Fréttablaðið - 28.03.2013, Blaðsíða 60
28. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40
„Ég fíla svona gestakokkagigg.
Þetta er mjög skemmtilegt og eitt-
hvað sem ég tengi mikið við,“ segir
Gunnar Helgi Guðjónsson.
Hann hefur haft í nógu að snú-
ast síðan hann bar sigur úr býtum
í sjónvarpsþáttunum Master-
chef sem voru sýndir á Stöð 2.
Hann setti saman svokallaðan
Masterchef-matseðil á veitinga-
staðnum Nauthóli, sem var hluti
af sigurlaunum hans í þáttunum,
og einnig var hann gestakokkur í
mötuneyti 365 í nokkra daga. „Fólk
hefur alveg komið inn í eldhús og
þakkað mér fyrir,“ segir hann um
viðbrögðin sem hann fékk í mötu-
neytinu. „Ég fékk að ráða eiginlega
öllu sjálfur og það var til dæmis
gaman að prófa að vera með kalda
súpu,“ segir hann og á við gazpacho
„andaluz“ sem hann bauð upp á.
Í lok maí fer Gunnar Helgi aust-
ur á firði og verður gestakokkur
hjá vini sínum sem verður með
matartrukk á sjómannadaginn í
Neskaupstað. Einnig er líklegt að
hann verði í hálfgerðu læri á Naut-
hóli næstu misserin. Samhliða því
langar hann til að skrifa eitthvað
um mat, auk þess sem hann er að
gera matreiðslubók, sem var einnig
hluti af verðlaununum fyrir sigur-
inn í Masterchef.
„Þetta er eiginlega of gott til að
vera satt,“ segir kokkurinn kraft-
mikli um lífið og tilveruna þessa
dagana. - fb
Þetta er eiginlega
of gott til að vera satt.
Gunnar Helgi Guðjónsson,
sigurvegarinn í Masterchef
Leikaranum Will Smith var boðið
titilhlutverkið í myndinni Django
Unchained eftir Quentin Tarant-
ino en hafnaði því og á endanum
fór það svo að Jamie Foxx tók það
að sér. Smith hefur nú, í viðtali við
Entertainment Weekly, greint frá
ástæðu þess að hann þekktist ekki
þetta kostaboð Tarantinos.
„Django var ekki aðal hlutverkið.
Ég þarf að vera í aðalhlutverki.
Hinn karakterinn var aðal-
hlutverkið,“ útskýrði Smith og átti
þar við hlutverkið sem hinn þýsk/
austurríski Christoph
Waltz lék í myndinni og
hlaut Óskarsverðlaun
fyrir bestan leik í auka-
hlutverki.
Will
viður-
kenndi þó
að Django
Un chained
væri frá-
bær bíó-
mynd. „Hún
var bara ekki
fyrir mig.“
Vildi bara vera
í aðalhlutverki
WILL SMITH
Jennifer Aniston fer með aðal-
hlutverkið í væntanlegri kvik-
mynd sem byggð er á skáld-
sögunni Switch eftir Elmore
Leonard. Frammistaða Aniston
þykir svo góð að hún fékk leik-
stjóra myndar innar, Dan
Schechter, til að brynna músum.
Aniston er best þekkt fyrir
gaman leik en rær nú á önnur mið,
með góðum árangri sé að marka
orð leikstjórans. „Hún sýnir ein-
stakan leik í myndinni og ég er
viss um að fólk verður dolfallið
þegar það sér hana. Ég held hún
muni koma öllum á óvart, hún er
svo hæfileikarík og ég grét er ég
horfði á hana,“ sagði Schechter í
viðtali við THR.
Grætti
leikstjórann
HÆFILEIKARÍK Jennifer Aniston tókst
svo vel upp að leikstjórinn hennar
tárfelldi. NORDICPHOTOS/GETTY
Eldar í mötuneyti og matartrukki
Gunnar Helgi Guðjónsson, sigurvegarinn í Masterchef, hefur í nógu að snúast.
GUNNAR HELGI Meistarakokkurinn er
í góðum gír eftir sigurinn í Masterchef.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Leikarann Tommy Chong, sem
er best þekktur sem annar hluti
gríndúettsins Cheech og Chong
og síðar úr
gaman þáttunum
That 70s Show,
dreymir um að
reykja gras með
Bítlinum fyrr-
verandi Paul
McCartney.
Í viðtali við
slúðurmiðilinn
TMZ greindi
Chong frá þessum draumi sínum,
en hann hefur löngum talað fyrir
neyslu kannabisefna. „Ég hef
reykt með öllum Bítlunum nema
Paul, sem er skrítið því hann var
eiginlega eini alvöru grashausinn
af þeim. John reykti nánast aldrei
því hann hafði áhyggjur af græna
kortinu sínu og Ringo var oft í
meðferð, en George var duglegri.
Einn daginn mun þetta gerast,
Paul!“ sagði Chong.
Dreymir um
að reykja með
McCartney
TOMMY CHONG
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
8
9
5
Kynntu þér páskaopnun allra
Vínbúða á vinbudin.is eða
á farsímavef okkar m.vinbudin.is.
VÍNBÚÐIRNAR
UM PÁSKANA
Skírdagur LOKAÐ
Föstudagurinn langi LOKAÐ
Laugardagur 30. mars OPIÐ 11-18
Páskadagur LOKAÐ
Annar í páskum LOKAÐ
OPNUNARTÍMAR
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
OG AKUREYRI