Fréttablaðið - 25.05.2013, Blaðsíða 16
25. maí 2013 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 16
„Því hefur verið haldið fram að
í kvikmynd minni „Fjallkonan
hrópar á vægð“ megi finna „úrelt-
ar fullyrðingar úr gömlum tíma,
með nokkra viðmælendur sem tali
í frösum og hafi uppi 30 ára gamla
umræðu,“ eins og fyrrverandi ráð-
herra skrifar í Bændablaðið.
Því er til að svara að viðmæl-
endur mínir eru ekki nokkrir í
myndinni, þeir eru hátt á þriðja
tug. Fræðimenn, embættismenn,
landeigendur, áhugafólk um land-
græðslu og líka bændur. Allt fólk sem ber
hag landsins og jafnvel sauðfjárræktar-
innar fyrir brjósti. Nær öllu þessu fólki
ber saman um að núverandi fyrirkomulag
á beitarstjórnun sé verulega ábótavant,
lausaganga búfjár sem almenn regla sé
tímaskekkja.
Vissulega er þetta 30 ára gömul umræða
og reyndar er mun lengra síðan framsýnir
menn og konur vöktu máls á nauðsyn þess
að gera grundvallarbreytingar á búskap-
arháttum Íslendinga. Það væri óskandi að
þessi umræða væri löngu úrelt, en svo er
því miður ekki.
Síðustu áratugi hefur blessunarlega
margt breyst til hins betra, fé hefur fækk-
að ef allra síðustu ár eru undanskilin,
veður far batnað og bændur almennt orðnir
afar meðvitaðir um að ganga ekki um of á
gæði landsins. Sums staðar fer beit og upp-
græðsla saman og er það vel. En í skjóli
hinnar almennu reglu um lausagöngu þríf-
ast hins vegar búskussar sem eru stétt
sinni til skammar. Enn er verið að
beita á örfoka land á gos beltinu,
viðkvæmasta svæði landsins,
enn á skógrækt og landgræðsla í
vök að verjast á svæðum þar sem
öllum fræðimönnum ber saman
um að engin beit ætti að líðast,
enn eiga landeigendur, sumar-
bústaða eigendur, skógarbændur
og aðrir sem ekki kæra sig um að
land þeirra sé nýtt undir atvinnu-
starfsemi annarra undir högg að
sækja. Vegna úreltra laga komast
fáir aðilar upp með að koma óorði á heila
atvinnugrein. Þetta er staðreynd og þessu
verða sauðfjárbændur og aðrir búfjár-
eigendur að taka höndum saman um að
breyta og reka af sér slyðruorðið.
Landið njóti vafans
Gjarnan er vísað til Gæðastjórnunarinnar
og ábyrgðar Landgræðslunnar á ástandi
mála, en eins og nýleg dæmi sanna og
Landgræðslustjóri hefur marg sagt skort-
ir allar lagaheimildir til þess að grípa inn
í þegar mikið liggur við. Eftirlit með því
að þær landbótaáætlanir sem lagðar eru
til grundvallar í gæðastjórnuninni nái
fram að ganga er nær ekkert, og í raun
óframkvæman legt án þess að leggja út í
gríðarlegan aukinn kostnað, fyrir utan það
að skussarnir geta einfaldlega sagt sig frá
Gæðastjórnuninni ef þeim sýnist svo og
haldið áfram uppteknum hætti, hvernig
sem ástand landsins er.
Það sér það hver sem vill sjá að auðvi-
tað ætti landið okkar að njóta vafans, en
ekki búfé. Afrétti, þjóðlendur, friðað land,
fólkvanga, vegstæði, sumarbústaðarlönd
og borgarlönd ætti ekki að þurfa að girða
af. Nýting lands til beitar ætti að vera
skil yrðum háð, ekki óskoraður réttur sem
Landgræðslan og aðrir hagsmunaaðilar
þurfa af veikum mætti að setja sig upp á
móti þegar svo ber undir.
Beitarstjórnun, á meðan lausa gangan
viðgengst, er vonlaust verkefni. Það er
ógerlegt að ætla sér að girða af hvern
blett sem á að hlífa. Hluti afréttar getur
verið „beitarhæfur“ og hluti hans alls ekki,
en sauðfé spyr ekki að því. Það verður að
vera hægt að stöðva beitina þar sem í óefni
stefnir.
Eina skynsamlega heildarlausnin er
afnám þessarar gölluðu meginreglu á land-
inu öllu. Sú lagabreyting er frumforsenda
þess að við getum nýtt allar okkar rann-
sóknir og þekkingu og hlíft landi eða nýtt
það með langtímasjónarmið að leiðarljósi
svo óflekkaður sómi sé að fyrir bændur
landsins og þjóðina alla.
Við sem lifum í dag eigum ekki landið
okkar, við höfum það að láni frá komandi
kynslóðum og okkur ber að leita ýtrustu
leiða til að tryggja framtíðarhag þess með
óskoruðum hætti. Um það eitt bið ég að við
sameinumst.”
Síðasta grein fjallkonunnar
Herdís Þorvaldsdóttir, amma okkar, var hvorki „á móti“ búfé né eigendum þeirra – hún var MEÐ náttúrunni, með flóru lands-ins og fánu. Á langri ævi náði hún að tengjast hinum hæga
hjartslætti landsins, sá hverju hægt er að fá áorkað þó hvert einstakt
handtak virðist lítilmegnugt. Á hálfri öld líknaði hún vindorfinn mel-
reit við Elliðavatn og umbreytti í skóg. En á sama tíma sá hún gróið
land annars staðar umbreytast í auðn.
Þrátt fyrir sannfæringu sína um að eitthvað yrði að breytast var
amma ekki öfgamanneskja að neinu leyti. Að vísu var hún grænmetis-
æta að mestu síðustu áratugina en kunni vel að meta íslenskt lamba-
kjöt þegar svo bar undir.
Barátta hennar snérist ekki um að útmála bændur landsins sem
illvirkja. Heldur vildi hún í raun hefja vegsemd þeirra til virðingar
með því að krefja þá og okkur öll um að haga landbúnaðarframleiðslu
landsins og skipulagi á skynsaman og sjálfbæran hátt og nýta okkur
þekkingu og reynslu frá öðrum þjóðum en þykjast ekki alvitur og
alheilög í krafti hefða sem engin rök liggja lengur að baki.
Óbilandi sannfæring
Lausaganga búfjár er ekki fyrirkomulag sem Íslendingar hafa búið
við frá örófi alda. Landnámsmenn Íslands höfðu um beit og skyldur
búfjáreigenda skýr lög og þau lög voru ekki afnumin fyrr en neyð
örbirgðar knúði forfeður okkar til örþrifaráða. Nú er öldin önnur og
búfjáreigendum engin vorkunn þó hert sé á skilyrðum fyrir land-
nýtingu. Réttir og fjárgöngur þurfa ekki að leggjast af, sú menning
sem fylgir sauðfjárbúskap og atvinnugreininni í heild er engin hætta
búin þó landið okkar fái að njóta vafans með afgerandi hætti. Við sem
þjóð erum þess umkomin að geta stýrt beitinni og samtímis haldið
búfé svo bæði land og þjóð, bændur sem og aðrir þegnar landsins, hafi
ábata af um ókomna tíð.
Amma mátti oft þola hótanir og orðhvöss bréf frá þeim sem „vildu“
misskilja hennar baráttu en aldrei var hún bitur eða sár út í nokkurn
mann. Hún hélt höfði og barðist fyrir þeim málstað sem hún trúði á
af yfirvegun og æðruleysi, á sama hátt og hún ræktaði garðinn sinn,
nær og fjær, handtak fyrir handtak, grein fyrir grein.
Óbilandi sannfæring hennar lá í eftirfarandi hvatningu sem hún
samdi sjálfri sér og hafði jafnan í sjónmáli við ritvélina og síðar
tölvuna:
„Við berum þá skyldu gagnvart afkomendum okkar og náttúrunni
sjálfri að skila gróðurþekju og jarðvegi landsins af okkur í betra
ásigkomulagi heldur en við tókum við því.“
Stöðvum lausagöngu búfjár:
http://stodvumlausagongu.is/
Úreltar fullyrðingar?
