Fréttablaðið - 30.03.2013, Síða 56
30. mars 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 40
BAKÞANKAR
Karenar
Kjartansdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
Grænland er spennandi draumaland á hverfanda hveli í bókstaflegri merk-
ingu. Þegar ég var yngri blundaði í mér
draumur um að kynnast grænlenskum
veiðimanni og njóta ásta með honum í snjó-
húsi á hjara veraldar á meðan vindurinn
geisaði um hjarn en norðurljós dönsuðu á
himni. En nóg um það. Þessi draumur blund-
ar ekki lengur í brjósti mér en hugsanlegt er
að eitthvað eimi enn af honum í undirmeð-
vitundinni, í það minnsta hlusta ég fremur
mikið á grænlensku útvarpsstöðina Kalaal-
lit Nunaata Radioa í gegnum snjallsímann
minn þótt ég skilji ekki orð (kannski er það
þess vegna sem ég þoli við).
GRÆNLENSKIR stjórnmálamenn eru
líka spennandi. Kuupik Kleist, fyrrver-
andi forsætisráðherra heimastjórnar
Grænlands, er merkilegur maður. Faðir
hans var danskur loftskeytamaður sem
sinnti tímabundnu verkefni í þorpinu
sumarið ´57. Í þorpinu hitti hann unga
stúlku sem var bæði mállaus og
heyrnarlaus en loftskeytamann-
inum tókst að senda henni nógu
skýr skilaboð og saman gátu
þau barn.
REYNDAR var faðirinn á
bak og burt þegar drengur-
inn Kuupik kom í heiminn og
hafði ekki meira samband.
Kuupik litli var alinn upp hjá
frænku sinni sem þótti dreng-
urinn bráðger og efnilegur.
Sem unglingur var hann því
sendur aleinn til Danmerkur í nám þótt
ekkert kynni hann í dönsku. Þegar hann
snéri aftur voru æskuslóðir hans orðnar að
eyðibæ þar sem námuvinnslunni þar hafði
verið lokað. Hann naut einnig vinsælda sem
söngvari og hefur verið kallaður hinn græn-
lenski Leonard Cohen. Þið getið rétt ímynd-
að ykkur hve ljúfsárt það væri að heyra
hann syngja lagið Waiting for a Miracle.
NÚVERANDI forsætisráðherra heima-
stjórnar Grænlands er ekki síður áhugaverð
manneskja. Aleqa Hammond missti ung
föður sinn í veiðiferð. Hún fór út í heim 15
ára gömul og byrjaði að sjá fyrir sér. Kleist
hefur svo sem ekkert verið þekktur fyrir
linkind í garð stórfyrirtækja en Aleqa geld-
ur þeim enn meiri varhug og vill sjá til þess
að þeir greiði skatta jafnt í góðæri sem í
kreppu og hlunnfari ekki samfélagið. Græn-
land eigi ekki að vera verstöð stórfyrirtækja
og mengun og umhverfisspjöll eigi ekki að
vera ókeypis. Auðlindamálin eru aðal málin
á Grænlandi og segja sumir að framtíð fjar-
skiptamarkaðarins velti á ákvörðunum
grænlensku heimastjórnarinnar á næstu
árum, þar í landi eru jú málmarnir sem
nauðsynlegir eru framgangi tækninnar.
MÉR þykir gott til þess að vita að þar
eru ekki skrælingjar á valdastólum sem
láta glepjast við gylliboðum erlendra auð-
hringja. Mér varð svona hugsað til þeirra
þegar ég hlustaði á fréttir af stórfyrirtækj-
um sem náðu að sannfæra íslenska kollega
þeirra Kleists og Hammond um að það væri
ástæðulaust að þau þyrftu að borga skatta.
Skrælingjadraumar
Sælir,
Voldemort!
Ertu klár
á barinn á
kvöld?
Klár eins og
batterí, fröken! Í
kvöld skulum við
rústa gæjunum!
Eins og egg í
vöffludeigi!
Eigum við að
seg ja klukkan
níu?
Frábært! Þá
næ ég að
þvo á mér
hárið! Ciao,
bella!
Vá! Hvernig
náðiru þessu,
Voldemort?
Fjonesse!
Með extra
lyftingu!
Nýja þvottavélin og
þurrkarinn koma í
dag!
Þetta er það mest
spennandi sem hefur
komið fyrir mig í langan
tíma!
Gaur, þú verður að
legg ja meira á þig!
Pelsabúðin
Opið
Segðu honum
að við eigum
þá til í litlum
stærðum,
miðlungs og
stórum, EKKI
lifandi!
ÁI! Mér
er illt í
olnbog-
anum!
Hvað kom fyrir?
Ég datt af
hjólinu og
meiddi mig
í hnénu.
Er þér illt í
olnboganum eftir
að þú meiddir þig
í hnénu??
Nei. Mér er illt í olnboganum
því ég lamdi Sollu með honum
þegar ég datt af hjólinu og
meiddi mig í hnénu.
En þá
sparkaði hún
í mig svo mér
er eiginlega
meira illt í
rassinum en
olnboganum...
ÁI! Mér
er illt í
löpp-
inni!
Ég
gefst
upp.
LÁRÉTT
2. þó, 6. umhverfis, 8. heldur brott,
9. útdeildi, 11. ullarflóki, 12. rót, 14.
hopp, 16. átt, 17. blundur, 18. tæfa,
20. eldsneyti, 21. truflun.
LÓÐRÉTT
1. veltingur, 3. frá, 4. sæfrauð, 5.
traust, 7. naggrís, 10. flík, 13. smátt
lausagrjót, 15. umkringja, 16. hlóðir,
19. bókstafur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. samt, 6. um, 8. fer, 9. gaf,
11. rú, 12. grams, 14. stökk, 16. sv, 17.
lúr, 18. tík, 20. mó, 21. ónáð.
LÓÐRÉTT: 1. rugg, 3. af, 4. merskúm,
5. trú, 7. marsvín, 10. fat, 13. möl, 15.
króa, 16. stó, 19. ká.
Þ U R R A U G U
Náttúruleg
vörn
Nýjung
gegn þur
rki
í augum
Fæst í Lyfjaveri,
Suðurlandsbraut 22
Thealoz inniheldur trehalósa sem er
náttúrulegt efni sem finnst í mörgum jurtum
og dýrum sem lifa í mjög þurru umhverfi.
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna
hornhimnunnar gegn þurrki.
Án rotvarnarefna
Þægilegar umbúðir auðvelda skömmtun
2ja mánaða skammtar
Má nota með linsum
Snyrtilegur klæðnaður áskilin • Heimilismatur í hádeginu virka daga • Boltatilboð •Hamborgaratilboð • Veislusalur til útleigu
“Best geymda leyndarmál Kópavogs”
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS