Fréttablaðið - 28.03.2013, Blaðsíða 6
28. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
MENNTUN Í vangaveltum um notk-
un spjaldtölva í skólum skiptir
mestu máli að einblína ekki á tækin
eða tæknina, heldur hvernig megi
nýta tæknina til að bæta skólastarf.
Það sem ræður því hvort innleið-
ing spjaldtölva heppnast eða ekki er
hvort kennarar séu tilbúnir í verk-
efnið.
Einnig er líklegt að hlutverk
kennarans komi til með að breyt-
ast með tilkomu nýrrar tækni og
aðferða, frá því að miðla þekkingu
til nemenda í að leiðbeina nemend-
um í vinnu sinni og skapa þeim sem
bestar aðstæður til náms.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í greinargerð sem Ómar Örn
Magnússon, aðstoðarskólastjóri
Hagaskóla, gerði fyrir skóla- og
frístundasvið Reykjavíkurborgar.
„Sumar af þeim hugmyndum
sem komu upp voru góðar en aðrar
voru hins vegar ekki nógu skýrar
varðandi hverju átti að ná fram
með nýrri tækni. Markmiðið með
þessari úttekt var að velta upp
hvað ætti að gera í þessum málum,
hvernig ætti að gera það og í hvaða
skrefum.“
Í skýrslunni segir meðal ann-
ars að tími sé til kominn að marka
stefnu um að setja upp þráðlaust
net í öllum leik- og grunnskólum
borgarinnar. Þegar því hefur verið
náð fram megi bjóða þeim sem nú
þegar eiga spjaldtölvur eða snjall-
tæki að nota þau í námi og kennslu.
Það geti verið fyrsta skrefið í átt
að spjaldtölvuvæðingu í skólastarfi.
Oddný Sturludóttir, for maður
Skóla- og frístundaráðs, segist
ánægð með úttektina. Mikilvægast
sé að innleiðing nýrra tækja verði
nýtt sem tækifæri til skólaþróunar
og til að bæta gæði náms.
„Við eigum að nýta snjalltæki og
upplýsingatækni yfirleitt til að efla
hæfni nemenda til samvinnu og
sjálfstæðra vinnubragða. Við vild-
um gjarnan geta endur nýjað tölvu-
kostinn hraðar en teljum okkur þó
geta tekið mörg jákvæð skref á
næstunni. Nýverið styrktum við
til dæmis fjölbreytt verkefni tengd
upplýsingatækni úr þróunarsjóði
ráðsins og áhugi kennara er mikill.
Þaðan á líka frumkvæðið að koma,
úr grasrótinni.“
thorgils@frettabladid.is
Kennarar undirbúi
komu spjaldtölvanna
Undirbúningur kennara ræður því hvort spjaldtölvuvæðing í skólum heppnast. Í
greinargerð um möguleika spjaldtölvunotkun í grunnskólum Reykjavíkur segir að
tæknin sem slík skipti ekki mestu, heldur hvernig bæta megi skólastarf.
SPJALDTÖLVUR Í GRUNNSKÓLA
1 2 3 4
Fjármunir
Nokkur kostnaður fylgir endurnýjun
tækja, en í skýrslunni segir að í fyrsta lagi
muni kostnaðurinn dreifast yfir nokkurn
tíma þar sem skólar leggja ekki allir í
tækjakaup í einu. Í öðru lagi sé þegar mik-
ill kostnaður við upplýsingatækni í skólum
auk þess sem samfara spjaldtölvuvæðingu
dragist pappírskostnaður saman.
Tími
Spjaldtölvur eru fljótar að ræsa sig upp og
spara einnig tíma sem nú fer í að flytja
bekkinn í tölvuver og aftur til baka í stofu.
Leikskólar
Í úttektinni segir að spjaldtölvur gætu
hentað vel á leikskólum þar sem kenn-
arar séu mikið á ferðinni. Tölvuvæðing
leikskóla sé komin skammt á veg og
áhugavert sé að kanna hvort spjaldtölvur
henti leikskólakennurum í sínu starfi.
Húsnæði
Með spjaldtölvuvæðingu verður ekki
lengur þörf fyrir sérstök tölvuver. Þær
má líka nota hvar sem er í skólanum og
utandyra.
Sérþarfir
Ákveðnir nemendahópar gætu haft mikið
gagn af spjaldtölvum, ekki síst nemendur
með sérþarfir. Spjaldtölvur gætu auð-
veldað þeim að tjá sig, finna upplýsingar
og vinna og skila verkefnum.
Kennsla
Spjaldtölvur bjóða upp á mikla möguleika
í einstaklingsbundnu námi. Eðli kennara-
starfsins gæti breyst með tilkomu nýrrar
tækni þar sem kennarinn mun síður mata
nemendur á upplýsingum, heldur leiða þá
áfram í fróðleiksleit.
i-Helicopter
Stjórnað með iPhone, iPad, iPod touch
Símabær
Íslensk hönnun í
fermingarpakkann
Innleiðingaráætlun
Í úttektinni er kynnt
áætlun til innleiðingar
spjaldtölvu í skólastarfi.
SAMR-áætlunin felur í sér
fjögur stig.
1 Ný tækni notuð til að gera sömu
hluti og áður.
2 Tæknin notuð til að vinna sama
verkefni og áður, en
með skilvirkari hætti.
3 Verkefni eru löguð að nýrri
tækni, til dæmis
unnin glærusýning
sem nýtir myndir,
myndbönd og hljóð.
4 Endurskilgreining verkefnavinnu
þar sem í stað þess
að vinna útdrátt úr
kennslubók nota
nemendur tölvuna og
gögn af netinu til að
vinna eigið námsefni.
1. Á hverju hneykslast sjómenn?
2. Hvað tefur Hverahlíðarvirkjun?
3. Undir hvaða nafni er leikarinn Ás-
geir Þórðarson betur þekktur?
SVÖR
RÓM, AP Þegar bandaríski fjársvikarinn Bernie
Madoff var dæmdur í 150 ára fangelsi eftir sex mán-
aða réttarhöld birti eitt stærsta dagblað Ítalíu, Cor-
riere della Sera, skopmynd á forsíðu sinni. Á mynd-
inni voru dómskerfi landanna borin saman og var
brandarinn sá að á Ítalíu væru sakamenn dæmdir í
sex mánaða fangelsi eftir 150 ára réttarhöld.
Nú hefur athygli fjölmiðla á ný beinst að ítölsku
réttarkerfi eftir að hæstiréttur sneri við sýknudómi
hinnar bandarísku Amöndu Knox sem var gefið að
sök að hafa tekið þátt í morði á breskum herbergis-
félaga sínum árið 2007.
Knox var upphaflega sakfelld og sat í fjögur ár í
fangelsi þar til dóminum var snúið við árið 2011. Nú
hefur hæstiréttur Ítalíu hins vegar hnekkt þeirri
ákvörðun og ákveðið að réttað skuli á ný í málinu.
Að þeim réttarhöldum loknum gæti Knox svo áfrýj-
að sektardómi til annars dómstigs.
Ítalska réttarkerfið hefur af þessum sökum verið
gagnrýnt síðustu daga á þeim forsendum að það geti
tekið fjölda ára að skera endanlega úr um sekt eða
sýknu sakborninga. Þá geta efnaðir Ítalir komið sér
hjá fangelsisvist um árabil með endalausum áfrýj-
unum.
Hefur í þessu samhengi verið bent á að það geti
tekið mörg ár að klára skilnaðarmál fyrir dóm-
stólum, auk þess sem dæmi séu um að skaðabótamál
hafi dregist í áratugi. - mþl
Hæstiréttur Ítalíu hefur snúið við sýknudómi yfir bandaríska skiptinemanum Amöndu Knox:
Réttað á ný yfir Amöndu Knox vegna morðs
AMANDA KNOX Knox var árið 2007 ákærð
fyrir aðkomu að morði á herbergisfélaga
sínum en til stendur að rétta í málinu í
þriðja sinn á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SJÁVARÚTVEGUR Loðnuvertíðinni er
lokið hjá HB Granda og skip fyrir-
tækisins náðu að veiða út hlutaðan
kvóta í lok síðustu viku. Afli skip-
anna nam alls 86.150 tonnum. Alls
nam framleiðsla á frystum loðnu-
afurðum á vegum HB Granda um
18.100 tonnum á vertíðinni.
Ingimundur Ingimundarson,
rekstrarstjóri uppsjávarskipa HB
Granda, segir í frétt frá fyrir-
tækinu að 5.500 tonn hafi veiðst
af loðnu á vertíðinni fyrir áramót
og þeim afla öllum verið landað á
Vopnafirði. Þar af hafi 2.700 tonn
verið fryst.
Góður stígandi var í loðnu-
veiðunum í byrjun ársins og afl-
inn til loka vertíðar nam tæplega
81.000 tonnum. Þar af var rúmlega
54.000 tonnum landað á Vopnafirði.
Í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á
staðnum voru alls fryst 13.500 tonn
af heilli loðnu fyrir ýmsa mark-
aði og rúmlega 600 tonn af loðnu-
hrognum. Til Akraness bárust þá
26.600 tonn og þar voru fryst tæp-
lega 1.300 tonn af hrognum.
Heildarkvótinn á vertíðinni var
570.000 tonn. Þar af komu rúmlega
463.000 tonn í hlut íslenskra skipa.
- shá
HB Grandi frysti rúmlega 2.000 tonn af loðnuhrognum á vertíðinni:
Náðu að frysta 18.100 loðnutonn
Á VOPNAFIRÐI HB Grandi hefur mikil
umsvif á staðnum og rekur þar nýtt
uppsjávarfrystihús.
MYND/HB GRANDI
1. Myndbandinu við Eurovison-framlag Ís-
lands þar sem karfi sést slægður. 2. Bið eftir
mengunarvörnum. 3. Damon Younger.
VEISTU SVARIÐ?