Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.05.2013, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 25.05.2013, Qupperneq 16
25. maí 2013 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 16 „Því hefur verið haldið fram að í kvikmynd minni „Fjallkonan hrópar á vægð“ megi finna „úrelt- ar fullyrðingar úr gömlum tíma, með nokkra viðmælendur sem tali í frösum og hafi uppi 30 ára gamla umræðu,“ eins og fyrrverandi ráð- herra skrifar í Bændablaðið. Því er til að svara að viðmæl- endur mínir eru ekki nokkrir í myndinni, þeir eru hátt á þriðja tug. Fræðimenn, embættismenn, landeigendur, áhugafólk um land- græðslu og líka bændur. Allt fólk sem ber hag landsins og jafnvel sauðfjárræktar- innar fyrir brjósti. Nær öllu þessu fólki ber saman um að núverandi fyrirkomulag á beitarstjórnun sé verulega ábótavant, lausaganga búfjár sem almenn regla sé tímaskekkja. Vissulega er þetta 30 ára gömul umræða og reyndar er mun lengra síðan framsýnir menn og konur vöktu máls á nauðsyn þess að gera grundvallarbreytingar á búskap- arháttum Íslendinga. Það væri óskandi að þessi umræða væri löngu úrelt, en svo er því miður ekki. Síðustu áratugi hefur blessunarlega margt breyst til hins betra, fé hefur fækk- að ef allra síðustu ár eru undanskilin, veður far batnað og bændur almennt orðnir afar meðvitaðir um að ganga ekki um of á gæði landsins. Sums staðar fer beit og upp- græðsla saman og er það vel. En í skjóli hinnar almennu reglu um lausagöngu þríf- ast hins vegar búskussar sem eru stétt sinni til skammar. Enn er verið að beita á örfoka land á gos beltinu, viðkvæmasta svæði landsins, enn á skógrækt og landgræðsla í vök að verjast á svæðum þar sem öllum fræðimönnum ber saman um að engin beit ætti að líðast, enn eiga landeigendur, sumar- bústaða eigendur, skógarbændur og aðrir sem ekki kæra sig um að land þeirra sé nýtt undir atvinnu- starfsemi annarra undir högg að sækja. Vegna úreltra laga komast fáir aðilar upp með að koma óorði á heila atvinnugrein. Þetta er staðreynd og þessu verða sauðfjárbændur og aðrir búfjár- eigendur að taka höndum saman um að breyta og reka af sér slyðruorðið. Landið njóti vafans Gjarnan er vísað til Gæðastjórnunarinnar og ábyrgðar Landgræðslunnar á ástandi mála, en eins og nýleg dæmi sanna og Landgræðslustjóri hefur marg sagt skort- ir allar lagaheimildir til þess að grípa inn í þegar mikið liggur við. Eftirlit með því að þær landbótaáætlanir sem lagðar eru til grundvallar í gæðastjórnuninni nái fram að ganga er nær ekkert, og í raun óframkvæman legt án þess að leggja út í gríðarlegan aukinn kostnað, fyrir utan það að skussarnir geta einfaldlega sagt sig frá Gæðastjórnuninni ef þeim sýnist svo og haldið áfram uppteknum hætti, hvernig sem ástand landsins er. Það sér það hver sem vill sjá að auðvi- tað ætti landið okkar að njóta vafans, en ekki búfé. Afrétti, þjóðlendur, friðað land, fólkvanga, vegstæði, sumarbústaðarlönd og borgarlönd ætti ekki að þurfa að girða af. Nýting lands til beitar ætti að vera skil yrðum háð, ekki óskoraður réttur sem Landgræðslan og aðrir hagsmunaaðilar þurfa af veikum mætti að setja sig upp á móti þegar svo ber undir. Beitarstjórnun, á meðan lausa gangan viðgengst, er vonlaust verkefni. Það er ógerlegt að ætla sér að girða af hvern blett sem á að hlífa. Hluti afréttar getur verið „beitarhæfur“ og hluti hans alls ekki, en sauðfé spyr ekki að því. Það verður að vera hægt að stöðva beitina þar sem í óefni stefnir. Eina skynsamlega heildarlausnin er afnám þessarar gölluðu meginreglu á land- inu öllu. Sú lagabreyting er frumforsenda þess að við getum nýtt allar okkar rann- sóknir og þekkingu og hlíft landi eða nýtt það með langtímasjónarmið að leiðarljósi svo óflekkaður sómi sé að fyrir bændur landsins og þjóðina alla. Við sem lifum í dag eigum ekki landið okkar, við höfum það að láni frá komandi kynslóðum og okkur ber að leita ýtrustu leiða til að tryggja framtíðarhag þess með óskoruðum hætti. Um það eitt bið ég að við sameinumst.” Síðasta grein fjallkonunnar Herdís Þorvaldsdóttir, amma okkar, var hvorki „á móti“ búfé né eigendum þeirra – hún var MEÐ náttúrunni, með flóru lands-ins og fánu. Á langri ævi náði hún að tengjast hinum hæga hjartslætti landsins, sá hverju hægt er að fá áorkað þó hvert einstakt handtak virðist lítilmegnugt. Á hálfri öld líknaði hún vindorfinn mel- reit við Elliðavatn og umbreytti í skóg. En á sama tíma sá hún gróið land annars staðar umbreytast í auðn. Þrátt fyrir sannfæringu sína um að eitthvað yrði að breytast var amma ekki öfgamanneskja að neinu leyti. Að vísu var hún grænmetis- æta að mestu síðustu áratugina en kunni vel að meta íslenskt lamba- kjöt þegar svo bar undir. Barátta hennar snérist ekki um að útmála bændur landsins sem illvirkja. Heldur vildi hún í raun hefja vegsemd þeirra til virðingar með því að krefja þá og okkur öll um að haga landbúnaðarframleiðslu landsins og skipulagi á skynsaman og sjálfbæran hátt og nýta okkur þekkingu og reynslu frá öðrum þjóðum en þykjast ekki alvitur og alheilög í krafti hefða sem engin rök liggja lengur að baki. Óbilandi sannfæring Lausaganga búfjár er ekki fyrirkomulag sem Íslendingar hafa búið við frá örófi alda. Landnámsmenn Íslands höfðu um beit og skyldur búfjáreigenda skýr lög og þau lög voru ekki afnumin fyrr en neyð örbirgðar knúði forfeður okkar til örþrifaráða. Nú er öldin önnur og búfjáreigendum engin vorkunn þó hert sé á skilyrðum fyrir land- nýtingu. Réttir og fjárgöngur þurfa ekki að leggjast af, sú menning sem fylgir sauðfjárbúskap og atvinnugreininni í heild er engin hætta búin þó landið okkar fái að njóta vafans með afgerandi hætti. Við sem þjóð erum þess umkomin að geta stýrt beitinni og samtímis haldið búfé svo bæði land og þjóð, bændur sem og aðrir þegnar landsins, hafi ábata af um ókomna tíð. Amma mátti oft þola hótanir og orðhvöss bréf frá þeim sem „vildu“ misskilja hennar baráttu en aldrei var hún bitur eða sár út í nokkurn mann. Hún hélt höfði og barðist fyrir þeim málstað sem hún trúði á af yfirvegun og æðruleysi, á sama hátt og hún ræktaði garðinn sinn, nær og fjær, handtak fyrir handtak, grein fyrir grein. Óbilandi sannfæring hennar lá í eftirfarandi hvatningu sem hún samdi sjálfri sér og hafði jafnan í sjónmáli við ritvélina og síðar tölvuna: „Við berum þá skyldu gagnvart afkomendum okkar og náttúrunni sjálfri að skila gróðurþekju og jarðvegi landsins af okkur í betra ásigkomulagi heldur en við tókum við því.“ Stöðvum lausagöngu búfjár: http://stodvumlausagongu.is/ Úreltar fullyrðingar? Herdís Þorvaldsdóttir lést á Land- spítalanum 1. apríl síðastliðinn. Þá um nóttina lofuðum við barnabörnin henni að halda áfram baráttunni fyrir gróður- vernd og uppgræðslu landsins. Þegar hún lést ákváðum við í sam ein- ingu að leggja lokahönd á þá blaðagrein sem hún hafði unnið að síðast, rétt eins og við aðstoðuðum hana jafnan við loka- yfirlestur á fjölmörgum öðrum greinum. Það má segja að síðustu sex mánuði fyrir andlátið hafi heimildarmyndin „Fjallkonan hrópar á vægð“ og eftir- fylgnin við hana haldið ömmu gangandi. Greinina sem hér fylgir skrifaði hún sem svar við gagnrýni á myndina sem hún fjármagnaði úr eigin vasa og lagði alla sína krafta í. ➜ Það sér það hver sem vill sjá að auðvitað ætti landið okkar að njóta vafans, en ekki búfé. LANDVERND Herdís Þorvaldsdóttir leikkona Benedikt Þorri Sigurjónsson Gunnlaug Þorvaldsdóttir Gunnlaugur Egilsson Harpa Fönn Sigurjónsdóttir Hannes Þórður Þorvaldsson Herdís Anna Þorvaldsdóttir Jón Þórarinn Þorvaldsson Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir Tinna Hrafnsdóttir Ólafur Egilsson 534 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ Ouagadougou Sigríður Víðis Jónsdóttir, upp- lýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi 514 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ Styttum kennaranámið Pawel Bartoszek pistla- höfundur 438 FIMMTUDAGUR 24. MAÍ Að fá lánað Úrsúla Jünemann, kennari og leiðsögumaður 334 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ Strangtrúaðir netverjar Auður Jónsdóttir rithöfundur 327 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ Merkur stjórnmála- maður og ríkis stjórn kveðja Margrét S. Björnsdóttir, félagi í Samfylkingunni 224 LAUGARDAGUR 18. MAÍ 300 ára gamlar kennsluaðferðir Mikael Torfason ritstjóri Skoðun visir.is „Verkefnið er alltaf að auka hlut kvenna og jafna hlut kvenna og karla í stjórnmálum.“ Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkis- ráðherra tjáði sig um kynjahlutföllin í nýrri ríkisstjórn fyrr í vikunni. Formenn Framsóknar og Sjálfstæðisfl okks vilja ekki meina að kyn skipti máli, heldur ráði hæfi leikar aðeins för. „Hér er örugglega skilið vel við gagnvart verkefninu, viðtakanda og þessu fólki sem hér vinnur.“ Fjármálaráðherrann Bjarni Benediktsson var jákvæður í garð forvera sína Katrínar Júlíusdóttur þegar hann tók við lyklunum að ráðuneytinu. Hann sagðist viss um að þau myndu eiga í góðu samstarfi áfram. „Þetta hefur nú alltaf verið mjög friðsælt hverfi og hér býr mikið af gömlu fólki.“ Íbúar við Ystasel í Breiðholti voru slegnir eft ir alvarlega líkamsárás fyrir viku, þar sem þekktir ofb eldismenn komu við sögu. Þorsteinn Harðarson var einn þeirra. UMMÆLI VIKUNNAR 18.05.2013 ➜ 24.05.2013 ÚRVAL ÚTSÝN | LÁGMÚLI 4 108 RVK | S. 585 4000 92.716KR. 7 NÆTUR FRÁ: á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð með 1 svefnherbergi og morgunverði á Hótel Costa Encantada Verð á mann: 120.930 kr. m.v. 2 fullorðna. Brottför: 3. júní. Flogið er í gegnum London á útleið. COSTA BRAVA SUMAR 2013 // NÁNAR Á UU.IS Save the Children á Íslandi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.