSON, MYNDLISTAR-, ÚTIVISTAR- OG VEIÐIMAÐUR, SPARAR EKKI STÓRU ORÐIN ÞEGAR KEMUR AÐ VATNSDALSÁ ENDA HEFUR HANN GERT HEILA BÓK UM ÞETTA DJÁSN Í NÁTTÚRU ÍSLANDS Í SAMSTARFI VIÐ FÉLAGA SÍNA EINAR FAL INGÓLFSSON OG ÞORSTEIN J. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Svört frances, eftir Sigurð Árna Sigurðsson. Bókaormur, eftir Sigurð Árna Sigurðsson.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.