Fréttablaðið - 28.02.2013, Blaðsíða 34
FÓLK|TÍSKA
Rauði dregillinn á Óskarsverðlaunahá-
tíðinni væri ekki samur ef vantaði
rauðan kjól frá Valentino. Tískuspek-
úlantar urðu ekki fyrir vonbrigðum
í ár enda skörtuðu bæði Hilary
Swank og Sally Field fagurrauðum
kjólum frá hönnuðinum vinsæla.
Kjólarnir þóttu æði líkir og svip-
aðir þeim sem söngkonan Rihanna
klæddist á Grammy-verðlauna-
hátíðinni fyrr í mánuðinum.
Allar eru þær þó glæsilegar á
að líta að venju.
HILARY SWANK SALLY FIELD
FAGRAR Í VALENTINO
RIHANNA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
HÖNNUN
Heiða Jónsdóttir er
listrænn stjórnandi
sýningar Fatahönnunar-
félags Íslands.
MYND/DANÍEL
Þetta verður meira eins og hefð-bundin listsýning en tískusýning. Innihaldið er tíska en það verða
engin föt,“ segir Heiða Jónsdóttir,
listrænn stjórnandi sýningarinnar
RAMMAGERÐ/FRAMED sem Fata-
hönnunarfélag Íslands stendur fyrir á
HönnunarMars.
Á sýningunni munu ellefu íslensk
fatahönnunarfyrirtæki sýna fjölbreyti-
leika starfs fatahönnuða og vinnuferli
þeirra gegnum tískuteikningar, sem
unnar verða í mismunandi miðlum í
samvinnu við listamenn. Þau fyrirtæki
sem skara fram úr í íslenskri fatahönn-
un í dag voru valin inn á sýninguna.
„Við Ragnheiður Axel verkefnastjóri
völdum fyrirtæki sem okkur þóttu
framúrskarandi og sýna einnig breidd.
Þetta eru ólík fyrirtæki sem öll hafa
náð langt og eru með því besta sem
er að gerast í fatahönnun á Íslandi í
dag. Þau eru einnig öll meðlimir í Fata-
hönnunarfélagi Íslands. Við lögðum
upp með að hönnuðirnir sýndu nýj-
ustu línu fyrirtækisins í gegnum tísku-
teikningar og sýndu þar með nýja hlið
á fatahönnun á Íslandi. Tískuteikning
sem miðill hefur ekki verið rótgróinn
hér á landi en undanfarið hefur þó
verið gróska í tískuteikningum. Það
hittir til dæmis svo skemmtilega á að
sama dag og við opnum opnar Helga
Björnsson einnig sýningu á tískuteikn-
ingum á Kex. Fólk getur þá farið á tvær
tískuteikningasýningar samdægurs en
það er ekki oft sem það er hægt,“ segir
Heiða.
Þetta er í fyrsta sinn sem Félag
fatahönnuða sýnir starf fatahönnuða
á þennan hátt en markmið félagsins
er að kynna nýjar hliðar á faginu á
HönnunarMars á hverju ári. Ramma-
gerð verður opnuð í Artíma Gallerí á
Skúlagötu 28 miðvikudaginn 13. mars
klukkan 16 og stendur til 25. mars.
Þau fatahönnunarfyrirtæki sem
taka þátt í RAMMAGERÐ/FRAMED eru
meðal annars EYGLO með verk unnið
af Emil Ásgrímssyni, Hildur Yeoman
með eigið verk, JÖR by GUÐMUNDUR
JÖRUNDSSON með verk unnið í sam-
starfi við Sindra Má Sigfússon og
Örvar Þóreyjarson Smárason, Kron by
KronKron, MUNDI, STEINUNN og REY
svo einhverjir séu nefndir. Nánar má
forvitnast um RAMMAGERÐ/FRAMED
á Facebook. ■ heida@365.is
FATAHÖNNUN Í
ÝMSUM MIÐLUM
HÖNNUNARMARS Ellefu fatahönnunarfyrirtæki sýna vor-, sumar- og haust-
línur sínar fyrir árið 2013 á HönnunarMars en þó verður engar flíkur að sjá.
Holtagörðum, s. 553-1800
Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-15
www.facebook.com/fondurlist
Föndur úrvalið er hjá okkur
Skipholti 29b • S. 551 0770
Ný sending!
Parísartízkan 50 ára.
50%afsláttur af vel völdum
vörum í verslun.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Flott föt fyrir flottar konur
st. 38 – 58
afsláttur af
öllum
útsöluvörum
*
LOKA-ÚTSÖLULOK
*70% afsláttur frá upphaflegu verði
- reiknast af á kassa
70%
SAMFÉLAGSVERÐLAUN
FRÉTTABLAÐSINS
visir.is/samfelagsverdlaun
að senda t
ilnefninga
r
er til miðn
ættis þann
Frestur til
14. mars