Fréttablaðið - 28.02.2013, Qupperneq 32
28. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 32
Þriðjudaginn 19. febrú-
ar birtist í Fréttablaðinu
grein eftir Þröst Ólafs-
son undir yfirskriftinni
„Á vængjum óttans“. Þar
heldur hann því fram á
óvenju ósvífinn hátt að
andstaðan við aðild að
Evrópusambandinu bygg-
ist á tilfinningum og trúar-
setningum en skynsemis-
rök mæli með aðild. Hann
gerir ekki tilraun til að
rökstyðja þetta álit á neinn
hátt heldur spinnur út frá
því eins og það sé sjálfgefið. Þar
með er hann búinn að gera sína
skoðun að trúarsetningu og það er
aðeins ein af mörgum þversögnum
í greininni.
Sannleikurinn er sá að skyn-
semisrökin mæla eindregið gegn
aðild að ESB fyrir stærstan hluta
þjóðarinnar, fyrir alþýðuna. Þau
benda ekki til aukinnar velferð-
ar og velgengni innan ESB. Þvert
á móti er það stefna ESB að auka
markaðsvæðingu og einkarekst-
ur í velferðarkerfinu til hins ýtr-
asta. Fyrir tveimur árum var t.d.
Dönum skipað að skera niður opin-
ber framlög til velferðarmála um
30 milljarða danskra króna alveg
óháð því hvort ríkiskassinn þyrfti
á því að halda.
Efnahagslegur vígvöllur
Evrópusambandið er einn efna-
hagslegur vígvöllur þar sem þeir
ríkustu geta hindrunarlítið lagt
undir sig allt sem tönn á fest-
ir og notað það til að auka enn á
ójöfnuðinn. Fyrir nokkrum árum
voru uppi mikil áform um að gera
Ísland að miklu fjármálaveldi sem
myndi skáka öðrum fjármála-
miðstöðvum. Það fór ekki
vel eins og flestum er ljóst.
Það er ekkert sem bendir
til þess að Ísland kæmist
betur frá efnahagsvígvelli
Evrópusambandsins. Fleira bendir
til að við lentum í svipaðri stöðu og
Grikkir, sem eru þvingaðir til að
taka stærri og stærri „lán“ á verri
og verri kjörum til að bjarga bönk-
unum meðan fólkið sveltur.
Til að bæta lífskjör hér á landi
þarf fyrst og fremst að auka jöfn-
uð. Til þess þarf meira af félags-
legum lausnum og að vinda ofan af
markaðsvæðingu á innviðum sam-
félagsins. Það mun einnig renna
stoðum undir stöðugleika og styrk
gjaldmiðilsins. Til að þetta nái
fram að ganga þurfum við á sjálf-
stæði okkar að halda til að geta
tekið lýðræðislegar ákvarðanir
í þágu yfirgnæfandi meirihluta
þjóðarinnar.
Það þarf því engan ótta til að
beita sér gegn aðild að ESB. Bara
skynsemi. Það sem aðildarsinnar
óttast hins vegar er að þeim takist
ekki að blekkja okkur inn í sam-
bandið áður en það leysist upp í
innri mótsetningum fyrir allra
augum. Þess vegna reyna þeir að
flýja veruleikann til að blekkja
almenning. Langsótt málskrúð
Þrastar Ólafssonar er eins konar
hækjur þess flótta.
Viðbrögð í framhaldi af
ósk Landsnets um að til-
tekin landréttindi verði
tekin eignarnámi vegna
Suðurnesjalínu 2 voru að
mörgu leyti fyrirsjáan-
leg. Hörð gagnrýni
Landverndar kemur til
dæmis ekki á óvart þar
sem hamrað er á því að
ákvörðun um að reisa
línuna tengist stóriðju í
Helguvík. Því er til að
svara að óvissa ríkir um stóriðju-
framkvæmdirnar en hvað sem
stóriðju líður er brýnt að styrkja
flutningskerfið og auka öryggi
þess í þágu íbúa og fyrirtækja á
Reykjanesi.
