Fréttablaðið - 25.05.2013, Blaðsíða 18
25. maí 2013 LAUGARDAGUR
Lyktin sem liggur í loftinu saman-stendur af 32 mismunandi lyktar-tegundum sem eru síðan sjálfar mjög flóknar samsetningar,“ segir Andrea. „Þetta er búið að vera mjög langt ferli. Við gengum út frá
sögu sem er nokkurs konar vísindaskáld-
saga, settum inn í hana orð og liti og báðum
síðan ilmvatnsframleiðendur að búa til ilm
sem endurspeglaði þetta. Við erum í raun að
búa til listasafn framtíðarinnar.“
Andrea segir hugmyndina hafa kviknað
út frá hugleiðingum um eðli safna og stöðu
þeirra í dag. „Síðan komu okkar persónulegu
áhugsvið inn í, eins og tíska og ilmvötn.“
Lyktartegundirnar 32 eru raungerðar
í pappírsskúlptúrum sem þau Andrea og
Huginn hafa búið til í sameiningu. Hafa
þau unnið saman áður? „Ekki að sýningu,
en við höfum unnið saman í Nýlistasafninu
við að skrásetja 30 ára sögu safnsins. Við
erum góðir vinir og höfum svipuð áhuga-
svið. Síðast þegar Huginn sýndi í Hafnar-
húsinu sýndi hann saumastofu þar sem fólk
gat komið og pantað sér föt sem síðan voru
saumuð. Á sama tíma sýndi ég ilm og núna
erum við að sameina þetta tvennt niðri í A-
salnum.“
Einn suðupottur
Andrea er þekkt fyrir ilmvötnin sín en hún
segir þennan ilm ekki vera hugsaðan fyrir
markað. „Þetta tvennt er algjörlega aðskilið
en auðvitað var ég að vinna þetta núna með
fólki sem ég þekki úr bransanum. Það hefur
mikið að segja að vera með þau sambönd því
þannig gátum við unnið þetta með fagfólki í
ilmvatnsgerð úti í Frakklandi.“
Þú ert alveg á fullu í myndlistinni enn þá
þótt það gangi svona vel með ilmvatns línuna
þína? „Já, já, þetta er bara einn suðupottur.
Ég aðgreini þetta tvennt ekkert sérstaklega.
Það varð eiginlega krafa að draga mynd-
listina meira inn í ilmvatnsgerðina og við
erum fljótlega að fara af stað með nýjar
pakkningar þar sem teikningin er komin
inn. Það er mikill áhugi fyrir því að bak-
grunnurinn komi betur í ljós og þessar inn-
setningar sem ég hef verið að vinna erlendis
eru yfirleitt bæði ilm- og myndlistartengdar.
Það skiptir mig engu hvort ég er að sýna á
einhverjum vörusýningum úti í heimi eða
hérna í Hafnarhúsinu, þetta er allt einn
heimur.“
Ótrúlega framsækið
Andrea segist vera mjög ánægð með að
Hafnarhúsið skuli sýna það frumkvæði
að halda sýningu af þessari gerð. „Það er
ótrúlega framsækið af safninu, ég tala nú
ekki um að setja hana í stærsta salinn. Það
er alveg með puttann á púlsinum því það
er mjög vinsælt núna að nota lykt í mynd-
list. Ég efast samt ekkert um að fólk á eftir
að hafa mismunandi skoðanir á þessari sýn-
ingu, en það er bara gaman. Ég hvet fólk
bara til þess að anda djúpt að sér áður en
það fer inn og njóta þess að nota annað skyn-
færi en vanalega á myndlistarsýningum.“
Erla Tryggvadóttir, við-
skiptastjóri Brandenburg
Huggulegheit
„Ég ætla að einbeita mér að
því að hafa það huggulegt
um helgina með kærastanum
og stjúpsyninum. Huga að
kryddjurtunum á svölunum
og svona.“
Heiðar Örn Kristjánsson
tónlistarmaður
Spilerí og veislur
„Laugardagurinn fer í spilerí.
Pollapönk-tónleikar, spilerí
í útskriftarveislu og brúð-
kaupsveislu um kvöldið. Á
sunnudaginn er það FH-ÍA í
Krikanum. Áfram FH!“
Sigmar Guðmundsson
fjölmiðla maður
Sinnir fj ölskyldunni
„Ég er með pínulítið barn og
verð líklega bara að sinna því
og nýti tímann heima með
fjölskyldunni. Það er alltaf
best.“
HELGIN
Hvernig lyktar listasafn?
Kafl askipti er nafn nýstárlegrar sýningar sem verður opnuð í Hafnarhúsinu klukkan 16 í dag. Það eru
þau Andrea Maack og Huginn Þór Arason sem sýna en umfj öllunarefnið er ilmur og listasafn fj arlægrar
framtíðar. Andrea er þekkt fyrir ilmvötn sín en hún segir þó ekki meininguna að selja þennan ilm.
SAMEIGINLEG ÁHUGASVIÐ Eitt af því sem leiddi þau Andreu og Hugin saman var áhugi á tísku og ilmi. Þetta er fyrsta samsýning þeirra og þar sameina þau þessi
áhugamál. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Friðrika Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack
hárgreiðslukona
Eyðir tíma með syninum
„Ég var að klára myndatöku fyrir nýja bók fyrir
danska hárfyrirtækið HH Simonsen og nú þarf
ég að skrifa allan textann við myndirnar. Ætli
helgin fari ekki fyrst og fremst í það og að borða
góðan mat og eyða tíma með stráknum mínum
sem er 7 mánaða. Svo fer ég líklega eitthvað út
með hundana og nýt náttúrunnar.“
Handverk Heimilisiðnaðarfélagið
er 100 ára og af því tilefni eru tvær
sýningar opnaðar í Þjóðminjasafninu
í dag. Annars vegar er sýning á
veggspjöldum með forsíðum ársrits
félagsins, Hugur og hönd. Hins vegar
er sýning á munum úr safni Heimilis-
iðnaðarfélagsins sem varðveittir eru í
Þjóðminjasafni Íslands. Sýningin ber
heitið Kónguló og vísar í kóngulóar-
prjón sem er meðal mynsturgerða sem
sýndar verða á sýningunni. Sýningar-
stjóri er Þórunn Elísabet Sveinsdóttir.
100 ára afmæli fagnað
Prjónakónguló
Tónlist Gyða Valtýsdóttir heldur
tónleika í Vatnasafninu á Stykkishólmi
í kvöld klukkan níu, á fullu tungli. Með
henni leikur Shahzad Ismaily. Gyða er
klassískt menntaður sellóleikari en er
þó betur þekkt sem einn af forsprökk-
um hljómsveitarinnar múm. Shahzad
Ismaily er fjölhæfur tónlistarmaður
sem hefur unnið með fjölda tónlista-
manna, þar á meðal Will Oldham og
Yoko Ono. Þau munu flytja verk eftir
Olivier Messiaen, George Crumb, Harry
Partch og Robert Schumann ásamt
eigin verkum og spuna.
Á fullu tungli
Múmsystir
á Vatnasafni
Fyrir 100 árum var Vor blótið
eftir Igor Stravinsky flutt í
fyrsta sinn. Í tilefni aldar-
afmælisins var verkið sett á
svið af Íslenska dansflokknum
og Sinfóníu hljómsveit Íslands.
Flutningurinn er hluti af Lista-
hátíð í Reykjavík en við sama
tækifæri berja gestir augum
Petrúsku eftir Stravinsky.
Frumsýning á þessum flutn-
ingi var í gærkvöld en í dag
klukkan þrjú gefst tækifæri til
að sjá þessi verk flutt, en við
verk Stravinskys hafa verið
samdir nýir dansar eftir fremstu
danshöfunda Íslands og Finn-
lands. Tón listin við Vor blótið
markaði tímamót í tón list ar-
sögunni og hefur haft gríð arleg
áhrif á tón smíðar 20. aldar.
Stra vinsky lýsti verkinu sem
„danstón verki“ og það er óður til
holskeflu hins skapandi krafts
sem vorið færir með sér. Frá
frum flutningi Vor blótsins hafa
listamenn víða um heim end-
ur túlkað þetta magnaða dans-
tónverk á marg vís legan hátt.
Petrúska er rússnesk þjóðsaga
um strá brúðu sem lifnar við og
öðlast til finn ingar.
Vorblótið og Petrúska í Eldborg
Vorblótið eft ir Stravinsky markaði tímamót í tónlistarsögunni þegar það var frumfl utt fyrir 100 árum.
TILKOMU-
MIKIÐ
Íslenski dans-
flokkurinn
á Eldborgar-
sviði Hörpu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tónlist Kammersveit Reykjavíkur
flytur úrval verka pólska tónskáldsins
Witold Lutosławski á tónleikum
Listahátíðar í Reykjavík í Norðurljósa-
sal Hörpu á sunnudagskvöld.
Lutosławski (1913-1994) var eitt
virtasta tónskáld Póllands, og skipar
stóran sess í evrópskri tónlistarsögu
20. aldar. Kammersveit Reykjavíkur var
stofnuð árið 1974 og fagnar fertugs-
afmælinu á næsta ári. Hún hefur
lengi skipað virðingarsess í íslensku
tónlistarlífi og hefur frá upphafi bæði
flutt samtímatónlist og barokktónlist.
Kammersveitin í Hörpu
Íslenskt-pólskt
stefnumót