Frúin - 01.07.1962, Síða 22
Falleg peysa með mynztri
á kraga og ermum.
Stærð ... 38 (40) 42 (44)
Brjóstv. . 84 (88) 92 (96) cm.
Sídd .... 56 (58) 60 (63) cm.
Efni 450 (500) 500 (550) gr. dökk-
grátt miðlungsgarn, og 50 gr. af
hvítu og 50 gr.. af gulu sams konar
garni. Prjónar nr. 4 og 5%. Prjón-
festa 18 lykkjur á hverjum 10 cm.
B a k i ð : Fitjið upp 78 (82) 86
(90) lykkjur af gráu garni á prjóna
nr. 4 og prjónið fit 2 sl., 2 br., 6 cm.
Skiptið á prjóna nr. 5Vz og prjónið
slétt. Aukið einni lykkju 1 á hverri
hlið með 6 cm millibili 4 sinnum.
Þegar stykkið er 36 (38) 40 (42) cm.,
er fellt niður fyrir handvegum fyrst
4 (5) 5 (6) 7 lykkjur, síðan 2,2 1. 1
lykkjja. Þegar lengdin er orðin 55
(57) 59 (61) cm. eru felldar niður
fyrir öxlunum 5 lykkj. á hvorri hlið
3 sinnum og 4 (5) 5 (6) lykkj. einu
sinni. Síðan eru 18 lykkj. felldar
niður á hvorri hlið og síðan það sem
eftir er.
Framsty kkið : Fitjið upp og
prjónið eins og á bakstykkinu en
gerið stærð handveganna nr. 44, eft-
ir 43 cm. Þegar stykkið er 49 (51)
53 (55)- cm. eru felldar niður 12
lykkjur í miðinu og nú er hvert
stykki prjónað sjálfstætt. Minnkið
hálsmálið um 1 lykkju í þriðju hverri
umferð þrisvar og 1 annarri hverri
síðan þar til eftir eru á prjónunum
19 (20) 20 (21) lykkja fyrir hverja
öxl. Þegar stykkið er orðið 56 (58)
60 (63) cm. Er öxlin felld af á sama
hátt og bakstykkið. Báðar axlirnar
prjónaðar á sama hátt.
Ermarnar: Fitjið upp 34 (36)
38 lykkj. af gráu garni á prjóna nr.
4 og prjónið fitina 6 cm. Skiptið á
prjóna nr. 5% og prjónið slétt og
aukið í jafnt í fyrstu umferðina 15
(13) 13 (13) lykkjum. Prjónið síðan
tvær umf. og þá byrjar mynztrið.
Haldið bandinu laust er mynztrið
er prjónað og aukið í einni lykkju, í
hverja 10. umferð þangað til 59 (61)
63 (67) lykkjur eru á prjóninum.
Þegar ermin er 44 (44) 45 (45) cm.
er tekin úr ein lykkja í annarri hverri
umferð þar til ermin er 55 (56) 56
(57) cm. Fellið af 2 lykkjur í hverri
byrjun hverrar umferðar og eina í lok
hverrar umferðar þar til 15 lykkj. eru
eftir. Fellið allt af.
K r a g i n n : Fitjið upp 109
lykkj. á prjóna nr. 5V2 og prjónið
Teygið stykkin út svo að brjóst-
víddin verði 12 cm meiri en hin rétta
og pressið stykkin með votum kút.
Teygið kragann einnig út og saumið
hann fastan við hálsmálið og tyllið
honum lauslega að utan.
Athugið vel mynzturmyndina.
Hringurinn er hvítur, krossinn gul-
ur. Einnig má hafa mynztrið alhvítt,
eða algult.
tvær umferðir sléttar. Prjónið síðan
mynztrið. í 14. umferð eru 2 lykkj.
teknar úr mitt á milli stjarnanna og
ein lykkj. í lokin (9 lykkjur) eftir
að mynztrinu lýkur er ein umferð
prjónum brugðin. Þá er skipt yí'ir á
prjóna nr. 4 og prjónaðar tvær slétt-
ar og 2 brugðnar : 9 cm stykki. Fellt
af.
22
FRÚIN