Í rammaáætlun um virkjan-
ir eru nokkrir virkjunarkostir í
nýtingarflokki á Reykjanesi og
af þeim sökum nauðsynlegt að
byggja flutningsmannvirki sem
geta flutt orkuna frá þeim til
kaupenda hennar. Nýja línan fell-
ur ágætlega að þessum þörfum og
mun jafnframt nýtast til flutn-
ings fyrir kaupendur orkunnar
hvort sem þeir verða í Helguvík
eða annars staðar á Reykjanesi.
Í því ljósi er mér ómögulegt að
skilja fullyrðingu um að Lands-
net ætli að ráðast í milljarða-
fjárfestingar að nauðsynjalausu!
Landsnet gegnir því lagalega
hlutverki að tryggja öruggt og
hagkvæmt raforkukerfi á Íslandi
en um leið að gæta að umhverfis-
áhrifum nauðsynlegra flutn-
ingsvirkja. Flutningsvirki eru
vissulega inngrip í náttúruna
hvort heldur er með loftlínum
eða jarðstrengjum. Þau eru samt
nauðsyn leg, enda er flutn-
ingskerfið í vissum skiln-
ingi lífæð samfélagsins
og því mikilvægt að slík-
ir innviðir séu traustir.
Sveigjanleiki og öryggi
Landsnet leggur mikið upp úr
því að reisa línur meginflutn-
ingskerfisins þannig að þær hafi
næga flutningsgetu til að mæta
þörfum framtíðarinnar. Sé tekið
mið af þeim virkjunum sem
fyrir hugaðar eru í ramma áætlun
er betri kostur að nota 220 kV
línur fyrir meginflutningskerfið
frekar en línur með lægri flutn-
ingsgetu. Þannig þjónar ein 220
kV lína sama hlutverki og fleiri
línur á lægri spennu, sem verð-
ur að teljast jákvætt með tilliti
til umhverfis. Jafnframt skipt-
ir miklu máli að lítill munur er
á sjónrænum áhrifum af 220
kV og 132 kV línum. Að meðal-
tali eru 220 kV línur 3-4 metrum
hærri en 132 kV línurnar. Öflugar
línur auka sveigjanleika kerfis-
ins verulega og öryggi flutnings
sömuleiðis. Þetta getur skipt
sköpum í illviðrum eða þegar
náttúruhamfarir verða.
Í grein eftir framkvæmdastjóra
Landverndar í Fréttablaðinu 22.
febrúar segir að samkomulag
hafi orðið um nokkur mikilvæg
atriði í svokallaðri jarðstrengja-
nefnd sem skilaði stjórnvöldum
niðurstöðu fyrir skömmu. Honum
finnst undarlegt að Landsnet
kannist ekki við það, þrátt fyrir
að forstjóri fyrirtækis ins hafi
undirritað skýrsluna. Því er til
að svara að Landsnet tekur heils-
hugar undir þau atriði sem sam-
komulag var um og mun að sjálf-
sögðu hafa þau til hliðsjónar. Það
staðfesti ég í viðtali í hádegis-
fréttum Rúv 20. febrúar sl. Hér
fer því Landvernd með rangt
mál. Engu að síður mótaði nefnd-
in enga stefnu um lagningu jarð-
strengja, sem var samt megin-
verkefni hennar. Stjórnvöld og
Alþingi verða hér að taka af skar-
ið, rétt eins og stjórnvöld víðast
hvar í Evrópu hafa gert.
Í vetur hafa orðið tíðari trufl-
anir í flutningskerfinu vegna veð-
urs en á undanförnum áratug. Í
þeim hafa veikleikar kerfisins
komið betur í ljós og afar brýnt að
ráðast í styrkingar til að tryggja
afhendingaröryggi rafmagns
sem víðast á landinu. Það mun
taka mörg ár að bæta ástandið og
mikilvægt að hefja framkvæmd-
ir sem fyrst. Fyrir framhaldið er
því brýnt að Alþingi móti stefn-
una.
