Fréttablaðið - 28.03.2013, Síða 70

Fréttablaðið - 28.03.2013, Síða 70
28. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50 „Þetta skrifast alfarið á latte- lepjandi leikstjórann úr 101. Ég tek fulla ábyrgð á þessu og bið sjómenn og sjávarútveginn allan afsökunar,“ segir Guðmundur Þór Kárason, leik- stjóri Eurovision-myndbandsins. Í gær birtist í Fréttablaðinu við- tal við stýrimanninn Aríel Péturs- son þar sem hann talaði um fárán- leika þess að Eyþór Ingi skyldi slægja karfa í tónlistarmyndband- inu við lagið Ég á líf, enda sé karfi aldrei slægður. Í kjölfar fréttarinnar hefur Fréttablaðið fengið all nokkrar ábendingar frá fólki í sjávar útvegi, sem annaðhvort tekur undir orð Aríels eða segir karfa stundum slægðan. „Ég píndi Eyþór eigin- lega út í þetta. Hann benti mér á vit- leysuna í þessu en við vorum mjög tæpir með fisk svo ég lét listræn sjónarmið alfarið ráða yfir raun- sæinu. Ég bjóst ekki við að þetta myndi draga dilk á eftir sér en annað hefur þó komið á daginn því það hefur dunið á manni eftir að mynd- bandið kom út,“ segir Guðmundur. „Ég vil því hér með hreinsa mann- orð og æru Eyþórs og vona að hann geti látið sjá sig á Dalvík aftur eftir þetta,“ bætir hann við og hlær, en Eyþór Ingi kemur frá sjávarplássinu Dalvík, er af sjómönnum kominn og hefur sjálfur sótt sjó margoft í gegn- um árin. Hann ætti því að vera sjó- mannshnútunum vel kunnugur. Allt þetta uppþot hefur þó einn- ig leitt gott af sér því nýr málshátt- ur hefur orðið til: „Hver hefur sinn karfa að slægja.“ Segir Guðmundur hann mikið notaðan í kringum sig þessa dagana. Nú er bara spennandi að sjá hvort málshátturinn hafi orðið til í tæka tíð til að ná inn í einhver páskaeggjana í ár. - trs „Hver hefur sinn karfa að slægja“ Guðmundur Þór Kárason, leikstjóri Eurovision-myndbandsins, biður sjómenn og sjávarútveginn afsökunar. TEKUR Á SIG ÁBYRÐGINA Leik- stjórinn Guðmundur Þór segist hafa valið listræn sjónarmið fram yfir raunsæið í Eurovision-myndbandinu. MYND/VALGEIR MAGNÚSSON „Ég verð með tölvuna með mér og tek líka rosalega mikið af vínyl- plötum með. Ég mun örugglega styðjast eitthvað við lagalista en þar fyrir utan mun stemningin ráða lagavalinu,“ segir söngkon- an Rósa Birgitta Ísfeld. Hún mun þeyta skífum á skemmtistaðnum Dolly í átta klukkustundir í dag. Hljómsveitin Sometime kemur fram á tónlistarhátíðinni Tall- in Music Week í byrjun apríl og er dansmaraþonið liður á söfn- unarátaki sveitarinnar. „Við von- umst til að geta safnað í ferðasjóð með þessu,“ segir Rósa Birg- itta og bætir við: „Ég skipulagði bolonjese-veislu á föstudag sem gekk ekki nógu vel. Fáir mættu og ég þurfti að frysta um tíu kíló af bolonjese í lok dagsins,“ segir hún hlæjandi. Rósa Birgitta vonar að dans- maraþonið verði betur sótt en bolonjese-veislan, en viðburður- inn hefst klukkan 16 og stendur til miðnættis. „Ég er mjög forvitin að sjá hvort það verður stemning fyrir þessu. Það kostar ekkert inn á staðinn en ég tek á móti frjálsum framlögum frá fólki.