Fréttablaðið - 23.03.2013, Blaðsíða 118
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 82
Hjónin Lucky og Tamara Peter-
son verða, ásamt gítarleikaranum
Guitar Shorty, aðalgestir á tíundu
Blúshátíð í Reykjavík sem hefst
í dag og stendur yfir til fimmtu-
dags.
Hjónin hafa verið á tónleikaferð
um Sviss og að sögn Lucky hefur
hún gengið vel. Aðspurður segir
hann gott að vinna með eiginkonu
sinni en fjögur ár eru liðin síðan
þau gáfu út plötuna Darling For-
ever.
„Við semjum nýtt efni saman
á hverjum degi og erum að ljúka
við nýja plötu sem kemur vonandi
út eftir nokkra mánuði,“ segir
hann. „Okkar kemur oftast mjög
vel saman, enda er hún sálufélagi
minn og vinur.“
Lucky fæddist í Buffalo í New
York-fylki árið 1964, sonur James
Peterson sem rak blúsklúbb. Lucky
ólst því upp innan um aðra tónlist-
armenn og var duglegur að læra af
þeim. Hann var sannkallað undra-
barn í tónlist því aðeins fimm
ára kunni hann að spila á píanó
og gítar. Blúsarinn Willie Dixon
kom auga á hæfileika stráksins og
hlóðritaði með honum efni. Fyrr
en varði var hann fenginn til að
spila í The Tonight Show, The Ed
Sullivan Show og What‘s My Line?
Milljónir manna sáu Lucky litla
flytja 1-2-3-4 sem var endursamið
lag James Brown, Please, Please,
Please frá 1956.
Lucky segir þessa frægð aldrei
hafa stigið sér til
höfuðs. „Faðir minn
rak klúbb og bauð þang-
að tónlistarmönnum á borð
við Buddy Guy, þannig að
þetta var ekkert svo erfitt,“
segir hann. Annar þekktur
blúsari, Little Milton, var fasta-
gestur í klúbbnum og var hann í
miklu uppáhaldi hjá Lucky.
Blúsarinn hefur á ferli sínum
gefið út meira en tuttugu sóló-
plötur og spilað undir hjá fjöl-
mörgum tónlistarmönnum. Nýlega
hljóðritaði Lucky eigin útgáfu af
lagi Ray Lamontagne, Trouble.
Spurður hvort hann hlusti mikið á
nýja tónlist, segist hann aðallega
hlusta á gospel. Það kemur ekki
á óvart enda spilar hann mikið í
kirkjunni í heimaborg sinni Dall-
as. „Ég trúi á Guð. Hann stendur á
bak við þetta allt saman.“
Lucky er duglegur við að
fara á tónleikaferðalög. Hann
viðurkennir að vera stundum
þreyttur á öllum þeytingn-
um. „Ég á börn og vil eyða
tíma með þeim. En svona
er þetta bara.“ Tónleikar
Lucky og Tamöru verða
þriðjudaginn 26. mars
á Hilton Reykjavík
Nordica. „Þetta verða
mjög góðir tónleikar,“
fullyrðir Lucky og
hvetur íslenska blús-
áhugamenn til að láta
sjá sig.
freyr@frettabladid.is
Undrabarn til Íslands
Blúsarinn Lucky Peterson spilar á Blúshátíð í Reykjavík ásamt eiginkonu sinni.
SPILAR Á BLÚSHÁTÍÐ
Lucky Peterson spilar á
Blúshátíð í Reykjavík
ásamt eiginkonu sinni
Tamöru.
Ég trúi á Guð.
Hann stendur á bak við
þetta allt saman.
Lucky Peterson
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
LAUGARDAGUR 23. MARS 2013
Sýningar
15.00 Sýningin Tilraun til að beisla
ljósið opnar í Hafnarborg.
Kvikmyndir
16.00 Íslensk kvikmyndahelgi verður
haldin í Háskólabíói. Myndirnar Skýja-
höllin, ‘79 af stöðinni, Húsið og Hrafn-
inn flýgur verða sýndar í dag. Aðgangur
er ókeypis á allar myndirnar.
Tónlist
17.00 Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
heldur tónleika í Langholtskirkju.
21.00 Hljómsveitirnar Oyama og Nolo
spila á nýrri tónleikaröð á Stúdenta-
kjallaranum. Röðin er samstarsverkefni
Kjallarans, gogoyoko.com, Polar Beer og
Nova. Aðgangur er ókeypis.
