Fréttablaðið - 28.02.2013, Blaðsíða 59
FIMMTUDAGUR 28. febrúar 2013 | MENNING | 43
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2013
Félagsvist
20.00 Félagsvist Rangæinga og
Skaftfellinga verður haldin í Skaftfell-
ingabúð, Laugavegi 178. Allir velkomnir
og gott með kaffinu.
Upplestur
18.00 Illugi Gunnarsson les 21.
Passíusálminn í Grafarvogskirkju í til-
efni föstunnar.
Uppákomur
12.15 Teiknimyndahöfundurinn Hug-
leikur Dagsson velur og segir frá
uppáhaldsverki sínu á sýningunni Flæði
á Kjarvalsstöðum.
Bókmenntir
20.00 Menningarmiðstöðin Gerðubergi
heldur bókakaffi, í samstarfi við Borgar-
bókasafn Reykjavíkur, Gerðubergssafn.
Jón Björnsson hefur umsjón með
kaffinu og fær í heimsókn til sín þær
Sigrúnu Óskarsdóttur, Unni Guttorms-
dóttur og Jónínu Einarsdóttur.
Málþing
15.00 Sveitafélagið Hornafjörður efnir
til ráðstefnu um orkumál á Hótel Höfn
í Hornafirði. Aðgangur er ókeypis.
Tónlist
21.00 Hljómsveitin Skálmöld heldur
tónleika í félagsheimilinu Hnífsdal.
Tónleikarnir eru hluti af Íslandstúr
hljómsveitarinnar sem gengur undir
yfirskriftinni Myrkur, kuldi, ís og snjór
2013. Miðaverð er kr. 3.000.
21.00 Hljómsveitin Ylja heldur tónleika
á Café Rosenberg.
21.00 Bandaríski gítarleikarinn Aaron
Walker spilar á Græna hattinum á Akur-
eyri ásamt Birni Thoroddsen og fleirum.
22.00 Magnús Einarsson heldur
tónleika í minningu George Harrison
í tilefni af 70 ára afmæli hans. Fram
koma góðir gestir en tónleikar verða
haldnir á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg
8. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
23.00 Hljómsveitin Hellvar heldur
óvenjulega tónleika á Gamla Gauknum.
Tilefni tónleikana er að kveðja gítar-
leikarann Baldur Sívertsen, sem flytur
nú til Berlínar. Klaus hitar upp fyrir
hljómsveitina og aðgangur er ókeypis.
Leiðsögn
20.00 Sirra Sigrún Sigurðardóttir tekur
þátt í leiðsögn og ræðir við gesti um
sýningu sína, Brot, í Hafnarborg.
Fyrirlestrar
17.15 Fjórða og síðasta erindið um
Tímann verður haldið í Bókasafni Kópa-
vogs. Sigríður Kristjánsdóttir jarðeðlis-
fræðingur talar og aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að
skrá þá inni á visir.is.
Fyrrverandi eiginmaður söng-
konunnar sálugu Amy Winehouse,
Blake Fielder-Civil, opnaði sig
um hjónabandið í viðtali við sjón-
varpsmanninn Jeremy Kyle fyrir
stuttu. Þar viðurkenndi hann til
dæmis að hafa kynnt Winehouse
fyrir heróíni í fyrsta sinn, eiturlyfi
sem hún ánetjaðist og dró hana til
dauða sumarið 2011. „Auðvitað sé
ég eftir þessu í dag og ég geri mér
grein fyrir því að ég ber einhverja
ábyrgð á dauða hennar.“
Fielder-Civil er edrú í dag og
á tvö börn með núverandi eigin-
konu sinni. Hann giftist Winehouse
í Miami árið 2007 og parið skildi
2009 eftir stormasamt hjónaband.
Kynnti Winehouse fyrir heróíni
Árleg byssusýning Veiðisafnsins
á Stokkseyri í samvinnu við versl-
unina Vesturröst verður haldin 2.
og 3. mars. Þar verður fjölbreytt
úrval skotvopna til sýnis svo sem
haglabyssur, rifflar, skamm-
byssur og herrifflar, ásamt ýmsu
frá landskunnum söfnurum, þar á
meðal Sverri Scheving Thorsteins-
syni, Sigurði Ásgeirssyni, Einari
frá Þverá og Drífu-haglabyssur
frá Jóni Björnssyni heitnum frá
Dalvík.
Jóhann Vilhjálmsson byssu- og
hnífasmiður verður á staðnum og
félagar úr Bogveiðifélagi Íslands
kynna sína starfsemi.
Byssusýning
um helgina
MEÐ BYSSUSÝNINGU Páll Reynisson
stendur fyrir hinni árlegu byssusýningu
á Stokkseyri.
OPNAÐI SIG UM HJÓNABANDIÐ Blake Fielder-Civil viðurkenndi í sjónvarps-
viðtali að hann bæri einhverja ábyrgð á dauða söngkonunnar Amy Winehouse
eftir að hafa kynnt hana fyrir heróíni. NORDICPHOTOS/GETTY
Enginn
viðbættur sykur,
ekkert ger.
Þeir sem hugsa um hollustuna velja BURGER hrökkbrauð.
Í því er enginn viðbættur sykur og ekkert ger.
Það er líka einstaklega bragðgott!
Það er engin tilviljun að BURGER
er vinsælasta hrökkbrauðið á Íslandi.
NÚ ER AÐ
HRÖKKVA EÐA
STÖKKVA
HUGSAÐU UM
HOLLUSTUNA!