Fréttablaðið - 30.03.2013, Side 52
30. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36
Hnubbi. Það er ekki mjög tilkomumikið orð, Hnubbi. Það hljómar eins og
nafn á persónu úr brúðuþáttum og raunar er fátt við nafnið sem gefur til
kynna að hnubbinn sé einn nánasti ættingi stærsta landdýrs í heimi: fílsins.
Þannig er það nú samt. Hnubbarnir eru af ættkvísl sem einnig inniheldur
fíla og sækýr– og engar aðrar lifandi verur.
Flestir halda við fyrstu sýn að hnubbar séu nagdýr. Það er í sjálfu sér ekki
skrítið, þeir minna á héra með stutt eyru og fullvaxin dýr hafa stórar fram-
tennur eins og þær sem við könnumst við úr nagdýraríkinu.
En þrátt fyrir þetta eru ýmis einkenni sem hnubbar deila með ættingjum
sínum, fílunum. Þar má nefna táneglur, frábæra heyrn, næma þófa á fót-
unum, litlar skögultennur, gott minni, mikla heilastarfsemi í samanburði við
önnur svipuð spendýr og lögun sumra beina. Hnubbarnir eru þó líka eilítið
frumstæðir af spendýrum að vera, búa til dæmis yfir vanþróuðu kerfi til að
stjórna líkamshita sínum og þurfa þess vegna að hjúfra sig hver að öðrum
til að halda á sér hita og leggjast í sólböð eins og skriðdýr.
Hnubbinn, sem á flestum tungumálum heitir „hyrax“, á heimkynni sín
í fjalllendi Afríku sunnan Sahara og í Mið-Austurlöndum. Til eru fjórar
hnubbategundir sem eru á bilinu 30 til 70 sentimetrar að lengd og vega tvö
til fimm kíló. - sh
Fílsfrændi í nagdýrslíki
SÆTUR Hnubbinn er ekkert líkur fíl. Og ekki sækýr heldur. Samt eru það nánustu
frændsystkin hans í dýraríkinu.
DÝR VIKUNNAR
HNUBBIALÞINGISKOSNINGAR 27. APRÍL 2013
Framboðsfrestur til alþingiskosninga 27. apríl 2013 rennur út
föstudaginn 12. apríl nk. kl. 12 á hádegi.
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis suður tekur á móti framboðslistum þann
dag kl. 10 -12 á bókasafni Hagaskóla, Fornhaga 1, II. hæð.
Á framboðslista skulu vera 22 nöfn frambjóðenda. Hverjum framboðslista skal fylgja
skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á
listann. Framboðslista skal og fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum
í hlutaðeigandi kjördæmi. Tilgreina skal nafn meðmælanda, kennitölu hans og heimili.
Fjöldi meðmælenda skal vera 330 að lágmarki og 440 að hámarki.
Enginn kjósandi getur mælt með fleiri en einum framboðslista. Komi það fyrir strikast nafn
kjósandans út í báðum/öllum tilvikum. Loks skal fylgja framboðslista skrifleg tilkynning frá
frambjóðendum listans um hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans. Allar framan-
greindar yfirlýsingar skulu ritaðar eigin hendi.
Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega nafn frambjóðanda, kennitölu hans,
stöðu eða starfsheiti og heimili til þess að enginn vafi geti leikið á því hverjir eru í kjöri.
Mælst er til að framboðslistum og listum yfir meðmælendur verði einnig skilað á rafrænu
formi.
Að öðru leyti er vísað til ákvæða laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, með
síðari breytingum.
Meðan kosning fer fram, laugardaginn 27. apríl nk., verður aðsetur yfirkjörstjórnar
í Hagaskóla, þar sem talning atkvæða mun fara fram að kjörfundi loknum.
Reykjavík, 27. mars 2013
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis suður
AUGLÝSING FRÁ YFIRKJÖRSTJÓRN REYKJAVÍKURKJÖRDÆMIS
SUÐUR UM MÓTTÖKU FRAMBOÐSLISTA OG FLEIRA
KROSSGÁTA
VEGLEG VERÐLAUN
LAUSNARORÐ
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist mikilvægt menningarfyrirbæri.
Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 3. aprín næstkomandi á krossgata@frettabladid.is merkt „30.
mars“.