“ Auk þess að sjá um tónlistina ætlar Rósa Birg- itta að skreyta skemmtistaðinn hátt og lágt með heimatilbúnu skrauti. „Ég ætla líka að sprengja konfettí- sprengju þannig að ég verð líklega sett í það að sópa gólfin í lok kvölds- ins,“ segir hún að lokum. - sm Þeytir skífum í átta klukkutíma Rósa Birgitta Ísfeld safnar fé fyrir tónleikaferðalagi með dansmaraþoni á Dolly. Í SÖFNUNARÁTAKI Rósa Birgitta Ísfeld mun þeyta skífum í átta klukkustundir í kvöld í von um að safna fyrir tón- leikaferðalagi til Tallinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Við erum á lokasprettinum í fjármögnunarferlinu sem ég hef fulla trú á að klárist fljótt,“ segir leikstjórinn Hafsteinn Gunnar Sigurðs son sem stefnir á tökur á nýrri mynd í byrjun sumars. Huldar Breiðfjörð á heiður- inn af handriti myndarinnar sem hefur ekki ennþá fengið endanlegt nafn. Myndin fjallar um ungan mann sem býr litlum smábæ á Vestfjörðum og fær föður sinn sem hann þekkir lítið í heimsókn. Með hlutverk feðganna fara þeir Björn Thors og Helgi Björnsson. „Við erum í breytingarferli varð- andi titil myndarinnar svo ég kýs að kalla hana Ónefnt kvikmynda- verkefni eins og stendur. Við stefnum á að hefja tökur í lok maí,“ segir Hafsteinn Gunnar, sem var staddur á flugvelli í París þegar Fréttablaðið náði af honum tali þar sem hann var á leiðinni með kvikmynd sína Á annan veg á kvikmyndahátíð í Suður- Frakklandi. Hafsteinn segir tón myndar- innar svipa til Á annan veg. Í þessari mynd verða þó fleiri leikarar. Hafsteinn kann greinilega vel við sig á Vest fjörðum en þar var Á annan veg einnig tekin upp á sínum tíma. „Já, það er gott að vera þar en ég býst við því að við verð- um þar við tökur í allt sumar. Þessi er svipuð myndinni Á annan veg að því leyt- inu til að þetta er svona drama- kómedía,“ segir Hafsteinn. Fram- leiðendur myndarinnar eru þeir Þórir Snær Sigurjóns- son og Sindri Kjartansson. Á annan veg var fyrsta kvikmynd Hafsteins í fullri lengd og fékk afar góðar við- tökur, hér heima sem og á erlendum kvikmynda- hátíðum. Búið er að endurgera myndina í Hollywood undir heitinu Prince Aval- anche þar sem Paul Rudd og Emile Hirsch fara með aðalhlutverkin. alfrun@frettabladid.is Tekur upp nýja mynd á Vestfj örðum í sumar Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, leikstjóri Á annan veg, er nú í óða önn að undir- búa tökur á nýrri mynd þar sem Björn Thors og Helgi Björnsson fara með aðal- hlutverkin. Tökur hefj ast í lok maí á Vestfj örðum. Verið er að klára fj ármögnun á myndinni, sem enn gengur undir heitinu Ónefnt kvikmyndaverkefni. LEIKA FEÐGA Í MYNDINNI Hafsteinn Gunnar Sigurðsson tekur upp aðra mynd sína í fullri lengd í sumar. Þeir Björn Thors og Helgi Björnsson fara með aðalhlutverkin. Tökur hefjast á Vestfjörðum í lok maí. BJÖRN THORS Þar sem Alpafjöllin teygja sig suður á Ítalíu liggja nokkur undurfögur stöðuvötn, sum tilheyra alfarið Ítalíu, önnur eiga líka landamæri að Sviss. Í þessari fallegu ferð gefst einstakt tækifæri til að kynnast nánar þessu einstaka svæði á Norður-Ítalíu. Fararstjóri: Hlíf Ingibjörnsdóttir Um ferðina: LÁGMÚLI 4 108 RVK | S. 585 4000 | URVALUTSYN.IS á mann í tvíbýli. Gist verður við Lago Maggiore í 4 nætur og við Comovatn í 3 nætur. 192.600 KR.- Ítalía heillar 11. - 18. júní Mjög mikið innifalið KOMIN ÚT Í STÓRRI KILJU! „Ég er rosa mikið í kaffinu og drekk alltof marga bolla af því á hverjum degi. Mér finnst það best beint úr könnunni og nenni ómögulega að flækja það of mikið, þótt ég fái mér reyndar yfirleitt mjólk út í það.“ Andri Már Enoksson, meðlimur í Vök, sigur- vegara Músíktilrauna 2013. DRYKKURINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.