➜ Flutningsvirki eru vissulega inngrip í náttúruna
hvort heldur er með loftlínum eða jarðstrengjum.
Þau eru samt nauðsynleg, enda er fl utningskerfi ð í
vissum skilningi lífæð samfélagsins og því mikilvægt
að slíkir innviðir séu traustir.
„Á sama tíma kom VG út
úr skápnum sem einhvers
konar krataflokkur með
áherslur á kvenfrelsi og
umhverfismál. Það er ekki
að sjá á samþykktri stjórn-
málaályktun flokksins að
hann sé róttækur vinstri
flokkur, sem er samt sú
skilgreining sem marg-
ir flokksmenn hans vilja
kenna sig við.“
Þannig kemst leiðarahöf-
undur Fréttablaðsins í dag
(27. febrúar 2013) að orði og ræður
sér ekki fyrir kæti yfir kúvend-
ingu landsfundar Vinstri grænna
á stefnuskrá flokksins. Með því að
samþykkja áframhald aðlögunar að
ESB og klára það ferli er flokkurinn
(VG) „allt í einu orðinn möguleiki
í þriggja flokka stjórn með Bjartri
framtíð og Samfylkingu“.
Og ritstjóri Fréttablaðsins er
bjartsýnn fyrir hönd ESB-sinna:
„Að lokum er ljóst að innan bæði
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks eru margir Evrópusinnar.
Þeir gætu ákveðið að kjósa áfram-
haldandi viðræður.“
Og skiljanlega ræður ritstjór-
inn sér ekki fyrir kæti eftir niður-
lægingu landsfundarins gagnvart
þeim hugsjónum sem VG var stofn-
að um en leiðaranum lýkur þannig:
„Hins vegar er möguleg þriggja
flokka stjórn tveggja keimlíkra
frjálslyndra jafnaðarmannaflokka
og vinstriflokks, sem er að mörgu
leyti hættur að haga sér eins og
vinstriflokkur, með áframhaldandi
aðildarviðræður sem aðalmál. Þetta
verður athyglisvert.“
Það er mikil alvara á ferð
Rétt er að rifja upp að Vinstrihreyf-
ingin – grænt framboð var stofn-
uð til að standa vörð um frjálst og
fullvalda Ísland og berjast gegn
umsókn og aðild að ESB og á þeim
forsendum fórum við, frambjóð-
endur VG, í kosningarnar 2009 og
unnum stórsigur.
Því miður var sú stefna og þau
kosningaloforð brotin með umsókn-
inni að ESB vorið 2009. Því ferli átti
hins vegar að vera lokið vel innan
kjörtímabilsins samkvæmt
yfirlýsingu margra þeirra
sem guldu já við að senda umsókn-
ina til ESB.
Með landsfundarsamþykkt sinni
núna um áframhaldandi aðlögun
og aðildarvinnu að ESB er geng-
ið þvert á grunngildi og hugsjónir
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, hugsjónirnar sem
flokkur inn var einmitt stofnað-
ur um. Er nema vona að kratarnir
gleðjist. Jafnframt er sú staðreynd
herhvöt til okkar allra, þeirra sem
hafna þessu ferli og vilja standa
vörð um frjálst og fullvalda Ísland.
ESB hefur sitt á hreinu
Afstaða ESB er og hefur alltaf verið
ljós:
„Í fyrsta lagi er mikilvægt að
undirstrika það að hugtakið samn-
ingaviðræður getur verið misvís-
andi. Aðildarviðræður snúast um
skilyrði fyrir og tímasetningar á
upptöku umsóknarlands á reglum
ESB, framkvæmd þeirra og beit-
ingu. Um þessar reglur verður ekki
samið.“
„First, it is important to under-
line that the term „negotiation“
can be misleading. Accession nego-
tiations focus on the conditions and
timing of the candidate‘s adoption,
implementation and application of
EU rules – some 90,000 pages of
them. And these rules … are not
negotiable.“
Það á ekki að „kíkja í pakkann“
eða fara með blekkingar gagnvart
þjóðinni þegar fullveldi hennar er
annars vegar.
