Stígandi - 01.10.1947, Blaðsíða 99
H. f. Eimskipafélag íslands.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags íslands verður haldinn í
Kaupþingssalnum í húsi félagsins ( Reykjavík, laugardaginn 5. júní 1948
og hefst kl. 1,30 e. h.
Dagskrá:
I. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári,
og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni,
og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. des-
cmber 1947 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda,
svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsis, í stað þeirra sem úr ganga
samkvæmt félagslögum.
4. Kosning eins endurskoðenda í stað þess er frá fer, og eins varaendur-
skoðanda.
5. Tillögur til breytinga á reglugjörð Eftirlaunasjóðs H. f. Eimskipafélags
íslands.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða
borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðs-
mönnum hlutahafa á skrifstofu félagsins i Reykjavík, dagana 2. og 3. júní
næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á
aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík.
Reykjavík, 6. janúar 1948.
Stjórnin.