Fréttablaðið - 23.03.2013, Side 16

Fréttablaðið - 23.03.2013, Side 16
23. mars 2013 LAUGARDAGURSKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 S jálfstæðisflokkurinn hefur átt í vök að verjast síðustu vikur. Fylgið hefur sigið. Í sömu andrá hefur fylgi Framsóknarflokksins bólgnað með þvílíkum látum að helst minn- ir á Grímsvatnahlaup. Við hliðstæð umbrot í náttúrunni væri jarð- fræðingum trúandi til að benda á orsakasamhengið. Landsfundur Sjálfstæðisflokks- ins vorið 2009 feykti endurreisnar- skýrslunni, sem fráfarandi for- maður hafði þá undirbúið, út í hafsauga með hlátrasköllum. Fyrir vikið hefur flokkurinn átt í meira basli að gera upp við hrunið en efni standa til. Síðasti lands fundur ákvað að gera afstöðu flokks- ins til mögulegra nýrra skrefa í vestrænni sam- vinnu þrengri en VG. Það skaðaði kjölfestuímynd- ina í utanríkis- málum. Formaður flokksins hefur sætt andróðri í eigin röðum, um flest að ósekju. Vandamálin liggja miklu fremur í ákvörðunum af þessu tagi. Óánægja þeirra sjálfstæðismanna sem telja rétt að ljúka aðildar- viðræðunum hefur ekki farið leynt. Kannanir benda hins vegar til að þessir kjósendur hafi ekki yfirgefið flokkinn í stórum stíl. Alltént hafa Samfylkingin og Björt framtíð ekki bætt stöðu sína á sama tíma. Að vísu hefur þeim stuðnings- mönnum Framsóknarflokksins sem vilja ljúka aðildarviðræðun- um fjölgað talsvert. Einhverjir sem áður sögðust ætla að kjósa Sjálf- stæðisflokkinn og eru á þessari skoðun hafa líklega fært sig yfir. En þar hljóta önnur mál en afstaðan til Evrópu að ráða för. Stjórnmálaskýringin á sigi Sjálf- stæðisflokksins og framhlaupi Framsóknarflokksins gæti því að hluta legið aðeins undir yfirborði dægurumræðunnar. Vandi Sjálfstæðisfl okksins Ríkisstjórnarflokkarnir lær-brutu sjálfa sig í tveimur fyrstu samningunum um Icesave-skuld „óreiðumanna“ í Landsbankanum. Ríkisstjórnin neitaði að viðurkenna ósigur sinn í báðum þjóðaratkvæðagreiðslunum um Icesave og efna til nýrra þing- kosninga. Það var meiri ögrun en heilbrigt lýðræðiskerfi þolir. Eftir það fauk trúnaður hennar út í veður og vind. Þegar síðasti Icesave-samningur- inn var gerður náði ríkisstjórnin samstöðu við Sjálfstæðis flokkinn. Samningar orka oft tvímælis. En það sýndi mikla yfirvegun og kjark formanns Sjálfstæðisflokksins að láta hagsmuni landsins ráða afstöðu sinni fremur en freistingar til að koma hælkrók á ríkisstjórnina. Einmitt á þessu augnabliki sner- ust áhrifaöfl innan Sjálfstæðis- flokksins með atbeina forseta Íslands gegn Bjarna Benedikts- syni jafnt sem ríkisstjórninni. Lær brotin ríkisstjórnin var rúin trausti og gat ekki varist. Og for- maður Sjálfstæðisflokksins átti fárra annarra kosta völ en að láta skynsemismatið víkja. Í framhald- inu var afstaða þingmanna Fram- sóknarflokksins hafin til skýjanna. Látið var í veðri vaka að þjóðin hefði afskrifað Icesave-skuldina með afli atkvæðanna. Skuldin var þó jafn há daginn eftir atkvæða- greiðsluna og daginn fyrir. Vand- inn var að enginn hafði pólitískan trúverðugleika til að segja þjóðinni satt um að þjóðaratkvæðið var sjón- hverfing fremur en lausn. Icesave Þegar EFTA-dómurinn féll var því á ný haldið að fólk-inu í landinu að þar með hefði verið staðfest að þjóðin hefði mátt koma Icesave-skuldinni fyrir kattar nef með atkvæðagreiðslu. Skuldin var hins vegar enn á sínum stað daginn eftir dóminn eins og daginn fyrir hann. Sem fyrr byrjuðu menn að hefja Framsóknarflokkinn upp í æðra veldi stefnufestu og hygginda. Það álit endurómaði síðan í allri þjóðmála umræðunni. Einmitt þá hófst sig Sjálfstæðisflokksins og framhlaup Framsóknarflokksins. Landsbankinn situr hins vegar enn með skuldabréf sem hann þarf að standa þrotabúi gamla Lands- bankans skil á. Þar liggur stór hluti Icesave-skuldarinnar enn ógreidd- ur í banka sem skattborgararnir bera ábyrgð á. Þjóðin aflar svo ekki nægilegs gjaldeyris til að greiða þessa skuld. Þessi staða væri að sönnu eins þó að samningurinn hefði verið gerður. Hann snerist um að eyða eins mikilli óvissu og unnt var þó að hann væri ekki ókeypis frem- ur en áhættan sem tekin var. Eini stjórnmálaforinginn sem í raun tók ábyrga afstöðu á öllum stig- um Icesave-málsins var Bjarni Benediktsson. Hann snerist gegn óásættanlegum samningum í byrj- un en studdi ásættanlega niður- stöðu