http://ec.europa.eu/enlargement/
pdf/publication/enl-understand_
en.pdf
„Út úr skápnum“ Öruggt dreifi kerfi
– líka á Suðurnesjum
Fyrir jólin birtust á heil-
síðum blaða kynningar
á jólabjór og léttvínum,
sem að mínum dómi eru
dulbúnar áfengisauglýs-
ingar, en þær eru bannað-
ar lögum samkvæmt. Slík-
ur áróður hlýtur að laða
fólk til drykkjuskapar og
auka áfengisvandann. Það
er því aldrei nógsamlega
varað við þeim hættum
og margvíslegu tjóni, sem
áfengi og önnur vímuefni
valda. Tilgangur með skrifum
þessum er að vekja athygli á nauð-
syn baráttu gegn áfengisbölinu og
hvetja til aukinnar bindindissemi.
Það veldur vonbrigðum að í
skrifum stjórnmálaleiðtoga um
áramótin og frambjóðenda fyrir
prófkjör flokkanna var ekki lögð
áhersla á baráttu gegn eitur-
lyfjum, en af þeim veldur áfengi
mestum skaða. Þótt enginn stjórn-
málaflokkur hér á landi hafi
ákveðna stefnu í áfengismálum
ættu ráðamenn að geta sýnt í orði
og verki jákvæðan hug til þeirra
mála svo sem með því að afnema
vínveitingar á vegum hins opin-
bera eins og Vilhjálmur Hjálmars-
son gerði í sinni ráðherratíð og
eftir var tekið.
Því miður virðast stjórnvöld
sofa á verðinum í því alvarlega
samfélagsvandamáli, sem hér
um ræðir. Þannig er óbreytt verð
á bjór og léttvínum á þessu ári
ekki fallið til þess að draga úr
áfengis drykkju og ekki til fram-
gangs þeirri ályktun, sem gerð
var á fundi Norðurlandaráðs á sl.
ári um að minnka áfengisneyslu á
næstu árum.
Viðvaranir lækna.
Á sama hátt og fólk er hvatt til
að hætta reykingum og stunda
hreyfingu er ekki síður mikil-
vægt heilsunnar vegna að forðast
áfengi. Meðal þeirra lækna, sem
fyrr á árum vöruðu við áfengis-
drykkju var Helgi Ingvarsson
yfirlæknir. Hann sagði: „Alkó-
hólið er meira þjóðfélagsböl og
meiri sjúkdómsvaldur
en nokkurt annað efni.“
Og frægur enskur lækn-
ir, William Gull, komst
í skýrslu sinni til enska
þingsins um áfengis mál
svo að orði: „Menn líða
mikið tjón á heilsunni við
stöðuga áfengisneyslu.
Þótt í hófi sé skemmir það
vefi líkam ans, eyðilegg-
ur heilsuna og andlega
hæfileika. Ég þekki varla
nokkra áhrifameiri orsök
hinna ýmsu sjúkdóma en áfengið.“
Óttar Guðmundsson geð læknir
telur í blaðaviðtali að stór hluti
þeirra sem reyna sjálfsvíg séu
undir áhrifum áfengis og að eina
róttæka forvörnin gegn sjálfs-
vígum mundi vera áfengisbann.
Þá hefur Kristinn Tómasson,
yfirlæknir Vinnueftirlitsins, í
erindi um áhrif lyfja og áfengis á
vinnufærni bent á að í dag teng-
ist veikindaþátturinn hjá aldurs-
hópnum 29-55 ára áfengisneyslu.
Ummæli þjóðarleiðtoga
Öllum er hollt að læra af lífs-
reynslu annarra. Þannig hefur
Tage Erlander, fv. forsætis-
ráðherra Svíþjóðar og leiðtogi
sænskra jafnaðarmanna, sagt að
loknum löngum stjórnmálaferli:
„Ég iðrast þess að hafa ekki staðið
í baráttunni gegn áfenginu meðan
ég var starfandi stjórnmála maður
með góðu fordæmi eins og gamli
kóngurinn. Ef ég væri að byrja
minn pólitíska feril myndi ég
lifa sem alger bindindismaður
og mæla með lífi án áfengis.“ Þá
var Kjell Bondevik, fv. forsætis-
ráðherra Noregs, ómyrkur í máli
um afstöðu sína til áfengis þegar
hann sagði: „Áfengi er eyðingarafl
sálar og líkama.“ Og ekki gleym-
ast varnaðarorð Ólafs Jóhannes-
sonar, fv. forsætisráðherra, þegar
hann í áramótaávarpi hvatti til
baráttu gegn áfengistískunni.
Allt tal áfengisvina um vínmenn-
ingu er hið mesta öfugmæli, enda
„gerir áfengið ekkert nema illt“
eins og Tolstoj komst að orði. Og
sjálfur Goethe sagði: „Ef ég gæti
rekið áfengi burt úr heiminum
væri ég alsæll.“
Hófdrykkja engum til góðs
Mikilsvirtur hæstaréttar dómari
sagði í viðtali 1952: „Hófdrykkja
er vægast sagt engum til góðs
og kostar einstaklinginn og
þjóð félagið stórfé.“ Síðan hefur
áfengis neysla hér á landi marg-
faldast og tjónið af hennar völd-
um að sama skapi.
Engin skörp skil eru á milli
hófdrykkju og ofneyslu áfengis og
oftast er áfengi eins og eitt bjór-
glas kveikjan að notkun annarra
eiturlyfja. Þá hafa rannsóknir hér
á landi leitt í ljós að tveir af hverj-
um tíu, sem byrja að neyta áfeng-
is, eru taldir verða ofdrykkju
að bráð eða lenda í vandræðum
vegna drykkju sinnar.
Hætt er við að menn afsali
valdi yfir sjálfum sér með notk-
un vímuefna. Hvernig getur það
verið eftirsóknarvert að skerða
dómgreind, spilla heilsu sinni og
eiga það á hættu að valda sjálfum
sér og öðrum slysum og annarri
ógæfu vegna áfengisnotkunar?
Hvað sárast er þegar áfengis-
notendur raska heimilisfriði og
brjóta þann rétt barna að njóta
friðsæls og heilbrigðs fjölskyldu-
lífs. Svo harkalega er vegið að
rétti barna í þeim efnum, að full
ástæða er til að tryggja hann í
stjórnarskrá líkt og vilji er til um
önnur mikilvæg málefni.
Eina örugga ráðið gegn því að
lenda í klóm Bakkusar er að meina
honum aðgang í sitt líf og hafa
bindindishugsjónina að leiðarljósi.
Sofi ð á verðinum í áfengismálum
ESB-AÐILD
Jón Bjarnason
alþingismaður
RAFORKA
Þórður
Guðmundsson
forstjóri Landsnets
SAMFÉLAG
Árni
Gunnlaugsson
lögmaður í
Hafnarfi rði
➜ Með landsfundar-
samþykkt sinni núna
um áframhaldandi
aðlögun og aðildar-
vinnu að ESB er
gengið þvert á grunn-
gildi og hugsjónir...
➜ Til að bæta lífskjör
hér á landi þarf fyrst
og fremst að auka
jöfnuð.
➜ Engin skörp skil eru á
milli hófdrykkju og ofneyslu
áfengis og oftast er áfengi
eins og eitt bjórglas kveikjan
að notkun annarra eitur-
lyfja.Á hækjum fl óttans
ESB-AÐILD
Þorvaldur
Þorvaldsson
trésmiður og for-
maður Alþýðufylk-
ingarinnar