Fréttablaðið - 28.03.2013, Síða 50
28. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 30
BAKÞANKAR
Sögu
Garðarsdóttur
Fyrir nokkru fór ég á fund í Valhöll um stöðu femínisma á Íslandi. Ég hafði
aldrei komið í Valhöll áður og aldrei,
eflaust út af einhverri verndandi töfra-
þulu, hitt Brynjar Níelsson, einn fram-
sögumanna. Þriðja nýjungin var nístandi
sársauki sem ég fékk í auðmýktina. Ég hef
reyndar áður fundið fyrir henni – heim-
urinn er fullur af tækifærum til þess að
láta sig sundla í auðmýktinni ef maður
hefur hana á annað borð. Verkirnir
eru ekki ósvipaðir því og þegar fólk
tekur inn mjög vont eitur eða stend-
ur á sviði og man ekki textann sinn.
Oft er hægt að vinna bug á þessum
eymslum með því að knúsa ketti eða
loka gluggum á internetinu en í ýktum
aðstæðum sem þessum er það
erfiðara.
BRYNJAR Níelsson sagði á
fundinum að femínismi í dag
væri á villigötum. Erkióvinur
auðmýktarinnar er hroki og
yfirlæti og það er svo sannar-
lega yfirlætisfullt að ætla sér
að hafa vit fyrir öllum femínist-
um nútímans. Til þess eru þeir
einfaldlega of margir og fara of
margar ólíkar leiðir til að hægt
sé að alhæfa að þeirra götur liggi
allar til glötunar. Og Brynjar er
því miður ekki sá eini sem full-
yrðir að aðferðir femínista séu
rangar, öfgafullar, fráhrindandi og svo
framvegis.
ÉG þykist viss um að þeir sem halda slíku
fram ætli engan að meiða heldur einungis
að leiðbeina mér og öðrum femínistum á
þá braut sem þeim finnst umræðan eigi
heima á og haga henni eftir sínu höfði. Það
er aftur á móti meiðandi því það gefur í
skyn vantrú á það hvernig við upplifum
samfélagið og efasemdir um getu okkar til
að berjast gegn misréttinu sem við finnum
fyrir. Ofan á þetta bætist svo að þeir sem
tala svona geta yfirleitt ekki vegna líf-
fræðilegrar lukku sinnar upplifað kyn-
bundið óréttlæti eins og konur. Það sem
þeir geta hins vegar gert er að treysta
okkur þegar við segjumst finna fyrir því
og þegar við segjum að breytingar séu ekki
nógu hraðar, víðtækar, miklar o.s.frv. þrátt
fyrir margvíslega og áratugalanga baráttu.
MÁLIÐ er nefnilega tiltölulega einfalt.
Ef þú segir við manneskju sem er ekki
með alvarlega ímyndunarveiki, alræmdur
lygalaupur, ósjálfráða eða mjög ungt barn
að hennar upplifun eða tilfinningar, jafn-
vel yfir mörg ár, sé uppspuni eða ýkjur
þarftu að hafa eitthvað verulega mikið
fyrir þér í því, helst mastersgráðu í sam-
kennd, Evrópu met í innsýn og dulspeki-
prófgráður af þeirri stærð sem ég þekki
ekki. Líklegast ertu þó bara hrokafullur og
vilt auðmýkja.
Að verða illt í auðmýktinni1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. skraf, 6. líka, 8. spíra, 9. eldsneyti,
11. æst, 12. yfirstéttar, 14. létt hlaup,
16. átt, 17. frjó, 18. skörp brún, 20.
strit, 21. stertur.
LÓÐRÉTT
1. lás, 3. í röð, 4. ofbjóða, 5. krá, 7.
þjóðsaga, 10. rúm ábreiða, 13. hrós,
15. fögnuður, 16. veiðarfæri, 19. tveir
eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. rabb, 6. og, 8. ála, 9. kol,
11. ör, 12. aðals, 14. skokk, 16. na, 17.
fræ, 18. egg, 20. at, 21. tagl.
LÓÐRÉTT: 1. loka, 3. aá, 4. blöskra,
5. bar, 7. goðsaga, 10. lak, 13. lof, 15.
kæti, 16. net, 19. gg
Nei! King Kenny er
snúinn aftur! King
Kenny!
Ah!
Stundirnar sem við
eyðum saman eru
svo dýrmætar.
Mér leiðist
ennþá!
Hvert viltu fara í
sumar?
Hvergi. Hvergi?? Það er vesen að ferðast...
bensínverðið er skammar-
lega hátt...verum bara hérna
og njótum þess að vera í
fríi heima.
Það hljómar
reyndar mjög v...
Það verður samt erfitt
að sannfæra börnin um
að vera fjarverandi í
tvær vikur.
Flottasta heimilið
í Vesturbænum
Tinna Brá Baldvinsdóttir býr
í draumahúsinu, sem hún hefur
innréttað listilega með litum
og smekklegheitum.
Sú sem allt veit
Auður Tinna, Útsvarsstjarna,
borðtennis drottning og
Gettu betur-þjálfari.
JÁKVÆÐNI
Í STAÐ ÓTTA
Agnes M. Sigurðardóttir biskup telur að
við verðum sem þjóð að ákveða út frá hvaða
gildum við viljum ganga og að við byggjum
stjórnarskrána á þeim grunni sem við þekkjum.
FRÉTTABLAÐIÐ
ER HELGARBLAÐIÐ
Ómissandi hluti af góðri helgi
Skaft ahlíð 24 | 105 Reykjavík | 512 5000
Auglýsingar 512-5401 | visir.is