Fréttablaðið - 25.05.2013, Síða 38

Fréttablaðið - 25.05.2013, Síða 38
Ferðir LAUGARDAGUR 25. MAÍ 20132 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 5125432 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Í skálanum við Nordenskjöld-jökulinn þurfti að ná í ís úr jöklinum til að bræða sem drykkjar- og saunuvatn. Norðlægar slóðir hafa lengi heillað Ár-dísi og Donal og því fannst þeim ekki úr vegi að stefna í þá átt í brúð- kaupsferð sinni. „Við höfðum farið í frá- bært ferðalag til Alaska árið áður en við gift- um okkur. Hins vegar fórum við aldrei norð- ur fyrir Reykjavík og því fannst okkur tími til kominn að halda aðeins norðar en Ísland í næstu ferð,“ segir Árdís en þau Donal gengu í hnapphelduna í júní 2011 en brúðkaups- ferðin var ekki farin fyrr en í ár. „Við ákváð- um að fara eins langt norður og við kæmumst án þess að þurfa að leggjast í margra mán- aða eða ára undirbúning,“ upplýsir hún og því varð Svalbarði fyrir valinu. „Svalbarði er nyrsta byggðarlag heimsins og það er ótrú- lega auðvelt að komst þangað með reglu- legu áætlunarflugi,“ segir Árdís en hjónin, sem búa í Danmörku og Edinborg um þess- ar mundir, f lugu frá Kaupmannahöfn í gegn- um Ósló og Tromsö til Longyearbyen á Sval- barða. Í liði með Ronju ræningjadóttur Í bænum gistu þau í Basecamp Trapper‘s Hotel sem er byggt í stíl kofa sela- og ís- bjarnaveiðimanna fyrri tíma. Fyrsta kvöld- ið var ætlað í rólegheit en þau álpuðust inn á ferðaskrifstofu þar sem þeim var í snarheit- um kippt með í jökulhelli til að leika ferða- menn í auglýsingamyndbandi. „Okkur fannst frekar fyndið að vera loks „uppgötvuð“ á Svalbarða eftir að hafa búið í mörg ár í Los Angeles,“ segir Árdís kímin. Svo var haldið í fjögurra daga hundasleða- ferð. „Við vorum fimm í allt með leiðsögu- manninum og hvert okkar með sleða með sex hundum. Ég valdi að sjálfsögðu liðið með Ronju ræningjadóttur,“ segir Árdís glaðlega en ferðin var mikið ævintýri. „Þetta var bæði mun auðveldara og mun erfiðara en ég átti von á. Þetta var líkamlega auðveldara, hund- arnir voru sterkir og maður þurfti ekki að hjálpa þeim nema upp allra bröttustu brekk- urnar. Hins vegar var þetta tæknilega mun erfiðara en ég átti von á og maður hafði litla stjórn á sjálfum hundunum,“ segir Árdís enda voru einungis hundar leiðsögumanns- ins þjálfaðir í að hlýða skipunum til hægri og vinstri. „Hinir hundarnir áttu að elta sleðann á undan sem var saklaust á snjóbreiðunum en gat orðið erfitt í brekkum. Stundum end- aði sleðinn á hliðinni og maður rúllaði af.“ Hótel um borð í skútu Fyrstu nóttina gistu Árdís og Donal á allsér- stöku hóteli, hollensku seglskútunni Noor- derlicht sem situr frosin föst í Templarfjor- den á veturna. „Skipinu er siglt inn fjörðinn á haustin og látið frjósa fast, og svo er því siglt aftur burt um vorið,“ segir Árdís og var afar ánægð með gistinguna. „Þarna hittum við annað myndatökulið sem var að mynda sam- spil ísbjarnamóður og húna,“ segir hún og um kvöldið gátu þau öll fylgst með ísbjarna- móðurinni úr öryggi bátsins. „Í allri ferðinni máttum við ekki fara út án leiðsögumanns sem ávallt var vopnaður riffli og skammbyssu vegna ísbjarna.“ Næstu tvær nætur gisti hópurinn í skála við rætur Nordenskjöld-jökulsins. „Þaðan fórum við í dagsferð á sleðunum yfir frosinn Isfjord- en til Pyramiden sem er gamall rússneskur draugabær. Þar búa reyndar tuttugu manns núna, fimm sem reka þar ferðaþjónustu og fimmtán sem vinna við að hreinsa svæðið af hrörnandi byggingum. Þar hittum við líka myndatökulið númer þrjú sem var að vinna að mynd um hjólabretti á norðurslóðum.“ Í lok ferðarinnar var hópurinn sóttur með bát á rönd íssins og siglt var aftur til Lonyearbyen. „Síð- asta daginn okkar á Svalbarða fórum við í vél- sleðaferð á austurströndina sem er mun kald- ari en vesturströndin sem nýtur yls frá Golf- strauminum,“ segir Árdís en þau hjónin eru himinlifandi með þessa köldu brúðkaupsferð. Í brúðkaupsferð á Svalbarða Árdís Elíasdóttir og Donal O‘Connell eru nýkomin úr ævintýralegri brúðkaupsreisu til Svalbarða í Norður-Íshafi. Þau ferðuðust um á eins manns hundasleðum, gistu í seglskútu sem frosin var föst í Templarfjorden, sáu ísbjarnamömmu með tvo húna og heimsóttu yfirgefinn rússneskan draugabæ. Árdís og Donal fóru í fjögurra daga hundasleðaferð um snjóbreiður Svalbarða. Þau voru fimm saman og hvert og eitt með eigin hundasleða og hundateymi. „Hótelið“ Noorderlicht er í raun skúta sem frosin er föst í firði. Í forgrunni er eitt hundateymi sem hvílir lúin bein. Árdís og Donal kappklædd í kuldanum á Svalbarða. Þau voru hæstánægð enda var stefnan að fara í brúðkaupsferðina að vetrarlagi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.