Fréttablaðið - 28.02.2013, Page 50
28. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 34TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
ANNA ÓLAFSDÓTTIR
Suðurlandsbraut 58, Reykjavík,
áður Hraunbæ 71,
andaðist á Landakotsspítala 21. janúar sl.
Útför hennar hefur farið fram.
Sigurbjörg Jóhannsdóttir
Ólafur Jóhannsson Guðrún Halldóra Sveinsdóttir
Theodór Jóhannsson Helga Erla Þórisdóttir
og fjölskyldur.
Faðir minn, tengdafaðir, afi og fósturfaðir,
JÓN DANÍELSSON
fyrrverandi skipstjóri,
Dunhaga 15, Reykjavík,
lést þann 19. febrúar sl. Útför hans
fer fram frá Neskirkju í dag, fimmtudag,
28. febrúar kl. 15.00.
Örn D. Jónsson Laufey Guðjónsdóttir
Steinunn Arnardóttir Leópold Kristjánsson
Ágústa Arnardóttir Einar Þorsteinn Arnarson
Pétur Emilsson Edda Sigurðardóttir
Kæru ættingjar og vinir, við þökkum ykkar
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar
ástkæru móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÞÓRÖNNU RÓSU VALDIMARSDÓTTUR
(STELLU)
Strikinu 8, Garðabæ.
Nærvera ykkar var ómetanleg. Sérstakar
þakkir færum við starfsfólki í Holtsbúð Garðabæ fyrir alla
alúð og frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Stefánsdóttir Felix Jóhannesson
Arnþrúður Stefánsdóttir
Gunnar Þór Stefánsson
Hanna Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR LÁRUSSON
frá Grundarfirði
Álfhólsvegi 99, Kópavogi,
lést sunnudaginn 24. febrúar á
Landspítalanum í Fossvogi. Útför hans fer
fram frá Hjallakirkju í Kópavogi þriðjudaginn
5. mars kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á Parkinsonsamtökin á Íslandi.
Elín Dagmar Valdimarsdóttir
Ragnheiður K. Sigurðardóttir Jón Erlendsson
Helga Gróa Sigurðardóttir Jan E. Bjerkli
Halldóra Dröfn Sigurðardóttir Einar Vilhjálmsson
Guðrún M. Sigurðardóttir
Valdimar Sigurðsson Halla Norland
Elínborg Sigurðardóttir Arnar Geir Nikulásson
barnabörn og barnabarnabörn.
Yndislegi eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR SIGURVIN
HANNIBALSSON
frá Hanhóli í Bolungarvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 25. febrúar. Útförin fer fram frá
Grindavíkurkirkju mánudaginn 4. mars kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Fyrir hönd aðstandenda,
Arnþrúður Margrét Jónasdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ÁSRÚN RAGNA ÞÓRÐARDÓTTIR
Hrafnistu í Kópavogi,
síðast til heimilis að Kópavogsbraut 1b,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
föstudaginn 1. mars kl. 13.00. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Steinunn Karlsdóttir
Jóhann Karlsson Ragnheiður Björnsdóttir
Þorbjörg Karlsdóttir Þórir Ingason
barnabörn, langömmubörn og langalangömmubarn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
GÍSLA S. JÓNSSONAR
Logafold 52, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
krabbameinsdeildum Landspítalans við
Hringbraut og heimahjúkrun Karítasar fyrir góða umönnun.
Simona Simonsen
Esther Gísladóttir Gunnlaugur V. Einarsson
Ingunn Gísladóttir Dan Sommer
Eva Ruth Gísladóttir Ásgeir Páll Gústafsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
Elliheimilinu Grund,
síðast til heimilis að Árskógum 8,
Reykjavík,
lést á Elliheimilinu Grund 19. febrúar sl.
Hún verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 1. mars nk. og hefst athöfnin kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Sigrún I. Benediktsdóttir
Guðmundur Örn Ragnarsson Ólína Erlendsdóttir
Rúnar Benediktsson Hrefna Sigurðardóttir
Margrét Ragnarsdóttir Albert Sævar Guðmundsson
Þorvaldur Benediktsson Rósa Ólafsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
tengdadóttir, amma og systir,
ANNA KARELSDÓTTIR
áður til heimilis á Kveldúlfsgötu 14,
Borgarnesi,
lést á Sólvangi 17. febrúar. Hún verður
jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn
1. mars kl. 13.00. Hugheilar þakkir fær
starfsfólk Roðasala fyrir umönnun hennar og hlýhug.
Starfsfólk á 2. hæð Hjúkrunarheimilisins Sólvangs fær sérstakar
þakkir fyrir alúð, faglega umönnun, hlýju, vináttu og stuðning í
veikindum hennar. Þeim sem vilja minnast Önnu Karelsdóttur er
bent á minningarsjóð Sólvangs.
Gestur Már Sigurðsson Harpa Þorleifsdóttir
Guðný Sigurðardóttir
Maríanna Sigurðardóttir Tómas Bentsson
Rut Ingimarsdóttir
ömmubörn og systkini.
Innilegar þakkir færum við fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR
Lækjasmára 8, Kópavogi.
Hinrik Lárusson
Lárus Hinriksson Freygerður Anna Baldursdóttir
Sigurður Hinriksson Elsa Jenný Halldórsdóttir
Guðbjörg Hinriksdóttir
Bryndís Hinriksdóttir Konráð Konráðsson
Sigrún Hinriksdóttir Þórir Gíslason
Ingibjörg Hinriksdóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÓSKAR ÖRN HÁLFDÁNARSON
Hrannargötu 6, Ísafirði,
lést á gjörgæsludeild LSH Fossvogi sunnu-
daginn 24. febrúar. Útför hans fer fram frá
Ísafjarðarkirkju laugardaginn 2. mars kl. 14.00.
Dagný Jóna Jóhannsdóttir
Sigurður G. Óskarsson Sigríður Laufey Sigurðardóttir
Guðbjörn Þór Óskarsson Jónína Sigríður Jónsdóttir
Hálfdán Óskarsson Sigríður Hrönn Jörundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Nú vinna menn ekki lengur í löggunni
en til 65 ára aldurs, samkvæmt lag-
anna hljóðan, og ég er að ná því marki,“
segir Kristinn Pedersen lögreglumaður
og kveðst algerlega tilbúinn að hætta.
Hann lærði upphaflega vélvirkjun og
vann í smiðju um tíma. „En ég átti kunn-
ingja í löggunni sem sögðu að ég ætti
að hvíla mig á vélvirkjuninni og koma
í lögguna og hér er ég búinn að vera að
hvíla mig í 42 ár!“ Hann kveðst þó hafa
haft fyrir stórri fjölskyldu að sjá og
verið í alls konar aukavinnu, meðfram
vaktavinnu í lögreglunni, meðal annars
að pakka og keyra út Wrangler-galla-
buxur og í dyravörslu á kvöldin. „Það
var ekki mikill afgangur af tíma í þá
daga,“ rifjar hann upp.
Lögreglunni var skipt í almenna deild
og umferðarlögregludeild þegar Krist-
inn byrjaði og hann hóf störf í almennri
deild. „Svo er ég búinn að koma víða við,
í slysarannsóknum, almennum rann-
sóknum, fíkniefnadeild og vegaeftirliti.
Það var gott að breyta til, þess vegna
hef ég enst svona lengi,“ lýsir hann.
Aðalbreytinguna á starfi lögreglunnar
segir Kristinn vera þá að þurfa að fást
við hinn harða heim fíkniefnaneytenda.
„Menn vissu hvar þeir höfðu þessa ölv-
uðu menn en það er erfiðara að reikna
út fíkniefnafólkið,“ segir hann.
Hvað kom svo til að hann byrjaði í
þinginu? „Það var fyrir átta árum að
Geir Jón Þórisson kallaði mig upp til
Böðvars Bragasonar sem spurði mig
hvort ég vildi ekki taka að mér að vera
í þinginu. Þeir vildu að ég ætti rólega
daga áður en ég hætti. Svo eru bara
búnir að vera bardagar síðan. Enda
sagði Geir Jón í gríni: „Það er alveg
saman hvar við látum þig, Kiddi. Þú
gerir allt vitlaust þar sem þú ert!“
Kristinn kveðst þó yfirleitt hafa getað
talað fólk til þegar til ágreinings hafi
komið á vettvangi þannig að hann hafi
sloppið sæmilega vel. Eitt það erfiðasta
hafi verið að stöðva „níumenningana“
sem ætluðu að storma inn í þingið í
desember 2008 og voru reyndar um 30
talsins. „Ég get ekki hugsað þá hugsun
til enda ef þetta fólk hefði komist inn á
þingið, í því ástandi sem það var. Það
hefði kostað eitthvað miklu meira en
það gerði,“ segir hann og kveðst hafa
verið eini lögreglumaðurinn í húsinu
þá, eins og alltaf. „Svo eru þingverðir í
annars konar þjónustu sem eiga ekki að
þurfa að standa í slagsmálum en stóðu
sig alveg svakalega vel í þessum átökum
sem stóðu yfir í alveg hálftíma.“
Kristinn kveðst hafa þurft að heim-
sækja lækna eftir þessa atburði, nýlega
hafi hann útskrifast eftir fingurbrot en
eftir sé að koma hné og ökkla í samt lag.
En þrátt fyrir að geta átt von á skyndi-
átökum, ölvun og ýmiss konar rugli
af gestum Alþingis segir hann þingið
góðan vinnustað. „Starfsfólk Alþingis
er úrvalsfólk og ég hef eignast marga
góða kunningja innan þingmannahóps-
ins, þannig að ég hef margs að sakna
héðan.“ gun@frettabladid.is
Í baráttunni í 42 ár
Kristinn Pedersen er að ljúka sínum 42 ára starfsferli í lögreglunni og endar hann á hinu
háa Alþingi. Óvíða hefur hann þó meiðst meira en þar.
ÞINGLÖGGAN „Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda ef þetta fólk hefði komist inn á
þingið,“ segir Kristinn um níumenningana sem hann lenti í að stöðva í desember 2008.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA