Fréttablaðið - 23.03.2013, Síða 85
KYNNING − AUGLÝSING Ferðir23. MARS 2013 LAUGARDAGUR 7
Akureyri hefur fyrir löngu skipað sér sess meðal lands-manna sem páskabær enda
fjölmenna landsmenn þangað á
hverju ári. Páskaævintýri á Akur-
eyri er ógleymanleg upplifun fyrir
fólk á öllum aldri enda er úrval
gististaða og af-
þreyingar mjög
mikið. Margir
ge s t i r hei m-
sækja Akureyri
yfir páskahátíð-
ina til að stunda
skíði í Hlíðar-
f ja l l i, uppli fa
fjölbreytt menn-
ingarlíf bæjarins
eða njóta góðra veitinga á fjölmörg-
um veitingahúsum sem Akureyri
býður upp á. María H. Tryggva-
dóttir, verkefnastjóri ferðamála hjá
Akur eyrarstofu, segist eiga von á
miklum fjölda gesta eins og undan-
farin ár enda sé langtímaspáin góð
og sjaldan eða aldrei hafi jafnmikið
úrval afþreyingar verið í boði fyrir
gesti. „Páskarnir eru frábær tími til
að heimsækja Akureyri. Brekkur
Hlíðarfjalls fyllast af ánægðu skíða-
og brettafólki á öllum aldri, menn-
ingin verður í blóma sem aldrei fyrr,
gestir gera vel við sig í mat og drykk
og svo eigum við eina albestu sund-
laug landsins sem er mjög vinsæl
meðal bæjarbúa og aðkomumanna
á öllum aldri.“
Fjölmarga gististaði í öllum verð-
flokkum er að finna í bænum. Þrátt
fyrir mikla aðsókn er enn nóg af
gistiplássi laust í bænum, að sögn
Maríu, sem hvetur þó gesti til að
vera tímanlega í bókunum. Yfir
fimmtán veitingastaðir eru á Akur-
eyri af öllum stærðum og gerð-
um. „Hér má finna allt frá asísk-
um veitingastað yfir í „gourmet“
veitingastaði í hæsta gæðaflokki.
Um páskana verður einnig nýr og
glæsilegur veitingastaður opnað-
ur við bryggjuna sem heitir Bryggj-
an. Gestir okkar munu því örugg-
lega finna eitthvað við sitt hæfi.“
Allar nánari upplýsingar um hvað
er í boði yfir páskana á Akureyri má
finna á www.visitakureyri.is.
Skíðaparadís í Hlíðarfjalli
Hlíðarfjall mun eins og venju-
lega fyllast af skíða- og brettafólki
á öllum aldri um páskana enda er
það orðinn fastur liður í lífi margra
skíðamanna að eyða páskunum
á Akureyri. Mikill snjór er í fjall-
inu þessa dagana og spáin fyrir
páskana er hagstæð. Skíðasvæð-
ið er einungis í sjö mínútna fjar-
lægð frá bænum og því stutt að fara
fyrir gesti. Svæðið býður upp á eina
stólalyftu og fimm toglyftur, auk
eins færibands fyrir yngstu kyn-
slóðina. Brekkurnar í Hlíðarfjalli
henta jafnt byrjendum sem lengra
komnum. Aðstandendur skíða-
svæðisins búast við 1.500-2.000
manns á dag yfir páskana þann-
ig að það verður mikið líf og fjör í
brekkum fjallsins. Skíðaskóli verð-
ur rekinn yfir páskana fyrir börn á
aldrinum fimm til tólf ára. Hann
stendur yfir frá kl. 10 til 14 og hægt
er að panta tíma á vef Hlíðarfjalls,
www.hlidarfjall.is. Börnin læra auk
þess að útbúa eigin pitsur sem þau
snæða í hádegismat. Næsta fimmtu-
dag verður einnig boðið upp á snjó-
skúlptúranámskeið fyrir 8-12 ára
krakka þar sem þeir læra að búa til
listaverk úr snjó. Tvær veitingasölur
selja veitingar í Hlíðarfjalli og boðið
er upp á öfluga skíða-, snjóþotu- og
brettaleigu auk þess sem eldra fólk
getur pantað sér einkatíma í skíða-
kennslu. Það er því engin afsökun
lengur að eiga ekki eða kunna ekki
á skíði því Hlíðarfjall býður upp á
alla þjónustu fyrir gesti sína. Yfir
páskana verður einnig boðið upp á
lifandi tónlist alla daga en dagskrá-
in miðast við veður og stemningu
hverju sinni. Hljómsveitin Molta
frá Akureyri stígur á svið og Jónsi úr
hljómsveitinni Í svörtum fötum og
Ingó trúb ador taka nokkur lög, auk
fleiri listamanna. Páskarnir hafa því
sjaldnast lofað eins góðu á Akureyri.