í lokin. Eftir að ábyrg afstaða hans var snúin niður innan flokksins gat hann ekki bent á tómahljóðið í öllum ummælunum um stefnufestu Framsóknarflokksins. Og fyrir vikið er einnig erfiðara að afhjúpa töfralausnir Framsóknarflokksins í húsnæðismálum. Hefðu sjálfstæðis- menn fylgt leiðsögn formannsins í Icesave væri auðveldara að stinga á málefnablöðru Framsóknarflokks- ins nú, ef hún væri þá til. Orsaka- samhengið er nokkuð skýrt. Orsakasamhengið V igdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, var eini þingmaðurinn sem greiddi atkvæði gegn áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands á Alþingi í fyrradag. Áætlunin felur í sér að næstu fjögur árin fari um 24 milljarðar króna samtals í þróunaraðstoð. Í lok tímabilsins muni Ísland því verja um 0,42 prósentum af lands- framleiðslu í þróunaraðstoð. Við höfum þó margoft skuldbundið okkur með lögum til að uppfylla það markmið Sameinuðu þjóðanna að þróuð iðnríki leggi 0,7 prósent landsframleiðslu til þróunar- aðstoðar. „Þetta stríðir gegn sann- færingu minni, að vera að hækka þessi gjöld með þessum hætti,“ sagði Vigdís í samtali við Stöð 2 í fyrrakvöld. „Tuttugu og fjórir milljarðar í erlendum gjaldeyri næstu fjögur ár á meðan íslenzka þjóðin telur sig ekki hafa efni á því að gera hér þær bætur sem þarf að gera á Landspítalanum sem þarf að gera til að bjarga lífi og limum landsmanna.“ Ætli Vigdís Hauksdóttir hafi komið á spítala í Malaví, sem er eitt af þróunarsamvinnuríkjum Íslands? Þar háttar sums staðar þannig til að verðandi mæður sitja á jörðinni í steikjandi sólinni og hitanum á meðan þær bíða eftir mæðraskoðun. Spítalalóðin er full af ættingjum sjúklinga sem elda ofan í ástvini sína á hlóðum og sinna ýmsum öðrum þörfum þeirra af því að spítalinn hefur hvorki mannskap né peninga í það. Alnæmissjúklingar liggja á gólfinu af því að það eru ekki til nógu mörg sjúkrarúm. Kona af geðdeildinni hleypur allsnakin fram hjá, öskrandi formælingar. Við vildum vissulega gera betur á Landspítalanum en ástandið þar er þó býsna langt frá þeirri sáru neyð og skelfingu sem er daglegt brauð á sjúkrastofnunum víða í þróunarríkjunum. Þrátt fyrir það sem við upplifum sem kreppu og fjárskort er Ísland eitt af ríkustu löndum heims; númer 13 á þróunarlista Sameinuðu þjóðanna. Malaví er númer 170. Þótt framlag Íslands til þróunarsamvinnu sé smátt í flestum samanburði skiptir það raunverulegu máli. Spítalarnir og heilsu- gæzlustöðvarnar sem Ísland hefur byggt í Malaví í samvinnu við heimamenn hafa bjargað fjölda mannslífa og bætt lífsgæði í hér- uðum þar sem búa fleiri samanlagt en eiga heima á Íslandi. Þessi árangur er nokkurs virði, þótt kostnaðurinn stríði gegn sannfær- ingu íslenzks þingmanns. Okkur ber ekki bara siðferðileg skylda til að rétta þróunar- ríkjunum hjálparhönd. Þá skyldu sína hefur Ísland raunar rækt mun lakar en flest nágrannaríkin undanfarna áratugi. Það eru líka beinharðir öryggis- og viðskiptahagsmunir vestrænna ríkja að hjálpa fátækum ríkjum til sjálfshjálpar. Stuðningur við menntun, heilbrigðisþjónustu, valdeflingu kvenna og atvinnuþróun, sem allt er á dagskrá Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, vinnur gegn stríðsátökum og uppgangi öfgahreyfinga, dregur úr flóttamanna- straumi og byggir upp nýja markaði. Sjónarmið Vigdísar Hauksdóttur lýsa bæði vanþekkingu og þröngsýni. En allt gæti þetta staðið til bóta. Ef Vigdís verður til dæmis utanríkisráðherra í næstu ríkisstjórn verður henni venju samkvæmt boðið að heimsækja fátæku ríkin sem njóta þróunar- aðstoðar Íslands. Hún gæti lært heilmikið af þeirri heimsókn. Þróunaraðstoð stríðir gegn sannfæringu þingmanns: Vigdís og spítalinn í Malaví Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is Veiðimenn sjá um eigin kost en geta fengið máltíðir sé þess óskað. Pantanir og nánari upplýsingar fást í síma 696 1130 og gisli@lax.is Laus veiðileyfi VESTURÁRDALUR ehf. HAFRALÓNSÁ 6 stanga holl: 26.-29. ág., 55.000 kr. pr. dag 29. ág.-1. sept., 48.000 kr. pr. dag 7.-10. sept., 35.000 kr. pr. dag 10.-13. sept., 32.000 kr. pr. dag 4 stanga holl: 13.-16. sept., 30.000 kr. pr. dag 16.-19. sept., 30.000 kr. pr. dag Laus veiðileyfi í einni rómuðustu stórlaxaá landsins. Stórbrotið umhverfi og stórir laxar!
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.