Fréttablaðið - 23.03.2013, Page 100
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 64
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Konan við dýralæknirinn: Hvað á
ég að gera?
Hundurinn eltir alltaf fólk á hjóli.
Dýralæknirinn: Taktu bara hjólið
af honum!
Af hverju fór kjúklingurinn yfir
götuna?
Til að komast yfir götuna.
Af hverju fór kalkúninn yfir
götuna?
Kjúklingurinn var í fríi.
Af hverju fór bóndinn yfir götuna?
Til að leita að kjúklingnum sínum.
Af hverju fór risaeðlan yfir
götuna?
Það var fyrir tíma kjúklingsins.
Af hverju fór tyggigúmmíið yfir
götuna?
Það var fast við fótinn á kjúk-
lingnum.
Af hverju fór apinn yfir götuna?
Það var banani hinum megin.
Af hverju fór froskurinn yfir
götuna?
Einhver hrekkjalómur hafði límt
hann fastan við kjúklinginn. Undir háu grenitré í Hákonar-
lundi, skammt frá Bústaða-
kirkju, hafa nokkrir krakkar úr
sjö og átta ára bekk Fossvogs-
skóla útbúið lítið afdrep með
því að binda saman birki greinar
og reisa þær upp þannig að
þær myndi veggi. Börnin heita
Björk, Emil Þór, Emma Elísa,
Hans, Inga Sif og Kjartan og eiga
öll heima í götum sem enda á
„land“ þannig að segja má að
þau séu hvert frá sínu landi.
Leynistaðurinn í Hákonarlundi
er verkefni sem krakkarnir eru
að leysa undir forystu Guðnýjar
Rúnarsdóttur, mastersnema við
Listaháskóla Íslands, og hófst í
frístundamiðstöðinni Neðsta-
landi í Fossvogsskóla. Þar spjöll-
uðu þau fyrst um leynistaði
hvert út frá sínum sjónarhóli
og byrjuðu vinnuna á að teikna
myndir eftir eigin hugmyndum.
Svo skissuðu þau leynistað í
skógi, fengu leir og litlar greinar
og bjuggu til módel, þannig að
þau sáu staðinn fyrir sér. Eftir
það var haldið í Hákonarlund.
Þar voru greinar til að moða úr
og með bönd, sög og skóflu að
vopni tókst þeim að gera skýlið
undir trénu. Þar hitti blaða-
maður þau og spurði hvort þau
væru vön að leika sér úti í skógi.
„Nei, en við erum vön að leika
okkur úti, aðallega á leikvöllum,“
svarar eitt þeirra. Einn strákur-
inn kveðst eiga ömmu og afa í
Þýskalandi og þar leiki hann sér
úti í skógi, annar drengur grípur
það á lofti. „Afi minn og amma
búa í sveit og þau eiga hund og
kött og heitan pott.“
Guðný verkefnisstjóri segir skýl-
ið ekki varanlegt. „Við höfum
þetta hér kannski í nokkra mán-
uði og tökum það svo niður,“
segir hún. „Þetta er bara eitt-
hvað sem nærsamfélagið á að fá
að njóta enda er Hákonarlundur
opinn garður og skýlið kemur
öllum til góða.“
En telja krakkarnir sig hafa
lært eitthvað á verkefninu?
„Já, já, og skemmt okkur líka,“
segja þau og nefna sérstaklega
að gaman hafi verið að finna
gamalt jólatré og draga það í
hús. „Svo var líka skemmtilegt
að setja upp könglana og böndin
og ná í allt grasið og greinarnar,“
lýsir ein stelpan. „Já og búa til
óróa,“ bætir önnur við.
Þau eru öll næstum viss um að
þau eftir að byggja svona ein-
hvern tímann aftur. „Kannski
með mömmu og pabba og fjöl-
skyldunni,“ segir ein stelpan.
En ætla þau ekki líka að koma
hingað aftur og leika sér í kof-
anum? „Jú. Kannski tökum við
þá með okkur nesti, til dæmis
heitt kakó.“ gun@frettabladid.is
Ætlum að hafa með
okkur kakó næst
Sex krakkar eru í óðaönn að útbúa leynistað í litlu skógarrjóðri. Þar nota þau
það efni sem náttúran býður upp á í grenndinni og hafa auk þess haft með sér
bönd og sög. Úr verður lítið skýli sem þau komast inn í og skreyta að vild.
VIÐ LEYNISTAÐINN Emma Elísa Jónsdóttir, Björk Arnardóttir, Inga Sif Bjarnadóttir, Kjartan Ásgeirsson, Hans Haraldsson og
Emil Þór Sennefelder Guðbjörnsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Brandarar
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
36
„Er ekki komið þetta gargandi kvikindi,“ sagði Kata og dæsti
þegar hún heyrði fuglasöng. „Finst þér hún ekki syngja
fallega,“ spurði Lísaloppa forviða. „Mér finnst þetta svo
yndislegur söngur, hann minnir mann á að sumarið fer að
koma.“ „Mér finnst það sem þú kallar fuglasöng bara vera garg,“
sagði Kata önug. „Til dæmis svanurinn, fólk kallar þetta söng,
fyrir mér eru þetta bara óhljóð.“ „En viti þið hvað þessi fugl
heitir?“ spurði Konráð.
Veist þú hvað þessi fugl heitir?
Heitir hann:
1. Óðinshani
2. Heiðlóa
3. Næturgali
...það er ekki hægt að sleikja á
sér olnbogann.
...krókódíll getur ekki rekið út
úr sér tunguna.
...svín geta ekki horft til him-
ins.
...fiðrildi geta bragðað með
fótunum.
...fílar eru einu dýrin sem geta
ekki hoppað.
...Það er mögulegt að leiða
kýr upp stiga en ekki niður.
...Konur
blikka aug-
unum
næstum
tvöfalt
oftar en
karlar.
VISSIR ÞÚ AÐ
EMILÍA RÓS
ODDSDÓTTIR,
sex ára, teiknaði
þessa skem-
mtilegu mynd.
Emilía Rós er á
leik skólanum
Hofi. Henni
finnst gaman að
perla, tefla, spila
minnis spil og
leika í fimleika-
leikjum.