Fréttablaðið - 28.02.2013, Síða 62
28. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 46
Fyrsta plata
Katie Nash,
Made of
Bricks, náði
efsta sæti
breska listans.
1Enska tónlistarkonan Kate Nash gefur út sína þriðju plötu, Girl Talk, eftir helgi. Hún segir plötuna vera „yfirlýsingu um hvernig
það er að vera kona“.
Nash fæddist í London árið 1987 og var
móðir hennar írsk en faðirinn enskur. Eftir
að hafa gengið í kaþólskan skóla ákvað hún
að læra leiklist. Hún sótti um inngöngu í
hinn virta leiklistarskóla Bristol Old Vic en
fékk ekki inngöngu. Sagan segir að skömmu
síðar hafi hún dottið í stiga og fótbrotnað.
Þegar hún var heima að jafna sig keypti
mamma hennar gítar handa henni og byrjaði
hún í framhaldinu að snúa sér að tónlistinni.
Ísland kemur við sögu í uppgangi henn-
ar því eftir að hafa sett tónlist sína inn á
Myspace fóru hjólin að snúast. Fyrsta smá-
skífan hét Caroline´s a Victim og var tekin
upp á Íslandi af Valgeiri Sigurðssyni. Lagið
náði vinsældum á Myspace og var gefið út
af Moshi Moshi árið 2007.
Annað smáskífulag hennar Foundations
náði öðru sæti á breska smáskífulistanum og
skömmu síðar kom út fyrsta platan, Made of
Bricks, á vegum Fiction Records. Hún náði
efsta sæti á breska listanum og í framhald-
inu var Nash kjörin besti kvenkyns tónlist-
armaðurinn á Brit-verðlaununum.
Næsta plata, My Best Friend Is You, kom
út 2010 og var Bernard Butler, fyrrum gítar-
leikari Suede, upptökustjóri hennar. Hann
hafði áður verið einn af upptökustjórum
Rockferry, fyrstu plötu Duffy. Nash sendi
frá sér þrjár smáskífur af þeirri plötu
en engin þeirra náði álíka vinsældum og
Foundations. Hæst náði platan áttunda sæti
á breska listanum.
Í fyrra kom svo út EP-platan Death Proof
sem var nefnd í höfuðið á samnefndri kvik-
mynd Quentins Tarantino en leikstjórinn er
í miklu uppáhaldi hjá henni.
Auk tónlistarferilsins hefur Nash verið
að færa sig upp á skaftið í leiklistinni. Hún
fór með lítið hlutverk í Greeting From Tim
Buckley, sem fjallar um tónlistarmanninn
Jeff Buckley, og hún leikur einnig í mynd-
unum Syrup og The Powder Room.
freyr@frettabladid.is
Syngur um hvernig
það er að vera kona
Þriðja plata ensku tónlistarkonunnar Kate Nash, Girl Talk, kemur út eft ir helgi.
ÞRIÐJA PLATAN Kate Nash gefur út sína þriðju plötu, Girl Talk, eftir helgi. NORDICPHOTOS/GETTY
Kate Nash er mikill mannvinur og hefur lagt sitt af mörkum til stuðnings hinum ýmsu
málefnum. Hún notaði Myspace og Facebook til að vekja athygli á ungri stúlku sem hafði
misst báðar hendurnar og aðstoðaði við söfnun fyrir gervihöndum á eBay. Í uppþotunum í
Englandi árið 2011 safnaði hún peningum fyrir þá sem misstu heimilið í Tottenham og hún
studdi einnig við bakið á hljómsveitinni Pussy Riot þegar hún var fangelsuð í Rússlandi. Nash
er einnig nýkomin heim frá Gana þar sem hún var sendiherra fyrir bandarísku góðgerðar-
samtökin Plan International USA.
Styður við bakið á góðum málefnum
Eitt af eftirminnilegustu atriðunum á Iceland Airwaves 2011 var Chimera-
kvöldið í Norðurljósasal Hörpu. Þar kom Yoko Ono fram ásamt Plastic Ono
Band, en einnig nokkur önnur nöfn sem tengjast útgáfunni sem sonur
Yokoar, Sean Ono Lennon, stofnaði ásamt kærustunni Charlotte Kemp
Muhl árið 2009.
Chimera er nafnið á eldspúandi furðuveru úr grískri goðafræði. Hún
er ljón að framan, geit í miðju og dreki að aftan. Með svona nafn er hægt
að gera hvað sem er og það kemur engum á óvart að Chimera helgar sig
tilraunkenndri tónlist að stórum hluta, þó að inn á milli leynist poppaðri
hlutir. Á meðal listamanna útgáfunnar eru Sean sjálfur (kvikmyndaplatan
Alter Egos er nýkomin út), stúlknadúettinn Kemp & Eden og japanska
parið MI-GU sem einmitt spilaði í Hörpunni. Sú plata sem hefur vakið
hvað mesta athygli er samt samstarfsplata Yokoar Ono, Thurstons Moore
og Kim Gordon úr Sonic Youth.
Platan, sem heitir einfaldlega YOKOKIMTHURSTON, er fyrsta samstarfs-
verkefnið sem kemur út með Kim og Thurston frá því að þau slitu sam-
vistum eftir 27 ára samband. Þau hafa lengi verið miklir aðdáendur Yokoar.
Á plötunni eru sex verk, sem flest eru nálægt tíu mínútum að lengd. Þetta
er innlifunarkennd spunatónlist. Yoko syngur (eins og henni einni er lagið)
og Kim og Thurston búa til misháværar gítarhljóðmyndir undir. Í laginu
Running The Risk lesa þau svo tilviljanakennt upp úr blaðagreinum. Mjög
í anda hugmyndalistar Yokoar. Platan hefur fengið misjafna dóma, enda er
Yoko ekki allra. Breska blaðið Wire gaf henni samt mjög góða dóma.
Yoko varð áttræð um daginn, en er enn á fullu. Hún treður reglulega
upp með Ono Bandinu og mun sjá um að velja atriðin á Meltdown-
tónlistarhátíðina í London í sumar.
Innlifun með Thurston,
Kim og Yoko
TÓNNINN
GEFINN
Trausti Júlíusson
FURÐUVERA
Chimera
útgáfan heitir
eftir skepnu
úr grískri
goðafræði.
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
21.2.2013 ➜ 27.2.2013
LAGALISTINN TÓNLISTINN
Sæti Flytjandi Lag
1 Ásgeir Trausti Nýfallið regn
2 Rihanna / Mikky Ekko Stay
3 Eyþór Ingi Ég á líf
4 Valdimar Yfir borgina
5 Retro Stefson Julia
6 Frank Ocean Lost
7 Moses Hightower Háa C
8 Lumineers Stubborn Love
9 Bruno Mars Locked Out of Heaven
10 Jónas Sigurðsson Fortíðarþrá
Sæti Flytjandi Plata
1 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
2 Retro Stefson Retro Stefson
3 Ýmsir Söngvakeppnin 2013
4 Valdimar Um stund
5 Raggi Bjarna Dúettar
6 Hjaltalín Enter 4
7 Skálmöld Börn Loka
8 Jónas Sigurðsson Þar sem himin ber við haf
9 Of Monsters and Men My Head Is an Animal
10 Moses Hightower Önnur Mósebók
Save the Children á Íslandi