Fréttablaðið - 25.05.2013, Qupperneq 42
FÓLK|
til mömmu, samanlagt 230 kíló-
metra,“ segir Baldur, sem fer í sveit til
foreldra sinna við hvert tækifæri og
tregar það nú að komast ekki norður í
sauðburð.
„Mér þykir afar vænt um sveitina
mína og upprunann og nýti hvert
tækifæri til að nota landsbyggðar-
hrokann á borgarbúa,“ segir Baldur og
skellir upp úr. „Vorin með sauðburðin-
um og haustin með göngum og réttum
eru minn uppáhaldstími í sveit. Ég hef
gaman af öllum bústörfum þótt ég sé
ekki mikill hestamaður og þótti alltaf
skemmtilegast að sjá um kindurnar
því þær eru húsdýr sem bændur
mynda oft tengsl við. Mér þykir líka
mikið stuð að rýja, moka skít og
flórinn og vera innan um bændur,
sem eru sérstakur þjóðflokkur, með
sínar sterku skoðanir á hlutunum og
skemmtilegan kjaft á stundum,“ segir
Baldur heillaður af sveitinni.
Í FÓTBOLTA TIL AÐ VINNA
Baldur er nú markahæsti leik-
maður Pepsi-deildarinnar og leikur
á miðjunni með KR sem er efsta lið í
deildinni.
„Ég er langt í frá besti marka-
skorarinn í deildinni og heiðurinn ligg-
ur hjá liðsfélögum mínum. Þetta hefur
verið góð byrjun og ég verið réttur
maður á réttum stað, fengið nokkur
opin færi og tækifæri til að klára þau
með sæmd. Ég er því ekki lykilmaður
í velgengni KR nú; bara heppinn að
vera í færinu þegar boltinn kemur,“
segir Baldur af stakri hógværð.
Spurður hvort atvinnumennska
í útlöndum freisti segist hann ekki
mundu segja nei við spennandi til-
boði en að sér líði stórkostlega að
spila á Íslandi og með KR.
„Þótt starfsframinn sé að verða í
meiri brennidepli en fótboltaframinn
hef ég gríðarlegan metnað í bolt-
anum. Það skiptir mig öllu að standa
mig vel hjá KR þar sem andinn ein-
kennist af miklum metnaði og pressu
á árangur. Það er ég ánægðastur með
þótt stundum sé talað um að KR setji
of mikla pressu á leikmenn. Fólk ým-
ist elskar eða hatar KR og ég er í fyrr-
nefnda hópnum. Ég er í þessu til að
vinna leiki og titla, enda það leiðin-
legasta í heimi að tapa.“
ELSKAR PÁLU MARIE OG SONINN
Fótbolti er örlagavaldur í einkalífi
Baldurs því hann fann ástina með
Pálu Marie Einarsdóttur, knatt-
spyrnukonu í Val.
„Við Pála Marie höfðum tekið
hvort eftir öðru í gegnum fótbolt-
ann en náðum loks saman á fallegu
sumarkvöldi í bænum aðfaranótt
þjóðhátíðardags. Ég held að kven-
hylli fótboltamanna skrifist á at-
hyglina sem þeir fá í fjölmiðlum því
stundum verða þeir jafn áberandi og
fræga fólkið. Svo spilar trúlega inn í
sú staðreynd að fótbolti er vinsæl-
asta íþrótt heims.“
Baldur og Pála Marie eignuðust
son í janúar.
„Það er yndisleg tilfinning að verða
faðir og breytir tilverunni. Ég var lítill
barnakarl áður en sonurinn fæddist
en um leið og maður fær eigið barn
í hendur breytist allt. Víst eru góðar
líkur á að snáðinn verði fótbolta-
maður því móðir hans er margfaldur
Íslands- og bikarmeistari með Val.
Hann mun því alast upp í fótbolta-
fjölskyldu en gæti allt eins fengið
ógeð eins og að smitast af fótbolta-
bakteríunni,“ segir Baldur og kímir.
Fjölskyldan er nýflutt í Vestur bæinn
og blómstrar þar í návígi KR-vallarins.
„Mér líður yndislega í borginni en
finnst þægilegt að komast af og til í
sveitina líka. Ég sé ekki fyrir mér að
búa í sveit í framtíðinni en sem verk-
fræðingur væri gaman að vinna að
framkvæmdum á landsbyggðinni,“
segir Baldur, sem útskrifast úr bygg-
ingaverkfræði að ári og hóf störf á
verkfræðistofu í liðinni viku.
„Ég ætlaði alltaf að verða smiður en
verkfræðin varð óvart fyrir valinu þeg-
ar fyrrverandi kærasti systur minnar
var í verkfræðinámi og vakti með mér
áhuga á starfinu. Ég hafði aldrei verið
sterkur í stærðfræði en skipti strax
yfir á raungreinabraut til að undirbúa
mig undir verkfræðinámið og finn að
starfsumhverfið á vel við mig.“
Um helgina ætlar Baldur að sækja
tvær æfingar hjá KR, sem á mikilvæg-
an leik á mánudag.
„Ef vel viðrar förum við í göngu-
túr með vagninn og heilsum upp á
tengdaforeldra mína og vini okkar.
Þá er klárt mál að ég horfi á stærsta
leik ársins, sem er úrslitaleikur
Meistaradeildarinnar í Evrópu. Það
verður að viðurkennast að ég horfi
dálítið mikið á fótbolta í sjónvarp-
inu.“ ■ thordis@365.is
BJÖRT FRAMTÍÐ
Baldur útskrifast úr
byggingaverkfræði á
næsta ári og vinnur nú á
verkfræðistofunni VSÓ
ráðgjöf þar sem hann
finnur sig afar vel.
MYND/ANTON
HELGIN
Hverfið verður skreytt í regnbogans litum og ým-islegt skemmtilegt í boði.
Frítt verður í Grafarvogslaug
milli klukkan 9 og 11. Milli 10 og
12 verður opið hús á svellinu í
Egilshöll en frítt verður á skauta
fyrir börn og fullorðna. Þeir sem
vilja geta fengið kennslu í undir-
stöðuatriðum skautalistarinnar.
Klukkan 13 verður Hallsteinsgarður
vígður en það verður myndhöggvar-
inn sjálfur, Hallsteinn Sigurðsson, sem
afhendir Reykjavíkurborg verk sín til
eignar. Að því loknu verður farin skrúð-
ganga frá garðinum að Gufunesbæ þar
sem slegið verður upp hátíðahöldum.
Þar verða hoppukastalar, leiktæki, hest-
ar, andlitsmálning, Sögubíllinn Æringi og
ýmislegt fleira í boði.
Þá verður opið hús hjá Íslenska gáma-
félaginu en þar verður hægt að sjá sýningu
á hlutum sem hafa fengið nýtt líf. Hoppu-
kastali og grillaðar pylsur verða að sjálf-
sögðu hluti gleðinnar.
GLEÐI Í GRAFARVOGI
Grafarvogsdagurinn verður haldinn
hátíðlegur í dag, 25. maí.
Holtagörðum | Sím 00i 553 18 | Opið virka daga 11-18 og laugardaga 11-15
NÝ SENDING AF
VIÐARPERLUM
Lengjur 395 kr. - 695 kr.
STÆRSTI PERLUBAR LANDSINS
Stærsta föndurverslun landsins
Hvað er í matinn?
HÓTEL- OG
MATVÆLA
SKÓLINN
WWW.MK.IS
Matsveinanám fyrir þá sem starfa eða vilja starfa á fiski- og
flutningaskipum og litlum mötuneytum.
INNRITUN STENDUR TIL 31. MAÍ
Upplýsingar á www.mk.is og á
skrifstofu skólans í síma 594 4000
MATSVEINANÁM
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir