Fréttablaðið - 28.03.2013, Page 12

Fréttablaðið - 28.03.2013, Page 12
28. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 Tónlistarskóli FÍH auglýsir eftir umsóknum um skólavist fyrir skólaárið 2013-2014 Allir nýnemar þreyta inntökupróf í skólann. Umsækjendur fá bréf um miðjan apríl um tíma fyrir inntökupróf en þau fara fram dagana 19-20 apríl n.k. Umsækjendur fá svar um skólavist í lok maí. Tónlistarskóli FÍH er framsækinn skóli með vel menntaða úrvalskennara sem eru virkir þátttakendur í íslensku tónlistarlífi. Skólinn hefur mikla sérstöðu meðal tónlistarskóla landsins þar sem kennd er hefðbundin tónlist (sígild tónlist) og rythmiskri tónlist ( djass, popp, rokk,) Tónlistarskóli FÍH býður nemendum sínum gott námsumhverfi og fjölbreytt námsframboð og um leið gerir skólinn kröfur til nemenda hvað varðar ástundun og námsframvindu. Ef þú vilt verða góður tónlistarmaður er Tónlistarskóli FÍH rétti skólinn fyrir þig. Innritun nýnema fyrir næsta skólaár 2013-2014 stendur yfir hjá Tónlistarskóla FÍH til 31. mars n.k. Sótt er um skólavist á heimasíðu skólans www.tonlistarskolifih.is og á rvk.is (Rafræn Reykjavík) Yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis tilkynnir: Framboðsfrestur til alþingiskosninga 27. apríl 2013 rennur út 12. apríl 2013, kl. 12:00 á hádegi. Yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis tekur á móti framboðslistum föstudaginn 12. apríl 2013, kl. 09:00-12:00 í Múlabergi, Hótel KEA á Akureyri. Á framboðslistum skulu vera nöfn 20 frambjóðenda, hvorki fleiri né færri. Tilgreina skal skýrlega nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu eða starfsheiti og heimili. Listanum skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra frambjóðenda um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Þá skal fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann og fyrir hvaða stjórn- málasamtök listinn er borinn fram frá kjósendum í Norðausturkjördæmi. Fjöldi meðmælenda skal vera að lágmarki 300 en 400 að hámarki. Við nöfn meðmælenda skal greina kennitölu og heimili. Loks skal fylgja framboðslista skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans, hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans í kjördæminu. Yfirkjörstjórn mælist til þess að öllum listum verði einnig skilað á rafrænu formi. Framboðslistar verða úrskurðaðir á fundi yfirkjörstjórnar sem haldinn verður í bæjarstjórnarsal Ráðhússins á Akureyri, að Geislagötu 9, laugardaginn 13. apríl kl. 16:00. Til að flýta fyrir yfirferð og vinnslu, er þess farið á leit að framboðslistar og með- mælendalistar verði sendir með rafrænum hætti á excelskjali til oddvita yfirkjör- stjórnar um leið og unnt er í netfangið: pallh@vma.is, sími 892-6350. Meðan kosning fer fram, laugardaginn 27. apríl 2013, verður aðsetur yfirkjörstjórn- ar Norðausturkjördæmis í Verkmenntaskólanum á Akureyri en talning atkvæða fer fram í sal Brekkuskóla við Skólastíg á Akureyri að loknum kjörfundi. Yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis 26. mars 2013 Páll Hlöðvesson Inga Þöll Þórgnýsdóttir Gestur Jónsson Helga Arnheiður Erlingsdóttir Ólafur Rúnar Ólafsson STJÓRNSÝSLA Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hvetur til þess í skýrslu sinni að samkomu- lag verði gert um að færa nýgerða yfirbyggingu yfir Þorláksbúð. Nefndin fjallaði um málið í kjöl- far bréflegrar athugasemdar um ráðstöfun styrkja úr ríkissjóði til Félags áhugafólks um upp- byggingu Þorláksbúðar. Yfirbygging rústanna við hlið Skálholtskirkju vakti nokkrar deilur, þar sem afkomendur arki- tekts kirkjunnar töldu bygginguna skemma heildarmynd kirkjunnar. Í skýrslu nefndarinnar er farið yfir athugasemdir um fjármál Þorláksbúðar félagsins, meðal annars frá Ríkisendurskoðun, og deilur um skipulagsmál. Segir nefndin að ef ný reglugerð hefði verið komin í gagnið áður en ráðist var út í framkvæmdir hefði verið unnt að koma í veg fyrir að byggingin hefði risið á þessum stað. Ljóst sé að byggingin verði ekki fjarlægð úr þessu nema með dómi eða samkomulagi milli kirkjunnar og Þorláksbúðarfélagsins. Hvetur nefndin til að samkomulags verði leitað um að færa bygginguna. Er Ríkisendurskoðun einnig hvött til að upplýsa hið fyrsta um það hvernig skattfé hefur verið varið til þessa verkefnis. - þj Nefnd skilar skýrslu um byggingar í Skálholti: Vill færa Þorláksbúð frá Skálholtskirkju FRÁ SKÁLHOLTI Mikill styr stóð um byggingu Þorláksbúðar. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hvetur til þess að gert verði samkomulag um að byggingin verði færð. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.