21.00 Rockabillyband Reykjavíkur
mætir á Bar 11 og spilar fyrir við-
stadda. Áður en hljómsveitin stígur á
svið þeytir Rockabillykóngurinn Smutty
Smiff skífum. Aðgangur er ókeypis.
21.30 Snorri Helgason kemur fram á
tónleikaröðinni Mölin á Malarkaffi á
Drangarnesi. Honum til aðstoðar verður
hólmvíski dúettinn Andri og Jón ásamt
Borko. Aðgangseyrir er kr. 2.000.
22.00 Sálin hans Jóns míns heldur 25
ára afmælistónleika í Vodafonehöllinni.
22.00 K.K. og Maggi Eiríks skemmta
á Café Rosenberg. Aðgangseyrir er kr.
2.000.
22.00 Hljómsveitin Valdimar heldur
tónleika á Græna hattinum á Akureyri.
Miðaverð er kr. 2.500.
23.00 Þrjár plötusnældur taka höndum
saman um hágæða techno. DJ Yamaho,
DJ Vicky og DJ Lovísa þeyta skífum á
StelpuMúzík, líklegast því fyrsta sinnar
tegundar á Íslandi. Aðgangseyrir er kr.
500.
23.00 Magnús Einarsson og félagar
leika tónlist úr ýmsum áttum á Ob-La-
Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangseyrir
er kr. 1.000.
SUNNUDAGUR 24. MARS 2013
Félagsvist
14.00 Félagsvist verður spiluð í
Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Allir eru
velkomnir.
Hátíðir
11.00 Listasafn Reykjavíkur býður til
afmælishátíðar á Kjarvalsstöðum í til-
efni þess að 40 ár séu liðin frá opnun
safnsins þar. Formleg hátíðarhöld
hefjast klukkan 14 og aðgangur er
ókeypis.
Sýningarspjall
13.00 Björn Finnsson tekur á móti
gestum og segir áhugasömum frá
leyndardómum origami í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi. Spjallið er í
tengslum við sýningu hjónana Dave og
Assiu Brill, Origami - brot í brot.
Kvikmyndir
15.00 Rússneska kvikmyndin Níunda
undirfylkið (9 rota) verður sýnd í MÍR
salnum, Hverfisgötu 105. Þar segir
frá undirfylki í sovéska hernum sem
sent var til Afganistans árið 1988 en
liðssveitina skipuðu ungir og óreyndir
piltar. Enskur texti er á myndinni og
aðgangur er ókeypis.
16.00 Íslensk kvikmyndahelgi verður
haldin í Háskólabíói. Myndirnar Rokk í
Reykjavík, Bíódagar og Englar alheims-
ins verða sýndar í dag. Aðgangur er
ókeypis á allar myndirnar.
Uppákomur
20.00 Tómasarmessa verður haldin í
Breiðholtskirkju. Sérstakt þema mess-
inar að þessu sinni er Hver er hann?
Tómasarmessur einkennast af fjöl-
breytilegum söng og tónlist.
Tónlist
17.00 Kammerhópurinn Reykjavík-
Barokk, Marta Guðrún Halldórsdóttir
sópran og Jóhanna Halldórsdóttir flytja
hið sígilda verk Stabat Mater á tón-
leikum í Fella og Hólakirkju. Almennt
miðaverð er kr. 2.000 en kr. 1.000 fyrir
nemendur og eldri borgara. Enginn posi
er á staðnum.
17.00 Haldnir verða orgeltónleikar í
Hallgrímskirkju í tilefni þess að nýbúið
er að hreinsa og betrumbæta orgelið.
Mattias Wager, dómorganisti í Stokk-
hólmi, leikur fjölbreytta efnisskrá þar
sem litadýrð orgelsins fær að njóta sín.
17.00 Andrea Jónsdóttir leikur og
kynnir lög af hljómplötum á Ob-La-Dí-
Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangur er
ókeypis.
19.00 Barómeter verður spilaður í
Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Allir eru
velkomnir.
20.00 Dömukórinn Graduale Nobili
verður með tónleika í Langholtskirkju.
Tónleikarnir verða á páskalegum nótum
og mörg verkin til heiðurs Maríu mey,
en boðunardagur Maríu var síðastliðinn
sunnudag. Miðaverð er kr. 2.000 en
kr. 1.000 fyrir námsmenn og meðlimi
Listafélags Langholtskirkju.
20.30 Hljómsveitin Nóra blæs til
útgáfutónleika í Tjarnarbíói í tilefni
annarar breiðskífu sinnar, Himinbrim.
Tónlistarmaðurinn Jara sér um upp-
hitun. Miðaverð er kr. 1.900.
Leiðsögn
14.00 Halldór Björn Runólfsson, safn-
stjóri og sýningarstjóri sýninganna
Gamlar gersemar og Erlendir áhrifa-
valdar, verður með leiðsögn um þær
sýningar á Listasafni Íslands.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að
skrá þá inni á visir.is.
Skógarhlí› 1 8 • Sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
BORGIRí vor
E
N
N
E
M
M
S
IA
S
/
S
•
N
M
53
2
83
Barcelona
Sevilla
Róm
Prag
1. maí – 4 nætur
Frá aðeins 84.900
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði.
Hotel Catalonia Atenas ***+ 1. maí í 4 nætur.
25. apríl – 4 nætur
Frá aðeins 94.500
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði.
Tryp Macarena **** í 4 nætur.
1. maí – 4 nætur. Örfá sæti laus.
Frá aðeins 124.900
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunve ðr i.
Hotel Galles ***+, 1. maí í 4 nætur.
Ljubljana
1. maí – 4 nætur. 5 sæti laus.
Frá aðeins 99.000
Netverð á mann, m.v. g istingu í tvíbýli með morgunverði.
Hotel Park * **, 1. maí í 4 nætur.
25. apríl – 4 nætur
1. maí – 4 nætur. Fá sæti laus.
Frá aðeins 79.900
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði í 4 nætur á
Parkhotel ****, 25. apríl í 4 nætur.
B
irt
m
eð
fy
rir
v
ra
u
ar
a
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
r
sé
r
ré
tt
t
é
il
leleleleleeleeleeeeeleleleleleeleeeeeeleeeeleeeeellllllllllll
tétététététététtttttétététététtététététététtétététééééééééééééééééééééééééééééé
ið
rééééé
ið
ré
ið
ré
ið
ré
ið
ré
ð
ré
ið
ré
ið
ré
ið
r
ð
rr
ið
r
iðððððððði
in
g
a
in
g
a
in
g
a
ng
a
ng
a
ng
a
ng
a
ng
a
ng
a
ng
a
g
a
g
aa
ng
a
ng
a
ng
a
ng
a
ng
a
ng
a
ng
aa
ng
a
ng
a
ng
a
ng
a
ng
a
ng
a
ng
a
ng
aa
g
a
g
a
ng
a
ng
aa
ng
aaaa
in
g
a
ng
a
ng
aa
g
aaa
g
a
ng
a
ng
a
ng
aaaaaa
g
a
ng
a
ng
a
ng
a
g
a
g
aa
ng
aa
ng
a
nggngggnggngngin
gggngggggggngnggin
ggnggnggnnnnnnnnnnnnnnnnnnnntinnnnnnnniiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiitititititititititititititittttttttttttttttttttttttttttttt
á
s
l
á
s
ll
á
s
lllll
á
s
á
s
á
. . . . . . ... . . uukuu
.
ku
.
kuku
.
kukukuku
.....
ík
uukukuík
uuuu
ík
uuuuuukuuík
uuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuukukukkkkkkkkkkkkkkíkkkk
A
th
.
A
th
.
A
th
.
A
th
.
A
th
.
A
th
.
A
th
.
A
th
.
th
.
A
th
.
A
th
.
A
th
.
A
th
.
A
th
.
th
A
th
.
A
th
A
th
..
A
ththhhthth
A
th
A
tt
A
t
A
t
A
t
AA
t
AA
t
A
t
AAAAAAAAA
að
v
e
að
v
e
að
v
e
að
v
e
að
v
e
að
v
e
að
v
e
að
v
e
að
v
e
að
v
e
að
v
e
að
v
ee
ð
v
e
að
v
ee
að
v
e
að
v
e
að
v
ee
að
v
e
að
ee
að
v
e
að
v
eeeee
að
v
evevv
að
vvvvv
að
v
aðaa
e
g
e
g
ð
g
ð
g
ð
g
ð
g
ð
ð
ð
ððrðrðððrððððrðððððrðrðrðrððrðrðrðrðrrrrrrrrrrrrrrrrrrr
bbb
tu
r
b
tu
r
tu
r
styseyre
y
n
f
án
á á
rvrirriryr
ar
a.a
Eingöngu selt á hársnyrtistofum