Fréttablaðið - 25.05.2013, Qupperneq 57
| ATVINNA |
STARFSMAÐUR ÓSKAST
Starf: Fjórhjólaleiðsögumaður. Um er að ræða
hlutastarf í sumar og jafnvel í vetur.
Skilyrði: Góð enskukunnátta og mikil þjónustulund
Þú þarft ekki að hafa ekið fjórhjóli áður.
Kostur að hafa meirapróf, en ekki skilyrði.
Nánari uppplýsingar um okkur: www.safarihjol.is
á quad@quad.is
- Lifi› heil
Við leitum
að starfsfólki
Ný og glæsileg verslun Lyfju á höfuðborgarsvæðinu
Í samræmi við jafnréttisáætlun Lyfju hf.
hvetjum við karla jafnt sem konur til
þess að sækja um störf hjá fyrirtækinu.
Starfið felst m.a. í lyfjapökkun, aðstoð í receptur, m.a. við frágang og
afgreiðslu lyfja, afgreiðslu á kassa, af hendingu lyfja gegn lyfseðli,
afgreiðslu á lausa sölu lyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra auk
sölu og ráðgjafar til viðskiptavina við val á öðrum vörum í verslun.
Vinnutíminn er kl. 11:00–18:00 alla virka daga og þriðja hvern laugardag.
Tekið er við umsóknum á vefslóðinni www.lyfja.is og
er umsóknar frestur til 2. júní nk. Farið verður með
allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Ráðið verður í störfin sem fyrst.
Nánari upplýsingar um störfin má finna á www.lyfja.is
og hjá starfsmannahaldi í síma 530 3800.
Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum starfs manni til að
hafa umsjón með versluninni. Starfið felst m.a. í að hafa yfirumsjón
með uppstillingu á vörum, fylgjast með sölutölum og stjórna pönt-
unum á vörum í samræmi við ákvarðanir fyrirtækisins, í samskiptum
við birgja varðandi vörur í versluninni og yfirumsjón með að versl-
unin sé hrein og snyrtileg. Starfið felst einnig í ráðgjöf til viðskipta-
vina um val á vörum, afgreiðslu á kassa, afhendingu lyfja gegn
lyfseðli, afgreiðslu á lausa sölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun
þeirra. Vinnutíminn er kl. 10:00–17:00 alla virka daga og þriðja hvern
laugardag.
Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum starfsmanni með ríka þjón-
ustulund í sölu- og afgreiðslustarf. Starfið felst í ráðgjöf til við skipta-
vina um val á vörum, afgreiðslu á kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli,
afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra.
Vinnutíminn er kl. 12:00–17:00/14:00–18:30 alla virka daga
og þriðja hvern laugardag.
Lyfjatæknir
Umsjónarmaður
verslunar
Sala- og
afgreiðsla
Sölumaður – Tréiðnaður
Iðnvélar hefur í áratugi verið leiðandi fyrirtæki í sölu og
þjónustu á vélum , tæknibúnaði og rekstrarvörum til
iðnaðar.
Við óskum eftir öflugum og drífandi sölumanni í tréiðnaðar-
deild Iðnvéla sem bætist í samstilltan hóp starfsmanna
fyritækisins.
Í starfinu felst m.a. sala og ráðgjöf á rekstrarvörum tengd-
um tréiðnaði til viðskiptavina fyrirtækisins um allt land.
Leitað er að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi sem
getur unnið sjálfstætt, hefur gaman af mannlegum sam-
skiptum og er reyklaus
Hæfniskröfur:
• Reynsla af sölumennsku
• Góð þekking á tréiðnaði sem og rekstarvörum og
tæknibúnaði tengdum tréiðnaði
• Góð enskukunnátta
Vinnutími er 8-17:00 alla virka daga
Umsóknir sendist til Margrétar Hansen,
margret@idnvelar.is
Ekki er tekið á móti umsóknum í síma.
SÉRKENNARI
Fjölskyldusvið Húnaþings vestra auglýsir lausa
til umsóknar stöðu sérkennara í grunnskólum
Húnaþings vestra. Um er að ræða 100% stöðugildi.
Meginverkefni er mótun og umsjón námsvers ásamt allri skipulagn-
ingu á sérkennslu í grunnskólunum þ.m.t ráðgjöf til kennara.
Mikilvægt er að umsækjandi hafi menntun sem grunnskólakennari
og hafi réttindi til starfa sem sérkennari og hafi einnig leyfi til að
leggja fyrir helstu skimanir og greiningarpróf. Einnig er mikilvægt að
umsækjandi hafi til að bera góða samskiptahæfni, ríkt frumkvæði og
samstarfsvilja til þverfaglegs samstarfs.
Laun eru greidd skv. samningum KÍ og sveitarfélaganna.
Frekari upplýsingar veitir skólastjóri Sigurður Þór Ágústsson í síma
4552911 eða í tölvupósti siggi@hunathing.is
Skriflegar umsóknir er tilgreini menntun, fyrri störf og umsagnar-
aðila, ásamt leyfisbréfum berist Fjölskyldusviði Húnaþings vestra,
Hvammstangabraut 5 530 Hvammstanga eða á netfangið
eydis@hunathing.is.
Umsóknarfrestur er til 2. júní 2013
Hvammstangi í Húnaþingi vestra er stærsti þéttbýliskjarni
sveitarfélagsins með um 600 íbúa en íbúar í Húnaþingi vesta eru
um 1.200. Hvammstangi er í alfaraleið, aðeins 6 km. frá þjóðvegi 1
og í u.þ.b. tveggja klst. akstursfjarlægð frá Reykjavík og Akureyri.
Í Húnaþingi vestra er til staðar öll almenn opinber þjónusta auk
annarrar fjölbreyttrar þjónustu. Möguleikar til útivistar, íþrótta,
afþreyingar og félagsstarfa eru fjölmargir og því er Húnaþing vestra
góður búsetukostur fyrir fjölskyldufólk. Skólar í Húnaþingi vestra eru
grænfánaskólar. Þeir eru staðsettir á Hvammstanga, Laugarbakka og
Borðeyri. Framhaldsskóladeild frá FNV er staðsett á Hvammstanga.
LAUGARDAGUR 25. maí 2013 13