Vikulega er dregið er úr inn-
sendum lausnarorðum og fær
vinningshafi eintak af bókinni
Illska eftir Eirík Örn Norðdahl frá
Forlaginu. Vinningshafi síðustu
viku var Ástríður Þorsteinsdóttir,
Reykjavík.
Lausnarorð síðustu viku var
K V I K M Y N D A G E R Ð
1 2 3 4 5 6 7 8 9
10
11
12
13
14 15
16 17
18 19 20 21 22 23
24
25
26 27
28 29 30
31
32
33
34 35 36
37
38 39
40
41 42
L Í F S E I G U M S É R V I T R I N G
Í L I O O T A A Ð A
K L O F N A Ð U R Ó R L U T
A T K M G A L D R A B R E N N A
M Á T T U G A U P S Á N R
S R N G N J A R Ð A R S V A L A
K L O F N I N G S G M I R R
L L U I Á H R I F A N N A B
U L A M A Ð A R Í Í Æ R
K L A K U F H N E F A R É T T U R
K K K U K L A L B J N
A F L O K A O N O T A D R J Ú G A N
R G M D V Ó G L
B R Ú Ð A R M E Y J A Í K U I
R E N Á E N D U R R Á Ð A
L I T B L I N D U R I N S
Ö Ð U N E T S Í U S M
S Ó L A R S Ý N U I M A K K E R
L U M A L L A I N
H O R S L U M M A L S Á L I N A
LÁRÉTT
1. Jóna og Gunna býtta á körlum og kofum (10)
10. Er Skipavík ekki örugglega í 104?
11. Bara hálfpartinn hálfaumur en vælir samt? (8)
12. Hundrað ára fleyta mótar tíðaranda (8)
13. Bless og hjálp, látið á engu bera (5)
14. Teiti, tungukossar og sprell í boðinu (15)
16. Á ögurstund skal ætíð halda ákveðnu blómi (8)
18. Fjölga verkefnum fram á kvöld (11)
24. Sjóður geymir eina krónu, fyrir það fæst gömul
drusla (8)
25. Rak upp mikið org fyrir mein og kúst (11)
26. Góssnóttin gefur auðfenginn (9)
28. Virðuleg fá heiðursprís (7)
31. Lygarnar um vitlausu hreyfingarnar (14)
32. Allsherjarkrúna fjallanna miklu (7)
33. Titra enda illa rór í rangri röð (7)
34. Tarfar eru ruglaðir dónar (6)
35. Hjálparhella bandsins mokar fyrir utan (8)
37. Set rist í þann sem lagt hefur sig fram (7)
38. Gengur brún um flöt (7)
39. Segi pólitíinu frá landaleifum (6)
40. Fljót á undan frásögninni, sem er með stysta
móti (9)
41. Finn ekki pláss hvar gneistar hafa gengið (7)
42. Í megrun með ringluðum og lituðum (6)
LÓÐRÉTT
1. Reimalaus kaffifilter? (8)
2. Ýkja hugrekki fyrir hugrakka (10)
3. Ætli sá möguleikamildi leggi sig allan fram? (8)
4. Krimminn og kjáninn sem veit ekkert um fasta
Arkímedesar (10)
5. Þessi pumpar að utan fyrir ljúfan* (8)
6. Sorpið saxaði suð (7)
7. Vísaðir og dróst úr þraut (7)
8. Auð veki keituveitu með meiru (7)
9. Fljót gráta bóngóða (10)
15. Kósíheit og kakóbolli, það er ákveðinn stíll (6)
17. Grænlandsgjóla, Dalvíkurderringur eða bara
suðursperringur? (14)
19. Ein taka vara á rugli aukagripa (11)
20. Komist fyrir sumar vegna þeirrar sem fékk að
lifa (8)
21. Þetta varðar ráðrúm til að fara fram á að bíða
með atlögu (13)
22. Spái trjádauða í götu í Breiðholtinu (10)
23. Skafti vill kökuna hans Skapta, enda stærri (13)
25. Demban mikla sem færði okkur skó og stígvél
(11)
27. Pressa pallbíla (6)
29. Sá prúðbúni flutti upp eftir fljóti (9)
30. Uxi elskar skessur úr eldsneytisuppsprettum (9)
36. Er þessi ull of mjúk fyrir amboðin? (5)
37. Er Bylgjan treg í taumi? (4)
*Rétt er að benda á að hér er um óvenjulegt– en þó fullkomlega réttmætt– stafsetningarafbrigði að ræða.