Fréttablaðið - 28.02.2013, Síða 18

Fréttablaðið - 28.02.2013, Síða 18
28. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 18 Tími fyrir forsáningu nokkurra tegunda sumarblóma, eins og til dæmis stjúpu, tóbakshorns og fagur fífils, er kominn. Þeir sem ætla að rækta tómata og gúrkur í sumar ættu að byrja á forræktun núna, að sögn Steinunnar Reynis- dóttur garðyrkjufræðings. „Það er auðvitað hægt að sá núna fyrir kryddjurtum til að hafa inni og svo aftur fyrir þeim sem eiga að fara út í garð. Fyrir þá sem nota mikið af kryddjurtum borg- ar sig að vera með þær á nokkrum stigum,“ tekur Steinunn fram. Forræktun tekur yfirleitt þrjár til sex vikur og er það misjafnt eftir tegundum. Forræktun rós- maríns getur tekið allt að átta vikur. Sum fræ spíra á nokkrum dögum. Steinunn segir mikilvægt að vera með hrein ílát og verkfæri við sáninguna. Hefja á forrækt- un sumarblóma og kryddjurta í 18 til 22 stiga hita. „Sáðmold er nauðsynleg því að pottamold er of sterk fyrir spírandi fræ. Þegar sáð er þarf að vera búið að vökva moldina eða láta bakkann í vatn og láta moldina sjúga vatnið upp í sig. Þegar hún er orðin dökk á yfirborðinu er hún búin að fylla sig. Setja á mold yfir stór fræ en ekki lítil. Ef fræin eru lítil er nóg að þrýsta þeim aðeins niður í moldina. Með því að breiða plast yfir bakkann helst rakinn í moldinni. Til að fá súrefni þarf að setja nokkur göt í plastið. Gott er jafn- framt að úða aðeins yfir moldina reglulega. Ef rakinn er ekki nógu mikill spíra fræin ekki. „Það er ekki hægt að sá og fara svo í viku eða tíu daga frí,“ segir Steinunn. Um leið og eitthvað sést koma út úr fræjunum á að taka ábreiðuna af moldinni. Þegar sumarblómin eru farin að mynda þrjú til fjögur blöð má færa plöntuna á svalari stað. Ekki þarf að flytja kryddjurtir í sval- ara umhverfi þegar blöðum fer að fjölga, að því er garðyrkju- fræðingurinn greinir frá. Verði stilkurinn á plöntunni þunnur og ræfilslegur er líklegt að of dimmt eða of heitt hafi verið á fræjunum. „Ef birtan er ekki nóg en hitinn mikill verða plönturnar teygðar. Jafnvægi þarf að vera á milli birtu og hita.“ ibs@frettabladid.is Forræktun sumarblóma og kryddjurta Ekki hægt að sá og fara svo í viku frí. Raki þarf að haldast í moldinni. Gæta þarf að birtu og hitastigi. Plönturnar færðar út í beð þegar ekki er hætta á næturfrosti. Fígúran „Skotti á hjóli“ sem sett var á páskaegg frá Freyju árið 2011 og 2012 uppfyllir ekki kröfur sem gerðar eru til leikfanga, að því er segir í frétt á vef Neytendastofu. Fólk er hvatt til að athuga hvort þessi vara leynist í leikfangakössum og farga henni þar sem full- nægjandi gögn um öryggi vörunnar eru ekki til. Nýjar fígúrur sem skreyta páskaegg Freyju í ár uppfylla formleg skilyrði um öryggi og merkingar sem gerðar eru til leikfanga. ELDRI GERÐ AF SKOTTA Á HJÓLI EKKI Í LAGI SÁNING Mikilvægt er að vera með hrein verkfæri og ílát við sáningu, að sögn Steinunnar Reynisdóttur garðyrkjufræðings. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Þegar hætta á næturfrosti er að mestu yfirstaðin eru plönt- urnar færðar út í beð. Gott er að herða plönturnar áður, til dæmis með því að setja bakkana eða pottana út á daginn og inn aftur á kvöldin í nokkra daga eða flytja þær út í gróðurkassa með loki. Útplöntun sumarblóma og kryddjurta lífrænt.is vökvi lífsins kókoshnetuvatn einungis unnið úr ungum kókoshnetum frískandi svaladrykkur, beint úr brunni náttúrunnar! Náttúrulegur drykkur sem slekkur þorstann, unninn úr lífrænt rækt- uðum kókoshnetum. Án allra aukefna, mjólkursykurs, kólesteróls og rotvarnarefna. Stútfullur af nauðsynlegum amínósýrum. Af 101 bíl sem kom í Tjóna- skoðunarstöð VÍS fyrstu átta vikur ársins reyndust 13% á sumardekkjum, 28% á negldum dekkjum og 59% á vetrar- eða heilsársdekkjum. Á fimmtungi bíla voru dekkin of slitin til að heimilt væri að aka á þeim, það er dýpt mynstursins var innan við 1,6 millimetrar. Þetta kemur fram í frétt á vef VÍS þar sem segir jafnframt að í janúar hafi tryggingafélag- inu borist yfir 100 tilkynningar um aftanákeyrslur. Fimmtungur bíla á ónýtum dekkjum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.