Fréttablaðið - 28.02.2013, Síða 64

Fréttablaðið - 28.02.2013, Síða 64
28. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48 21 árs afmælisdagur Jeff Chang kemur upp degi fyrir mikil- vægasta próf lífs hans, inntöku- prófið í læknisfræði. Þar sem hann er undir mikilli pressu úr ýmsum áttum, aðallega frá föður sínum, að gera góða hluti í próf- inu ákveður hann að fresta öllum afmælisfögnuði þar til prófið er afstaðið. Vinir hans eru þó ekki alveg sammála þeim fyrirætlun- um hans og sannfæra Jeff um að kíkja aðeins upp úr bókunum og koma með sér út í einn bjór til að skála fyrir deginum. Eins og við er að búast dregur þessi eini bjór töluverðan dilk á eftir sér og áður en Jeff veit af er öll framtíð hans í hættu. Myndin ber heitið 21 and Over og kemur frá þeim sömu og skrifuðu Hangover-myndirn- ar, The Change-Up og Ghosts of a Girlfriends Past til að nefna nokkrar. Myndin skartar Twi- light-leikaranum Justin Chon í aðalhlutverki. Þrívíddarteiknimyndin Flótt- inn frá Jörðu verður einnig frum- sýnd um helgina. Myndin fjallar um hetjuna Scorch Supernova frá plánetunni Baab. Scorch er dáður af eigin kyni, Bláverjum, sem vita þó fæstir að flestöll hans hetjuverk skrifast á yngri bróð- ur hans, Gary. Þegar neyðarkall berst frá plánetunni Jörð býðst Scorch til að taka að sér verk- efnið þrátt fyrir að Gary styðji ákvörðunina ekki enda Jörðinni stjórnað af mönnum, verum sem ekki er vel við geimverur. Scorch tekur þó engum sönsum og heldur af stað. Hann er ekki fyrr lentur á Jörðinni en hann er handsam- aður og nú er það á herðum Gary að koma honum til bjargar. Mynd- in er sýnd með íslensku og ensku tali. - trs 21 and over kemur frá þeim sömu og skrifuðu Hangover- myndirnar, The Change-Up og Ghosts of a Girlfriends Past til að nefna nokkrar. Íslenska kvikmyndin Þetta redd- ast verður frumsýnd í Sambíóun- um annað kvöld. Myndin er fyrsta íslenska mynd Barkar Gunnars- sonar, en áður hefur hann leik- stýrt tékknesku myndinni Sterkt kaffi sem var frumsýnd árið 2004. Myndinni er lýst sem raun- særri gamanmynd og segir frá ungum blaðamanni sem kominn er á síðasta séns, bæði í vinnunni og í sambandinu, vegna óhóf- legrar drykkju. Björn Thors fer með hlutverk blaðamanns- ins Villa sem reynir að bjarga sambandi sínu með því að bjóða kærustunni í rómantíska ferð á Búðir. Babb kemur í bátinn þegar ritstjóri blaðsins sendir Villa í vinnuferð í Búrfellsvirkjun sömu helgi og ferðin á Búðir var áætluð. Þar sem Villi er kominn á síðasta séns í vinnunni ákveð- ur hann að slá tvær flugur í einu höggi og sameina vinnuferðina og rómantísku helgina með kær- ustunni. Með önnur hlutverk fara Guðrún Bjarnadóttir, sem leikur kærustu Villa, Jón Páll Eyjólfs- son, Maríanna Clara Lúthers- dóttir, Halldór Gylfason, Ingvar E. Sigurðsson, Edda Björgvins- dóttir og Katla María Þorgeirs- dóttir. Myndin var tekin upp í Reykja- vík og við Búrfellsvirkjun sumar- ið 2009. Börkur segir eftirvinnslu myndarinnar hafa verið tíma- freka og það útskýri hvers vegna myndin hafi ekki verið frumsýnd fyrr en núna. „Myndin var eigin- lega alveg tilbúin árið 2010. Þá var ákveðið að fínisera nokkrar senur í klippiherberginu, þar sem hún festist í dágóðan tíma. Nú er hún orðin aðeins betri og allir sáttir,“ sagði Börkur í viðtali við Fréttablaðið í janúar. Börkur hefur starfað sem blaðamaður á hinum ýmsu miðl- um og byggir handritið á reynslu sinni í blaðamannaheiminum. Hann segir alla miðla eiga sinn alka og telur að flestir muni kannast við týpuna sem Björn leikur. - sm Blaðamaður á ystu nöf í lífi og starfi Kvikmyndin Þetta reddast verður frumsýnd annað kvöld. Þetta er fyrsta íslenska kvikmynd Barkar Gunnarssonar, sem byggir handritið á eigin reynslu. ★★★★★ A Good Day to Die Hard „Ófyrirgefanleg afskræming á klassískri seríu. Þetta er búið.“ ★★★★★ Kon-Tiki „Ógleymanleg mynd um hreint út sagt ótrúlegan atburð.“ ★★★★★ The Last Stand „Schwarzenegger stenst endurtöku- prófið með glæsibrag.“ ★★★★★ Lincoln „Spielberg fyrirgefst hestamyndin, en hann getur gert betur en þetta.“ ★★★★★ Hvellur „Þrælskemmtileg og fróðleg mynd um stórmerkilegan atburð.“ ★★★★★ Jack Reacher „Fantagóður formáli þess sem gæti orðið góð sería.“ ★★★★★ Amour „Besta mynd Haneke til þessa.“ ★★★★★ XL „Eftirminnileg frammistaða Ólafs Darra ber uppi vel gerða mynd, sem nær því þó ekki að teljast afbragðs- góð.“ Á SÍÐASTA SÉNS Björn Thors fer með hlutverk drykkfellds blaðamanns í kvikmyndinni Þetta reddast. Börkur Gunnarsson leik- stýrir myndinni og skrifar einnig handritið að henni. Afmælisbarn og hetja frá Baab Framtíð Jeff s Chang og mannkynsins er í hættu í frumsýningum helgarinnar. EINN BJÓR Vinir Jeffs Chang sannfærðu hann um að fagna afmælisdeginum með einum bjór, daginn fyrir inntökuprófið í læknisfræði. Hlutirnir fóru þó að sjálfsögðu ekki eins og ákveðið hafði verið. Stórmyndin Argo hlaut þrenn verðlaun á Óskarsverðlaunahátíð- inni síðastliðið sunnudagskvöld, þar á meðal sem besta myndin. Í tilefni af því tóku Sambíóin mynd- ina aftur til sýninga í bíóhúsum sínum síðastliðinn mánudag og verður hægt að sjá hana á hvíta tjaldinu í takmarkaðan tíma. Myndin, sem var frumsýnd hér á landi 9. nóvember síðastliðinn, er byggð á sannri sögu og segir frá því þegar íranskir uppreisnar- menn hertóku bandaríska sendi- ráðið í Teheran þann 4. nóvember árið 1979. Það er Ben Affleck sem fer með aðalhlutverkið í mynd- inni auk þess sem hann leikstýr- ir henni og framleiðir hana, en athygli vakti að hann hlaut ekki til- nefningu til Óskarsins fyrir leik- stjórnina. Argo aft ur í bíóhúsin Óskarsverðlaunamyndin sýnd í takmarkaðan tíma. Boltinn á Xinu 977 – alla virka daga kl. 11 - 12 KON-TIKI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.