Fréttablaðið - 28.02.2013, Síða 72
28. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 56
Ég held að sé ekki
rétt að við séum lokaður
klúbbur sem standi í vegi
fyrir nýjum íþróttum.
Íþróttagreinar þurfa
einfaldlega að uppfylla
ákveðnar lágmarks-
kröfur til þess að komast
inn.
Líney Rut Halldórsdóttir
SPORT
ÍÞRÓTTIR Haraldur Dean Nelson,
stjórnarmaður hjá Mjölni og
faðir Gunnars Nelson, var harð-
orður í garð Íþrótta- og Ólympíu-
sambands Íslands, ÍSÍ, í Frétta-
blaðinu í gær. Þá sagði hann ÍSÍ
vera lokaðan klúbb sem hefði
engan áhuga á íþróttum. Harald-
ur benti meðal annars á að lengi
hefði verið reynt að koma brasil-
ísku jújitsú inn í ÍSÍ án árangurs.
Líney Rut Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ, er ekki sam-
mála þessari gagnrýni Haralds.
„Ég hef talað við Harald en hef
reyndar ekki talað við hann í ein-
hver ár núna. Brasilískt jújitsú er
enn sem komið er ekki með neitt
alþjóðasamband sem er viðurkennt
af Alþjóða ólympíunefndinni og
sama á við um MMA eða bland-
aðar bardagalistir. Þar af leiðandi
eigum við mjög erfitt með að taka
það upp. Ég veit svo heldur ekki til
þess að það liggi núna inni formleg
umsókn hjá okkur fyrir brasilískt
jújitsú eða MMA,“ segir Líney og
bætir við að íþróttir þurfi að vera
Ólympíuíþróttir eða viðurkennd-
ar af Alþjóða Ólympíunefndinni til
þess að komast inn í ÍSÍ.
„Jújitsú er viðurkennd íþrótt en
brasilískt jújitsú er það ekki. Þetta
er tvennt ólíkt.“
Allar íþróttir eiga möguleika
Haraldur talaði um í viðtalinu að
það væri erfitt að koma nýjum
íþróttum inn í ÍSÍ og að sambandið
sýndi nýjum íþróttum ekki áhuga.
„Ég vil mótmæla því. Við vorum
að viðurkenna rathlaup á síðasta
ári. Svo eru akstursíþróttir og
kraftlyftingar líka ný sambönd
hjá okkur. Ef greinar eru viður-
kenndar af alþjóðasamböndum
og lyfjamál eru í lagi þá eiga allar
íþróttir möguleika að komast inn.
Ég held að sé ekki rétt að við séum
lokaður klúbbur sem standi í vegi
fyrir nýjum íþróttum. Íþrótta-
greinar þurfa einfaldlega að upp-
fylla ákveðnar lágmarkskröfur til
þess að komast inn,“ segir Líney
en hvernig stóð á því að ÍSÍ vís-
aði Haraldi og félögum á Íþrótta-
bandalag Reykjavíkur, ÍBR, sem
síðan sendi þá aftur yfir til ÍSÍ?
„Íþróttir þurfa að vera aðili að
héraðssambandi eða íþróttabanda-
lagi eins og ÍBR. Til þess að kom-
ast inn í ÍBR þarf síðan að vera
með viðurkennda íþróttagrein.
Það kemur síðan í hlut ÍBR að
sækja um hjá ÍSÍ með þá íþrótta-
grein.“
Verður að vera viðurkennd
Líney ítrekar að til þess að eiga
möguleika á því að komast inn í ÍSÍ
þurfa að uppfylla lágmarkskröfur.
„Íþróttagreinin verður að vera
viðurkennd. Rathlaup er til að
mynda viðurkennd íþróttagrein
þó svo hún sé ekki með neitt sér-
samband eða séríþróttagreina-
nefnd. Slík nefnd er undanfari
að sérsambandi. Til að komast í
þá stöðu þarftu að vera aðili að
þremur íþróttahéruðum. Þegar
þau eru orðin fimm er möguleiki
á að verða sérsamband. Það þarf
líka að vera lágmarksþáttökufjöldi
í viðkomandi íþrótt sem mig minn-
ir að sé í kringum 200.“.“
MMA eða blandaðar bardaga-
íþróttir eru umdeild íþróttagrein
enda nokkuð ofbeldisfull. Harald-
ur talaði um að Mjölnismenn væru
opnir fyrir því að keppa í MMA
áhugamanna á Íslandi en þá yrði
keppt með hlífðarbúnað á höfði,
ekki ólíkt því sem gerist í ólymp-
ískum hnefaleikum. Líney bend-
ir á að ekki þurfi allar íþróttir að
falla undir Íþróttasambandið þó
svo þær séu stundaðar af kappi
hérlendis.
„Sumt þarf ekki að heyra undir
Íþróttasambandið og er bara full-
komlega gilt og gott þó svo það sé
ekki þar. Það er ekki alslæmt að
íþrótt sé ekki í ÍSÍ,“ segir Líney.
Þarf að tryggja öryggi
Hvað með reglugerðir fyrir þess-
ar nýju íþróttir sem eru að spretta
upp hér á landi á síðustu árum. Í
hvaða verkahring á það að vera að
búa til slíkar reglur?
„Það er ákveðið regluverk í
kringum ólympíska hnefaleika.
Atvinnuhnefaleikar eru samt ekki
leyfðir hér á landi. Það var skýrt
af hálfu ríkisins er ólympískir
hnefaleikar voru teknir upp að
regluverkið yrði að vera í lagi, sér-
staklega er varðar öryggisatrið-
in. Ég myndi segja að slíkt þyrfti
líka að vera upp á teningnum í
bardagaíþróttum, sérstaklega út
frá heilsufarssjónarmiðum. Mér
finnst að það þurfi að tryggja
öryggi iðkenda. Þetta er kannski
eitthvað sem þarf að skoða með
ríkinu og við erum alveg til í það.“
henry@frettabladid.is
ÍSÍ er ekki lokaður klúbbur
Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ, vísar þeim fullyrðingum Haralds Nelson að ÍSÍ hafi ekki
áhuga á íþróttum á bug. Hún segir sömu reglu ganga yfi r alla sem hafa áhuga á því að komast inn í ÍSÍ.
ALLIR EIGA MÖGULEIKA Líney Rut mótmælir því að ÍSÍ standi í vegi fyrir íþrótta-
greinum sem vilja komast inn í ÍSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*S
am
kv
æ
m
t p
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t G
al
lu
p
nó
v.
-s
ep
t.
20
12
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
Það er hvergi betri staður fyrir fjölpóst en inni í Fréttablaðinu. 60% landsmanna
skoða fjölpóst. Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað!
75% íbúa höfuðborgarsvæðisins lesa Fréttablaðið daglega.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi orn@365.is
Útvegum einnig hagstæð verð í prentun.
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
ÚRSLIT
DOMINO‘S-DEILD KVENNA
KEFLAVÍK - GRINDAVÍK 86-58 (37-35)
Keflavík: Jessica Jenkins 26, Pálína
Gunnlaugsdóttir 14/8 stoðsendingar/5 stolnir,
Birna Valgarðsdóttir 12/11 fráköst/4 varin, Sara
Rún Hinriksdóttir 10, Bryndís Guðmundsdóttir
10/8 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 8, Aníta
Eva Viðarsdóttir 3, Katrín Fríða Jóhannsdóttir 3.
Grindavík: Crystal Smith 18, Petrúnella
Skúladóttir 8, Berglind Anna Magnúsdóttir
8, Jóhanna Rún Styrmisdóttir 6, Helga Rut
Hallgrímsdóttir 6, Jeanne Lois Figeroa Sicat
3, Eyrún Ösp Ottósdóttir 3, Harpa Rakel
Hallgrímsdóttir 2, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 2,
Julia Sicat 2.
NJARÐVÍK - HAUKAR 63-68 (34-26)
Njarðvík: Lele Hardy 25/21 fráköst/9
stoðsendingar, Erna Hákonardóttir 16, Svava Ósk
Stefánsdóttir 10, Salbjörg Sævarsdóttir 6, Guðlaug
Björt Júlíusdóttir 6.
Haukar: Siarre Evans 20/17 fráköst, Jóhanna
Björk Sveinsdóttir 14, Gunnhildur Gunnarsdóttir
10, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 9, Dagbjört
Samúelsdóttir 5, María Lind Sigurðardóttir 4,
Auður Íris Ólafsdóttir 4, Sólrún Inga Gísladóttir 2.
SNÆFELL - FJÖLNIR 92-76 (41-35)
Snæfell: Kieraah Marlow 26/15 fráköst/5
stoðsendingar, Hildur Sigurðardóttir 25/7
fráköst/10 stoðsendingar, Alda Leif Jónsdóttir 17/5
fráköst/5 stoðsendingar, Berglind Gunnarsdóttir
10, Hildur Björg Kjartansdóttir 9/11 fráköst/6
stoðsendingar, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 3,
Rósa Indriðadóttir 2.
Fjölnir: Britney Jones 36/5 stoðsendingar, Fanney
Lind Guðmundsdóttir 14, Bergdís Ragnarsdóttir
12/8 fráköst, Sigrún Anna Ragnarsdóttir 6, Hrund
Jóhannsdóttir 6, Eyrún Líf Sigurðardóttir 2.
VALUR - KR 61-62 (31-32)
Valur: Jaleesa Butler 22/18 fráköst/5 varin,
Kristrún Sigurjónsdóttir 19, Hallveig Jónsdóttir
10/5 stolnir, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 5, Þórunn
Bjarnadóttir 5/6 fráköst/5 stoðsendingar.
KR: Shannon McCallum 38/13 fráköst/8
stolnir, Ína María Einarsdóttir 5, Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir 4, Rannveig Ólafsdóttir 4, Guðrún
Gróa Þorsteinsdóttir 4, Helga Einarsdóttir 4, Anna
María Ævarsdóttir 3.
Sæti og stig liða: 1. Keflavík 40, 2. Snæfell 36,
3. KR 30, 4. Valur 24, 5. Haukar 22, 6. Njarðvík
14, 7. Grindavík 12, 8. Fjölnir 6.
ENSKA BIKARKEPPNIN
16-LIÐA ÚRSLIT
MIDDLESBROUGH - CHELSEA 0-2
0-1 Fernando Torres (51.), 0-2 Victor Moses (73.)
Chelsea mætir Manchester United í 8-liða
úrslitum.
HANDBOLTI Kári Kristján Kristjánsson verður frá næstu
átta vikurnar eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna
bakmeiðsla. Frá þessu var greint í þýskum fjöl-
miðlum í gær en Kári er á mála hjá Wetzlar.
Fyrir stuttu meiddist Vignir Svavarsson illa
þegar hann sleit krossband í hné en báðir þessir
línumenn voru í leikmannahópi Íslands á HM á
Spáni í janúar. Ísland mætir Slóveníu tvívegis í
undankeppni EM 2014 í byrjun apríl og ljóst
er að Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari þarf
að finna nýjan línumann við hlið Róberts
Gunnarssonar.
Kári Kristján er nýlega búinn að semja við
Bjerringbro/Silkeborg í Danmörku og fer til liðsins
í sumar. Forráðamenn Wetzlar vonast þó til þess að
Kári muni ná síðustu vikum tímabilsins. - esá
Annar línumaður meiddur
FRJÁLSAR Ísland mun eiga tvo kepp-
endur á EM innanhúss sem fram
fer í Gautaborg næstkomandi helgi.
Aníta Hinriksdóttir úr ÍR og Kolbeinn
Höður Gunnarsson úr UFA verða
fulltrúar Íslands.
Aníta náði lágmarki í 400 m hlaupi
og 800 m hlaupi en mun einbeita
sér algjörlega að sinni aðalgrein,
sem er 800 metra hlaup. Enginn
karlmaður náði lágmarki á mótið að
þessu sinni en þar sem Ísland á rétt
á að senda eina konu og einn karl-
mann á mótið var Kolbeinn valinn í
liðið en hann var næstur lágmarkinu
í 400 metra hlaupi. - óój
Kolbeinn líka á EM
HANDBOLTI Konráð Olavsson var í
gær ráðinn þjálfari Aftureldingar í
N1-deild karla en hann tekur við lið-
inu af Reyni Þór Reynissyni sem var
látinn fara. Afturelding hefur aðeins
náð að vinna einn af fimm leikjum
eftir HM-fríið og skoraði bara 12 og
13 mörk í síðustu tveimur leikjum
sínum á móti Haukum og Fram.
Reynir Þór var búinn að þjálfa lið
Aftureldingar síðan 2011 en hann tók
þá við liðinu af Gunnari Andréssyni
sem hætti á miðju tímabili. Konráð
stýrir Aftureldingu í fyrsta sinn á móti
FH í Kaplakrika í kvöld. - óój
Konráð tekinn við
Aft ureldingu
FÓTBOLTI Jóhann Berg Guðmunds-
son og félagar í AZ Alkmaar eru
komnir í úrslitaleik hollensku
bikarkeppninnar eftir 3-0 sigur á
Ajax í Íslendingaslag í undanúrslitum
keppninnar í gærkvöldi. AZ mætir
PSV Eindhoven í bikarúrslitaleiknum
en PSV vann 3-0 sigur á PEC Zwolle
í gær. Bandaríkjamaðurinn Jozy
Altidore skoraði tvö mark AZ en
Jóhann Berg skoraði sitt mark aðeins
fimm mínútum eftir að hann kom
inn á sem varamaður. Kolbeinn kom
inn á sem varamaður á 69. mínútu.
- óój
Jóhann Berg skor-
aði í sigri á Ajax