Fréttablaðið - 28.02.2013, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 28.02.2013, Blaðsíða 58
28. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42 BÆKUR Boðskapur Lúsífers Tom Egeland. Kristín R. Thorlacius þýddi. JPV-ÚTGÁFA Norðmaðurinn Tom Egeland skrifar bækur í svipuðum dúr og Dan Brown og var reyndar fyrri til að skrifa um hjónaband Jesú Krists og Maríu Magdalenu og afkomendur þeirra, en vill þó ekki meina að Brown hafi stælt sig og stolið plottinu. Sumar hug- myndir séu bara í andrúmsloftinu og algengt að höfundar grípi þær á sama tíma. Boðskapur Lúsífers er fjórða bók Egelands sem kemur út á íslensku og sem fyrr er það albínóinn Björn Beltö, norskur fornleifafræðingur, sem er í hlut- verki spæjarans. Að þessu sinni finnur hann hluta forns handrits í Kænugarði og lendir um leið í hringiðu djöfladýrkunar, alþjóð- legrar rannsóknar sem rekin er af CIA og ástarsambandi við dular fulla konu frá Amsterdam. Inn í söguna fléttast svo saga ítalsks djöflafræðings sem horf- ið hafði af yfirborði jarðar um 1970 eftir að hafa fengið í hendur svipað handrit. Það skortir ekkert á æsilega atburði í Boðskap Lúsífers, morð- in reka hvert annað og Beltö er á stöðugum flótta, dauðhrædd- ur um líf sitt. Grimmdarverkin falla þó algerlega í skuggann af „fræðitextum“ ýmiss konar sem smátt og smátt raðast saman í ótrúlega sögu sem ansi erfitt er að trúa og hrífast með í. Grunn- spurning rannsóknarinnar er: hver var Lúsífer? Hvaðan kom hann? Hvert var hlutverk hans? Og eins og gefur að skilja þarf að spinna allhressilega til að koma kenningu höfundarins og lausn gátunnar heim og saman. Eflaust bráðskemmtilegar pælingar fyrir þá sem hrífast af slíkum fræðum, en ansi seigar undir tönn fyrir efasemdamenn. Stærsti galli sögunnar sem glæpasögu er þó hve lítil spenna er í henni. Hún fer hressilega af stað og til að byrja með er les- andinn spenntur fyrir því hvaða öfl það eru sem etja kappi við Beltö um handritið, myrða sam- starfsfólk hans og hafa greinilega komið ítalska djöflafræðingnum fyrir kattarnef 30 árum fyrr. Þegar á líður fer þó hinn „fræði- legi“ hluti sögunnar að taka æ meira pláss, botninn dettur úr spennusögunni og eftir standa ansi langsóttar kenningar um orsakir trúarinnar á að Lúsífer hafi verið fallinn engill. Mikil vonbrigði fyrir spennufíkla. Friðrika Benónýsdóttir NIÐURSTAÐA: Forvitnileg saga sem fer vel af stað en leiðist smám saman út í ansi langsóttar kenningar og spennan gufar upp. Voru djöflarnir geimfarar? - opinn fundur Advania föstudaginn 1. mars SharePoint Ráðgjafar Advania verða á staðnum Strax eir fundinn gefst gestum færi á að ráðfæra sig við Sharepoint sérfræðinga Advania um innleiðingu og hagnýtingu á SharePoint og tengdum lausnum. Hvar og hvenær Morgunverðarfundurinn verður í höfuðstöðvum Advania, Guðrúnartúni 10, kl. 08.00 – 10.30. Húsið opnar kl. 8 með hressandi morgunmat, en dagskráin hefst stundvíslega kl. 8.30. Skráning Skráðu þig á advania.is – aðgangur er ókeypis og öllum opinn meðan húsrúm leyfir. Guðrúnartún 10 | 105 Reykjavík | Sími 440 9000 | advania@advania.is | www.advania.is Taktu þá á Twier: #Advania Allt sem þú vildir vita um SharePoint og tengdar lausnir á einum fundi Kafað verður ofan í virkni og viðmót SharePoint 2013 og hvernig nýta má hagkvæmar lausnir með skýlausnum eins og Office 365. Spjallað verður um samhæfingu SharePoint og viðskiptagreindar og hvernig tryggja má árangursríka og skemmtilega innleiðingu. Dagskrá: 8.00 Húsið opnar 8.30 Advania býður góðan dag Gestur G. Gestsson forstjóri 8.40 Microso SharePoint 2013 Sigvaldi Óskar Jónsson, ráðgjafi hjá Advania 9.20 Office 365-skýið og Advania-lausnir með EasyStart Jóhann Áki Björnsson, ráðgjafi hjá Advania 9.35 Microso SharePoint Business Intelligence Haraldur Haraldsson, ráðgjafi hjá Advania 9.50 Innleiðing skjalakerfis með húmor og gleði Svala Rún Sigurðardóir, vinnusálfræðingur og skjalastjóri hjá Icelandair Group 10.30 Fundarlok bros á vör innlei og notað með E.L. James, höfundur metsölu- bókarinnar Fimmtíu grárra skugga og tveggja framhaldsbóka, segir að kynlífinu verði stillt í hóf í næstu skáldsögu sinni. James ræddi við blaðamann New York Post í veislu á vegum Vanity Fair eftir Óskarsverð- launahátíðina á sunnudag. Þar sagðist hún vera að vinna að bók „sem verður ekki nærri því jafn krassandi og líklega gefin út undir öðru höfundarnafni“. James hefur varist frétta um efni næstu bókar sinnar fyrir utan að það sé ástarsaga. Hún segir hins vegar ólíklegt að hún eigi eftir að skrifa fleiri bækur um söguhetjurnar í Skuggaþríleikn- um, Anastasiu Steele og Christian Grey. „Aldrei að segja aldrei en þau sitja á hakanum í bili. Ég er með nokkrar aðrar sögur sem mig lang- ar að skrifa fyrst,“ skrifaði hún á heimasíðu sína á dögunum. Þeir sem komust á bragðið með bókum James um BDSM-kynlíf þurfa þó ekki að örvænta. Breska forlagið Headline hefur tryggt sér útgáfuréttinn á þríleik eftir Tara Sue Me sem gengur undir heit- inu Submissive, sem gæti útlagst Undir gefni á íslensku. Fyrsta bókin, Dominant, eða Ráðandi, fjallar um eldheitt samband for- stjórans Nathaniels og bókasafns- fræðingsins Abby og hefur vakið mikla athygli á netinu. E.L. James dregur úr kynlífi nu í næstu bók Höfundur Fimmtíu grárra skugga er ekki með framhald á Skuggaþríleiknum á prjónunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.