Akureyri er frábær staður til
að heimsækja um páskana
Öll fjölskyldan getur fundið eitthvað við sitt hæfi á Akureyri um páskana. Úrval gisti- og veitingastaða er mikið og fjölbreyttir viðburðir
eru í boði fyrir alla aldurshópa. Hlíðarfjall dregur alltaf marga gesti til Akureyrar enda aðstaðan góð og veðurspáin lofar góðu.
María H.
Tryggvadóttir
Leikhúslíf á Akureyri
Leikfélag Akureyrar sýnir verkið Kaktusinn yfir alla
páskana í Samkomuhúsinu. Auk þess verða nokkrar
gestasýningar í gangi yfir páskana, til dæmis Skoppa og
Skrítla, sem sýna í Menningarhúsinu Hofi, og Silfur-
fiskur eftir Áslaugu Jónsdóttur, sem sýndur verður í
Samkomuhúsinu. Auk sýninga leikfélagsins eru ýmis
áhugamannaleikhús með sýningar í næsta nágrenni
Akureyrar. Þar má meðal annars nefna verkið Dagatals-
dömurnar sem Freyvangsleikhúsið sýnir og Djáknann
frá Myrká sem sýnt er á Melum í Hörgárdal. Gestir
Akureyrar hafa því úr fjölbreyttri flóru leikverka að velja
yfir páskana.
Tónleikar
Græni hatturinn á Akureyri er einn frægasti og vinsæl-
asti tónleikastaður landsins, bæði meðal áhorfenda
og tónlistarmanna. Flestir frægustu tónlistarmenn
þjóðarinnar hafa haldið tónleika þar og staðurinn
býður upp á fjölbreytta tónlist fyrir fólk á öllum aldri.
Um páskana spila meðal annars Magnús og Jóhann,
Hvanndalsbræður, Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar
og Todmobile. Menningarhúsið Hof lætur sitt ekki eftir
liggja. Þar má sjá yfir páskahátíðina stórtónleika með
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, sem flytur á skírdag
sinfóníu nr. 6 eftir Tsjaíkovskí og lög úr kvikmyndinni
Stjörnustríð eftir John Williams. Heiðurshljómsveitin
Killer Queen heldur stórtónleika en hún leitast við að
ná fram og mynda hina sönnu tónleikastemningu sem
einkenndi hljómsveitina goðsagnakenndu, The Queen.
Óskar Pétursson mun einnig taka á móti landsþekktum
listamönnum við undirleik hljómsveitar sem skipuð
er norðlensku tónlistarfólki. Ekki má gleyma heima-
mönnunum í 200.000 naglbítum sem fagna 20 ára
starfsafmæli í ár. Hljómsveitin heldur tónleika í Hofi um
páskana.
Aðrir viðburðir
Af öðrum skemmtilegum viðburðum sem finna má
á Akureyri yfir páskana má nefna Dynheimaballið í
Sjallanum. Böllin í Dynheimum voru haldin á árum áður
og nutu mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og nágranna
þeirra. Undanfarin ár hafa þau verið endurvakin um
páskana en þar ræður „ eighties“ tónlistin ríkjum og
litfögur föt sem ballgestir finna í kössum uppi á háalofti.
Flestöll söfn bæjarins verða opin yfir páskana en bærinn
býr yfir miklu úrvali skemmtilegra safna fyrir alla aldurs-
flokka. Þar er meðal annars hægt að skoða fjölbreytt
úrval flugvéla og annarra sýningargripa sem tengjast
íslenskri flugsögu, gömul leikföng, minjar úr sögu
bæjarins og nútímalist.
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ UM PÁSKANA
Fjölbreytt menningarlíf einkennir Akureyri um páskana. Gestir geta notið leiklistar og fjölbreyttra tónleika.
Fjöldi veitingahúsa og kaffihúsa eru í bænum og margvísleg afþreying er í boði fyrir alla aldurshópa.
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er í sjö
mínútna fjarlægð frá Akureyri. Hægt er
að fá leigð skíði og bretti og boðið er
upp á skíðaskóla fyrir börn.
MYNDIR/AUÐUNN NÍELSSON, RAGNAR HÓLM O.FL.
Frábær
stemning er
í Hlíðarfjalli
hjá öllum
aldurs-
hópum.
MYND/ AUÐUNN NÍELSSON, RAGNAR HÓLM O.FL.