Herdís Þorvaldsdóttir lést á Land-
spítalanum 1. apríl síðastliðinn. Þá um
nóttina lofuðum við barnabörnin henni
að halda áfram baráttunni fyrir gróður-
vernd og uppgræðslu landsins.
Þegar hún lést ákváðum við í sam ein-
ingu að leggja lokahönd á þá blaðagrein
sem hún hafði unnið að síðast, rétt eins
og við aðstoðuðum hana jafnan við loka-
yfirlestur á fjölmörgum öðrum greinum.
Það má segja að síðustu sex mánuði
fyrir andlátið hafi heimildarmyndin
„Fjallkonan hrópar á vægð“ og eftir-
fylgnin við hana haldið ömmu gangandi.
Greinina sem hér fylgir skrifaði hún
sem svar við gagnrýni á myndina sem
hún fjármagnaði úr eigin vasa og lagði
alla sína krafta í.
➜ Það sér það hver sem vill sjá
að auðvitað ætti landið okkar að
njóta vafans, en ekki búfé.
LANDVERND
Herdís
Þorvaldsdóttir
leikkona
Benedikt Þorri Sigurjónsson
Gunnlaug Þorvaldsdóttir
Gunnlaugur Egilsson
Harpa Fönn Sigurjónsdóttir
Hannes Þórður Þorvaldsson
Herdís Anna Þorvaldsdóttir
Jón Þórarinn Þorvaldsson
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir
Tinna Hrafnsdóttir
Ólafur Egilsson
534
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ
Ouagadougou
Sigríður Víðis Jónsdóttir, upp-
lýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi
514
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ
Styttum kennaranámið
Pawel Bartoszek pistla-
höfundur
438
FIMMTUDAGUR 24. MAÍ
Að fá lánað
Úrsúla Jünemann,
kennari og leiðsögumaður
334
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ
Strangtrúaðir netverjar
Auður Jónsdóttir rithöfundur
327
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ
Merkur stjórnmála-
maður og ríkis stjórn
kveðja
Margrét S. Björnsdóttir,
félagi í Samfylkingunni
224
LAUGARDAGUR 18. MAÍ
300 ára gamlar
kennsluaðferðir
Mikael Torfason ritstjóri
Skoðun visir.is
„Verkefnið er alltaf að auka
hlut kvenna og jafna hlut
kvenna og karla í
stjórnmálum.“
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkis-
ráðherra tjáði sig um kynjahlutföllin í nýrri
ríkisstjórn fyrr í vikunni. Formenn
Framsóknar og Sjálfstæðisfl okks vilja ekki
meina að kyn skipti máli, heldur ráði
hæfi leikar aðeins för.
„Hér er örugglega skilið vel við gagnvart
verkefninu, viðtakanda og þessu fólki sem
hér vinnur.“
Fjármálaráðherrann Bjarni Benediktsson var jákvæður í garð
forvera sína Katrínar Júlíusdóttur þegar hann tók við lyklunum
að ráðuneytinu. Hann sagðist viss um að þau myndu eiga í góðu
samstarfi áfram.
„Þetta hefur nú alltaf verið mjög friðsælt
hverfi og hér býr mikið af gömlu fólki.“
Íbúar við Ystasel í Breiðholti voru slegnir eft ir alvarlega líkamsárás
fyrir viku, þar sem þekktir ofb eldismenn komu við sögu.
Þorsteinn Harðarson var einn þeirra.
UMMÆLI VIKUNNAR
18.05.2013 ➜ 24.05.2013
ÚRVAL ÚTSÝN | LÁGMÚLI 4 108 RVK | S. 585 4000
92.716KR.
7 NÆTUR
FRÁ:
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð
með 1 svefnherbergi og morgunverði á
Hótel Costa Encantada
Verð á mann: 120.930 kr. m.v. 2 fullorðna.
Brottför: 3. júní.
Flogið er í gegnum London á útleið.
COSTA BRAVA
SUMAR 2013 // NÁNAR Á UU.IS
Save the Children á Íslandi