Fréttablaðið - 25.05.2013, Qupperneq 34
25. maí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34
Sumir halda því fram að hægt sé að horfa
á fyrstu þrjár þáttaraðirnar af Arrested
Development þúsund sinnum og eiga samt
enn eftir að uppgötva leynda brandara í eitt-
þúsundastaogfyrsta skiptið. Hér verður ekki
lagt mat á sannleiksgildi slíkra fullyrð-
inga, en hitt er samt mjög líklegt að Mitch
Hurwitz og félagar hafi grínast svo fram-
úrstefnulega á köflum að það muni aldrei
neinn fatta það nema þeir.
Þessi skammlífa gamanþáttaröð um hrak-
farir Bluth-fjölskyldunnar þykir eitthvert
margslungnasta og úthugsaðasta grínefni
sem birst hefur á sjónvarpsskjáum. Þætt-
irnir sópuðu að sér Emmy-verðlaunum og
urðu mörgum æstum aðdáendum harmdauði
þegar þeim var kippt af dagskrá fyrir sjö
árum sökum óvinsælda vestanhafs.
En nú er loksins komið að því að Bluth-
slektið hljóti uppreisn æru. Fjórða þátta-
röðin – fimmtán nýir þættir, átta og hálf
klukkustund að lengd – verður gerð aðgengi-
leg á netmiðlinum Netflix á morgun eftir
langa þrautargöngu allra hlutaðeigandi.
Fyrir þá sem ekki þekkja til þáttanna má
í sem stystu máli segja, með vísan til upp-
hafsorða þeirra, að fyrstu þrjár þáttarað-
irnar fjalli um tilraun Michaels Bluth til að
halda fjölskyldu sinni og fjölskyldufyrirtæk-
inu á fótunum eftir að faðir hans er handtek-
inn, grunaður um alvarleg afbrot í rekstrin-
um. Inn í þetta fléttast tugir ógleymanlegra
aukapersóna, til dæmis lögmaðurinn Barry
Zuckerkorn, trúarofstækisstelpan óeftir-
minnilega Ann Veal og einkaspæjarinn
Gene Parmesan. Þau munu öll birtast aftur
í fjórðu þáttaröðinni, þar sem við fáum að
vita hvað hefur drifið á daga þessara kyn-
legu kvista öll þessi ár.
Íslendingar sem eru þyrstir í annan
skammt af þessari veislu fyrir heilann og
hláturtaugarnar þurfa ekki að bíða of lengi,
því að fjórða þáttaröðin verður sýnd á Stöð 2
frá og með föstudeginum 14. júlí.
Biðin eft ir Bluth-fj ölskyldunni á enda
Hvað hefur drifi ð á daga skemmtilegustu fj ölskyldu veraldar undanfarin sjö ár? Við því fæst svar innan sólarhrings, þegar ný þáttaröð af
Arrested Development verður loksins frumsýnd á vefnum Netfl ix. Upp með skálmalausu gallabuxurnar og stingið banönum í frystinn.
Yngsti sonurinn er seinfær mömmustrákur sem hefur
varið allri ævinni í miður gagnlegt nám. Hann býr enn
hjá mömmu og pabba, fær regluleg kvíðaköst af minnsta
tilefni, er hræddur við opin og lokuð rými og elskar ekkert
meira en djús, nema ef vera skyldi mömmu sína.
BUSTER BLUTH
Leikinn af Tony Hale
Sonur Michaels er tauga-
óstyrkur og vandræðalegur
með afbrigðum og ekki bætir
úr skák þegar hann verður
ástfanginn af frænku sinni.
Hann er allt of dugmikill
starfsmaður lítillar sjoppu
fjölskyldunnar niðri á höfn
þar sem kaupa má frosna
banana. Svo kann hann ekki
að grípa– neitt.
GEORGE
MICHAEL BLUTH
Leikinn af Michael Cera
Ættfaðirinn sem lendir í fangelsi fyrir það sem hann segir að
gætu talist „væg landráð“ í rekstri fjölskyldufyrirtækisins. Unir sér
í fyrstu vel í fangelsinu en fljótlega fara flóttatilraunir að verða
nánast daglegt brauð. Á auðvitað í sambandi við einkaritarann sinn.
GEORGE BLUTH ELDRI
Leikinn af Jeffrey Tambor
GOB (borið fram eins og Djób) er
skírður í höfuðið á föður sínum og
Oscari tvíburabróður hans. GOB
er auðnuleysingi og flagari með
minnimáttarkennd sem sinnir
töfrum í hjáverkum og tekur þá
mjög alvarlega. Fjölskyldunni þykir
þó ekki mikið til starfans koma.
GEORGE OSCAR BLUTH (GOB)
Leikinn af Will Arnett
Systirin í Bluth-fjölskyldunni
er gift Tobias Fünke og hefur
stöðugar– og eðlilegar– áhyggjur
af sambandinu. Sjálf er hún löt
með afbrigðum, hefur varla unnið
handtak á ævinni og vanrækir
dóttur sína. Hún stendur reglulega
fyrir söfnunum í þágu málefna
sem hún hefur takmarkaða
ástríðu fyrir.
LINDSAY FÜNKE
Leikin af Portiu de Rossi
Misástkær eiginkona George eldri. Lucille er léttrasískt snobbhænsn
og á í langvinnu stríði við nöfnu sína sem er bæði besta vinkona
hennar og erkióvinur. Lucille glímir við svæsið áfengisvandamál en
reynist þó talsvert kænni en hún lætur uppi dagsdaglega.
LUCILLE BLUTH
Leikin af Jessicu Walters
Dóttir Fünke-hjónanna er
hraðlyginn og lævís svika-
hrappur sem kemst upp
með hvað sem er vegna
þess að foreldrar hennar
nenna lítið sem ekkert að
sinna henni. Hún býr til
hin og þessi hliðarsjálf
til að fá sínu fram-
gengt og kemur George
Michael, frændanum
sem er ástfanginn af
henni, gjarnan í klípu.
MAEBY FÜNKE
Leikin af Aliu Shawkat
„Hreini“ sonurinn sem á að
taka við ættarveldinu. Ekkill-
inn Michael er búinn að fá
sig fullsaddan af ruglinu
en á erfitt með að slíta sig
lausan frá fjölskyldunni sem
hann þolir ekki. En er hann
kannski ekki jafnfullkominn
og af er látið?
MICHAEL BLUTH
Leikinn af Jason Bateman
➜ Í þættinum Notapusy má sjá George Michael
í skyrtu með sama litamynstri og nammið í
skálinni fyrir framan hann.
➜ Á hátíðisdögum klæðist Lupe, þerna Lucille,
alltaf gömlum fötum af Bluth-fjölskyldunni
sem hæfa ekki tilefninu. Í eitt skipti er hún í
hrekkjavökupeysu í jólaboði og í annað er hún í
þakkargjörðarpeysu á Valentínusardag. Dæmin
eru fleiri.
➜ Ítrekað er ýjað að því í þáttunum að Tobias telji
sig vera blökkumann í líkama hvítingja.
➜ Í fyrri hluta annarrar þáttaraðar er bananasölu-
turn Bluth-fjölskyldunnar dreginn úr hafinu eftir
skemmdarverk. Á honum virðist standa: „I‘ll Get
You Bluths– Hello“. Það er ekki fyrr en í lok þriðju
þáttaraðar sem í ljós kemur að ættleiddur sonur
Lucille heitir ekki Annyong heldur Hel-loh og að
hann hafði alla tíð áformað hefndir vegna þess
þegar Bluth-fjölskyldan hrakti bananasölumann-
inn föður hans af höfninni.
➜ Enginn í fjölskyldunni getur beitt hamri. Ef
maður horfir á allar þáttaraðirnar meðvitaður
um þá staðreynd finnast minnst sjö dæmi.
➜ GOB kemst upp með að nota orðið „fucking“ í
einum þáttanna. Atriðið er klippt í miðju orði og
síðari hluti setningarinnar sýndur á undan. Hann
hefst á orðunum „…cking 63 hundred dollar
suit!“. Seinna í þættinum sjáum við nánasta
aðdragandann sem endar á orðunum: „No, Al. I
want to spill booze all over my fu…“
Tókstu eftir þessu? (Varúð – hér leynist spilliefni!)
Stígur
Helgason
stigur@frettabladid.is
Eiginmaður Lindsay er
kynvilltur sálfræðingur sem
þráir að verða leikari. Hann
ber titilinn „analrapist“
með stolti (blanda af ensku
orðunum analyst og therapist)
en er ekki jafnstoltur af því
að þjást af sálfræðilegum
kvilla sem veldur því að hann
getur aldrei verið nakinn
og þarf ávallt að klæðast
skálmalausum gallabuxum
næst skinninu.
TOBIAS FÜNKE
Leikinn af David Cross
GRÍNÞÆTTIRNIR ARRESTED DEVELOPMENT SNÚA AFTUR EFTIR SJÖ ÁRA HLÉ
„Þetta er alveg frábært
efni en það höfðar
kannski ekki til allra,“
segir Ari Eldjárn, einn
fjölmargra aðdáenda
Arrested Development.
„Mér finnst þetta
snilld af því að þetta
eru leiknir gaman-
þættir sem eru samt
jafnhraðir og klikkaðir
og teiknimynd.“
➜ Jafnhratt og klikkað
og teiknimynd