Fréttablaðið - 28.02.2013, Page 37
| FÓLK | 5TÍSKA
„Ég er orðinn svo leiður á minimalisma. Nú
er ég með lítið barn heima og heimilið er
fullt af litum,“ sagði fatahönnuður-
inn Tom Ford meðal annars, til
útskýringar á hressilegri lita-
og munsturgleði sem einkenn-
ir haust- og vetrarlínu hans
2013 en hann sýndi í London
í vikunni sem leið. Þetta var
fyrsta stóra sýning Toms
Ford undir eigin nafni
og fór hann um víðan
völl í sterkum litum,
miklu flúri, feldum og
útsaumuðum hnéháum
stígvélum við mittis-
jakka í ýktum stærð-
um. Í flíkunum mátti
sjá sebra munstur og
svartar blúndur í bland
við æpandi litaða loð-
feldi og teiknimynda-
leg munstur á kjólum.
Þótti lína Fords endur-
hvarf til gullára hans
snemma á tíunda
áratugnum þegar hann
vann fyrir Gucci.
FORD HORFIR TIL
GULLÁRA FORTÍÐAR
Æpandi litaðir
feldir voru meðal
þess sem Tom
Ford sýndi í Lond-
on. Sýningin þótti
afturhvarf til tí-
unda áratugarins
þegar Ford var
upp á sitt besta.
KJÓLAR DÍÖNU
BOÐNIR UPP
PRINSESSUKJÓLAR Nokkrir af þekktustu kjólum Díönu prinsessu af Wales
verða boðnir upp hjá Kerry Taylor uppboðshúsinu 19. mars.
VÍNRAUÐUR
DRAUMUR Þessum
vínrauða kjól eftir
Catherine Walker
klæddist Díana prins-
essa í opinberri
heimsókn til Kóreu
árið 1992. Hún var
einnig í honum
á frumsýningu
kvikmyndar-
innar Steel
Magnolias
í febrúar
1990.
GLITRANDI
GLAMÚR
Sægrænn
kjöldkjóll
úr smiðju
Catherine
Walker
sem Díana
klæddist í
opinberri
heim-
sókn í
Austur-
ríki árið
1989.
SVART FLAUEL
Svartur flauelskjóll
eftir Bruce Oldfield.
Í þessum kjól sat
Díana fyrir á ljós-
mynd sem tekin var
af Snowdon lávarði.
Hún var einnig í
honum á galasýn-
ingu Les Miséra-
bles í Barbican
Centre í október
1985.
PALLÍETTUK-
JÓLL Þessum
fílabeinslita
pallíettukjól
úr krepefni
klæddist Díana
í opinberri
heimsókn í
Brasilíu í apríl
1991.
PALLÍETTU-
KJÓLL Cather-
ine Walker hef-
ur verið í miklu
uppáhaldi hjá
Díönu prinsessu.
Þessi vínrauði
flauelskjóll er
eftir hana og var
Díana í honum í
opinberri heim-
sókn í Ástralíu
og á frumsýn-
ingu myndar-
innar Back to
the Future árið
1985.
Í HVÍTA HÚS-
INU Þessi dimmblái
kjöldkjóll er eftir
Victor Edelstein.
Honum klæddist
Díana í opinberum
kvöldverði í
Hvíta húsinu í
nóvember 1985.
Þá dansaði
prinsessan við
leikarann John
Travolta.
MERKILEGUR DANS Díana prinsessa var í svörtum flauelskjól
þegar hún dansaði við John Travolta í Hvíta húsinu 1985.