Fréttablaðið - 23.03.2013, Page 52
Margir Íslendingar búa í Malmö en um 300 þús-und manns búa í borginni
sem er stutt frá Kaupmannahöfn
og Lundi, þar sem margir stunda
nám. Edda Sigurbjörg Ingólfs-
dóttir, meistaranemi í félagsfræði,
hefur búið í sex ár í Malmö ásamt
sambýlis manni sínum, Smára
Árnasyni Snæfeld, og tveimur
ungum börnum. Edda, sem er rit-
ari Íslendingafélagsins í Malmö,
segir að undir búningur sé hafinn
fyrir Euro vision-keppnina í maí og
flest hótel fullbókuð.
„Malmö er fjölskylduvænn stað-
ur og hér er mjög gott að búa,“ segir
Edda. „Það er mun ódýrara að lifa
hér en heima á Íslandi, til dæmis að
kaupa í matinn.“
Edda segist helst verða vör við
Eurovision-keppnina í gegnum
sænsku dagblöðin. Keppnin fer
fram í Malmö Arena, sem var tekin í
notkun árið 2008. Hún tekur 15.500
manns og þar er alltaf eitthvað um
að vera. „Tónleikar eru algengir
og svo eru oft íshokkíleikar. Þetta
er vinsælt tónleikahús. Svíar eru
með nokkrar undankeppnir Euro-
vision og ein þeirra var haldin hér.
Það er alltaf mikil stemning fyrir
sænsku keppninni en loka keppnin
var í Stokkhólmi,“ segir Edda. „Ég
er ekki mikill aðdáandi keppn-
innar en fylgdist þó með undan-
keppninni með öðru auganu. Ég
ætla hins vegar að fylgjast með
aðal keppninni í maí,“ segir hún.
Edda á ekki von á íslenskum gest-
um í tengslum við keppnina.
Edda segir að Malmö sé mjög
vel staðsett borg. „Ég er 20 mín-
útur í lest til Kaupmanna hafnar
en ég var að vinna þar á tímabili.
Margir sem búa hér starfa einmitt
í þar. Það er ýmislegt hægt að gera
í Malmö. Mér finnst skemmtilegt
að ganga eftir göngugötunni og
kíkja í búðir. Síðan er mjög gaman
að fara í Folkets Park þar sem alltaf
er eitthvað um að vera, sérstaklega
á sumrin þegar ýmsar uppákom-
ur eru úti undir beru lofti. Einnig
get ég nefnt Västre Hammen sem
liggur við ströndina og ýmis söfn,“
segir Edda sem bætir því við að
margir frábærir veitingastaðir séu
í borginni og alls ekki dýrt að fara
út að borða. „Það er alltaf eitthvað
um að vera hérna og við erum ekki
á heimleið.“
Edda segir að hún búist við að
borgin lifni við í maí þegar Euro-
vision-keppnin fari fram. Vonast
er eftir miklum fjölda ferðamanna.
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 23. MARS 20132
Gott að vera
Íslendingur í Malmö
Malmö verður gestgjafaborg Eurovision-keppninnar í maí. Keppnin fer fram í
Malmö Arena en hún er nokkuð minna tónleikahús en þau sem hafa hýst
keppnina undanfarin ár. Edda Sigurbjörg býr í borginni ásamt fjölskyldu sinni.
Malmö er falleg borg og þar er margt hægt að skoða.
Edda Sigurbjörg ásamt eldri syni sínum í Folkets Park í Malmö.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Ferðafélag Íslands stendur fyrir gönguferðum fyrir
bakveika í apríl – júní.
Léttar gönguferðir með styrkjandi stöðuæfingum
3 í viku auk heimaverkefna og þegar líður á verk-
efnið verður farið í léttar fjallgöngur.
Bakmeiðsli er hvimleiður kvilli sem hrjáir stóran
hóp fólks.
Gönguferðir og styrkjandi æfingar geta í mörgum
tilfellum gert gæfumuninn og komið fólki á beinu
brautina á ný.
Umsjónarmenn með gönguferðum í bakskólanum
eru íþróttakennarar og sjúkraþjálfarar.
Sérstakur kynningarfundur fyrir bakskóla FÍ verður
haldinn þriðjudaginn 26. mars kl. 20 í sal FÍ Mörkinni.
Ekki vera í baklás
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Ferðafélag Íslands
Nánari upplýsingar og skráning er í síma 568 2533
eða í netpóst fi@fi.is
Bakskóli
Ferðafélags Íslands
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS